Rasísk ummæli framhaldsskólakennara tekin til skoðunar

Færsla sem kenn­ari við Mennta­skól­ann að Laug­ar­vatni birti á sam­fé­lags­miðlum hefur vakið athygli. Í færsl­unni tjáði kenn­ar­inn sig um Söngvakeppni sjón­varps­ins og einn kepp­and­ann, Bashar Murad. Þykja ummælin bera ríkan keim af ras­isma og kven­fyr­ir­litn­ingu. Skóla­meist­ari ML seg­ist hafa fengið margar ábend­ingar um færslu kenn­ar­ans og að starfs­fólki skól­ans sé brugðið.

Rasísk ummæli framhaldsskólakennara tekin til skoðunar
Ummæli kenn­ar­ans beindust að palest­ínska kepp­and­anum Bashar Murad sem flutti lagið „Wild West“ á laug­ar­dag­inn Mynd: RÚV

Skóla­meist­ari Mennta­skól­ans að Laug­ar­vatni segir að sér hafi borist fjöl­margar ábend­ingar frá fólki um rasísk ummæli sem kenn­ari skól­ans birti á sam­fé­lags­miðlum um úrslita­kvöld Söngvakeppni sjón­varps­ins. 

„Fólki er brugðið,“ segir Jóna Katrín Hilm­ars­dóttir, skóla­meist­ari Mennta­skól­ans að Laug­ar­vatni, í sam­tali við Heim­ild­ina. Hún segir skóla­stjórn­endur hafi fengið ábend­ingar úr mörgum áttum og þegar í stað tekið mál kenn­ar­ans til skoð­unar

„Við höfum verið að vinna þetta mál í dag og munum ná nið­ur­stöðu í málið í kvöld og ég geri ráð fyrir því að við sendum form­lega yfir­lýs­ingu á heima­síðu skól­ans fyrir hádegi á morgun.“

Jóna segir að mál sem þessi séu afar vanda­söm til með­ferðar og nefnir sér­stak­lega að mál­frelsi ein­stak­linga vegi þungt. „Og meðan þeir eru einmitt að lýsa sínum skoð­unum eins og þarna í þessu dæmi, í sínum einka­tíma en ekki á vinnu­staðnum þá sé þeirra réttur bara mjög sterkur. Þetta er gríð­ar­leg klemma fyrir …

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SA
    Silja Aðalsteinsdóttir skrifaði
    Mér finnst svolítið fyndið að menntaskólakennari skuli ekki kunna n-reglurnar. En hann er auðvitað að ítreka yfirburði karlkynsins með þessum auka n-um.
    3
    • Kristín Guðnadóttir skrifaði
      Hjó eftir þessu líka. Karlangin(n).
      1
  • GKB
    Guðmundur Karl Björnsson skrifaði
    Kemur mér á óvart...ekki heyrt þennan frasa síðan ég var barnungur (1960 eða þar um bil), en þá sagði einhver jafnaldra strákur við mig: Þú ert eins og illa skeindur Arabi á hvolfi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár