Hættir kennslu eftir rasísk ummæli

Helgi Helgason, mennta­skóla­kenn­ari sem við­hafði niðr­andi og rasísk ummæli um palest­ínskan kepp­anda í Söngvakeppni sjón­varps­ins, er kom­inn í leyfi frá störfum. Hann mun hætta í fram­hald­inu.

Hættir kennslu eftir rasísk ummæli
Kenn­ar­inn Helgi Helgason mun hætta að kenna við ML í kjöl­far ummæl­anna. Mynd: Kristinn Magnússon

Kennari við Mennta­skól­ann á Laug­ar­vatni sem við­hafði niðr­andi ummæli um Bashar Murad, kepp­anda í Söngvakeppni sjón­varps­ins, er kom­inn í leyfi. Í fram­haldi verður gengið frá starfs­lokum manns­ins, Helga Helga­sonar. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá skóla­meist­ara menna­skól­ans, Jónu Katrínu Hilm­ars­dóttur. 

„Sú orð­ræða sem Helgi hefur við­haft sam­ræm­ist ekki stefnu eða ein­kennum skól­ans,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Stjórn skól­ans og Helgi hafa sam­mælst um að hann fari í leyfi frá og með deg­inum í dag og í kjöl­farið verði gengið frá starfs­lokum.“

Helgi kenndi dönsku og fjár­mála­læsi við Mennta­skól­ann að Laug­ar­vatni. Um helg­ina skrif­aði hann færslu í umræðu­hóp Íslensku Þjóð­fylk­ing­ar­innar á Facebook. Helgi var um tíma for­maður flokks­ins þegar hann bauð sig fram í þing­kosn­ingum árið 2016. 

Kallaði Bashar fulltrúa Hamas

Í færsl­unni fjall­aði Helgi um loka­keppni Söngvakeppni sjón­varps­ins sem haldin var á laug­ar­dag­inn og spurði hvort Helgi úrslitum keppn­innar yrði hag­rætt.

„[Æ]tla þeir hjá RÚV að láta grenj­andi og illa skeind­ann Palist­ínu­araba vinna?“ skrif­aði Helgi. 

Í færsl­unni, sem einnig hefur verið sögð bera ríkan keim af kven­fyr­ir­litn­ingu, hvatti Helgi les­endur til þess að leggj­ast á eitt kjósa „eitt­hvað annað en full­trúa hryðju­verka­sam­tak­anna HAMAS“.

Upp­haf­legri færslu Helga hefur verið breytt, en skjá­skot af færsl­unni voru birt á af Karenu Kjart­ans­dóttur á Facebook-hópnum „Afhjúpum kven­fyr­ir­litn­ingu og almennt hatur á sam­fé­lags­miðlum.“ 

Í sam­tali við Heim­ild­ina í gær sagði skóla­meist­ar­inn Jóna Katrín að ummæli Helga gengju gegn stefnu skól­ans. 

„Stefna skól­ans er skýr inn á mennta­skóla­síð­unni og þetta sam­ræm­ist á engan hátt því sem við viljum standa fyrir eða höfum verið að vinna að í mörg mörg ár.“

Fréttin hefur verið upp­færð

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Hann hefur einhverstaðar orðið fyrir hnjaski sem hann ræður ekki við, gteyið.
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Kennarar - sem eru í raun opinberir embættismenn verða að hafa pólitískar skoðanir sínar fyrir sjálfa sig eða fá sér aðra vinnu. Þátttaka kennara og skólastjóra í stjórnmálum hefur yfirleitt gefist ílla.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár