Segir Vinstri grænum ítrekað hafa verið stillt upp við vegg í útlendingamálum

Vara­for­maður Vinstri grænna vill að flokk­ur­inn noti tím­ann fram að næstu kosn­ingum til að „kveikja neist­ann, ræða fram­sæknar hug­myndir og finna rót­tækn­ina.“ Áherslur flokks­ins í útlend­in­gam­alum hafi ekki kom­ist nægi­lega að í umræð­unni.

Segir Vinstri grænum ítrekað hafa verið stillt upp við vegg í útlendingamálum
Vara­for­mað­ur­inn Fylgi Vinstri grænna mælist nú 4,7 pró­sent. Þrátt fyrir það telur Guð­mundur Ingi Guð­brands­son að flokk­ur­inn hafi náð miklum árangri í því rík­is­stjórn­ar­sam­starfi sem hann hefur verið í síðan haustið 2017. Mynd: Vinstri græn

Vara­for­maður Vinstri grænna vill að flokk­ur­inn noti tím­ann fram að næstu kosn­ingum til að „kveikja neist­ann, ræða fram­sæknar hug­myndir og finna rót­tækn­ina.“ Áherslur flokks­ins í útlend­in­gam­alum hafi ekki kom­ist nægi­lega að í umræð­unni þar sem Vinstri grænum hafi ítrekað verið stillt upp við vegg „með að sam­þykkja eða hafna ein­stökum laga­frum­vörpum frá dóms­mála­ráð­herrum Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“ 

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mála­ráð­herra og vara­for­maður Vinstri grænna, sagði í setn­ing­ar­ræðu sinni á flokks­ráðs­fundi flokks­ins á föstu­dag að sér hafi fund­ist Vinstri græn hafa farið hall­oka í umræðu um útlend­inga­mál und­an­farin miss­eri „og við ekki kom­ist nægj­an­lega vel að í umræð­unni með áherslur okkar, þar sem okkur hefur ítrekað verið stillt upp við vegg með að sam­þykkja eða hafna ein­stökum laga­frum­vörpum frá dóms­mála­ráð­herrum Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“ 

Hann sagð­ist þó líka ótt­ast aukna skautun í þessum málum „þar sem upp eru að drag­ast öfga hægri skoð­anir á móti skoð­unum um opin landa­mæri. Þetta er ekki góð þróun og hjálpar ekki útlend­ingum og inn­flytj­endum á Íslandi, fólk­inu sem á stóran þátt í að halda uppi verð­mæta­sköpun og hag­vexti í land­inu.“

Vara­for­mað­ur­inn sagði útlend­inga­málin erfið og að þau hafi litað alla stjórn­mála­um­ræðu á und­an­förnum miss­erum. Hann telji þó að nýlega fram­lögð 20 aðgerða heild­ar­sýn á mál­efni útlend­inga og inn­flytj­enda muni gera umræð­unni í sam­fé­lag­inu og póli­tík­inni gott. „Í mínum huga verður VG að búa sér til pláss í umræð­unni um útlend­inga- og inn­flytj­enda­mál, taka frum­kvæði og tala út frá okkar áherslum og okkar sýn. Ég vil meina að okkur hafi tek­ist að gera þetta á und­an­förnum tveimur vikum.“

Segir árangurinn mikinn en að það þurfi að „kveikja neistann“

Guð­mundur Ingi tal­aði upp árangur Vinstri grænna í því rík­is­stjórn­ar­sam­starfi sem flokk­ur­inn hefur setið í síðan haustið 2017 í ræðu sinni. Hann sagði margt hafa áunn­ist á þeim tíma og að lesa mætti um þann árangur í VG blað­inu sem sent hafi verið heim til félags­manna í lok síð­ustu viku, þótt sá listi væri hvergi nærri tæm­andi. „Nú þegar kjör­tíma­bilið er rúm­lega hálfnað er byrj­aður að detta í hús árangur verk­efna sem lagt var upp í við upp­haf kjör­tíma­bils­ins. Við erum við upp­haf upp­skeru­tím­ans.“

Flokks­ráðs­fund­ur­inn var settur sama dag og ný könnun Gallup á fylgi flokka sýndi að Vinstri græn mælist með 4,7 pró­sent fylgi, sem myndi þýða að flokk­ur­inn dytti út af þingi ef kosið yrði í dag. Það yrði í fyrsta sinn í Íslands­sög­unni sem flokkur sitj­andi for­sæt­is­ráð­herra næði ekki inn manni í kosn­ingum. 

Guð­mundur Ingi sagði Vinstri græn eiga að nota næstu miss­eri, í aðdrag­anda kosn­inga sem til stendur að halda á næsta ári, til að „kveikja neist­ann, ræða fram­sæknar hug­myndir og finna rót­tækn­ina.“ Vinstri græn eigi áfram að vera far­vegur breyt­inga í sam­fé­lag­inu og deigla þeirra sem vinni að rétt­láta sam­fé­lagi. „Sex ár í rík­is­stjórn eru fljót að líða en bar­áttan fyrir jöfn­uði, rétt­lát­ari heimi og nátt­úru­vernd er eilífð­ar­verk­efni okkar vinstri grænna, óháð því hvaða rík­is­stjórn situr á hverjum tíma. Hið inn­lenda og alþjóð­lega stór­kap­ítal sér rót­tækum vinstri og rót­tækum græn­ingja­flokki fyrir sífelldum verk­efnum og við veigrum okkur aldrei við því að taka slag­inn.“

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Það eina skynsama sem VG getur gert sér til bjargar er að slíta þessu ríkisstjórnarsamstarfi án tafar. Þetta er blákalt mat, þótt það væri mér að meinalausu, að hann sæti aðeins áfram og hyrfi síðan af þingi.
    0
  • Kári Jónsson skrifaði
    Viðurkenndu mistökin axlaðu ábyrgð og yfirgefðu myrkrakompuna, við látum xD-fólkið aldrei stilla okkur upp við vegg ALDREI kallinn minn.
    0
  • skrifaði
    Það er freistandi en bíræfið að reyna að selja kjósendum þá hugmynd að flokkur sem hefur barist fyrir upprætingu "framandi tegunda" með eiturherferðum á "stórvirkum vinnuvélum en fjórhjólum þar sem öðru verður ekki við komið" sé líklegur til að ástunda sérstaka mannúð gagnvart útlendingum og flóttafólki. Verkin eru ólýgnust og fáir munu láta glepjast fagurgala um að „kveikja neistann, ræða framsæknar hugmyndir og finna róttæknina.“ Eða narratívi um að "Vinstri græn eigi áfram að vera farvegur breytinga í samfélaginu og deigla þeirra sem vinni að réttláta samfélagi". Keisarinn er fatalaus og verðskuldað fylgislaus.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár