Það sem Vinstri græn ætla að gera til að falla ekki af þingi

Það sem Vinstri græn ætla að gera til að falla ekki af þingi

Sama dag og Vinstri græn héldu flokks­ráðs­fund birt­ist könnun sem sýndi að flokk­ur­inn myndi falla af þingi. Á fund­inum voru sam­þykktar álykt­anir þar sem ýmsir mála­flokkar, stýrt af sam­starfs­flokkum Vinstri grænna í rík­is­stjórn, voru harð­lega gagn­rýndir, stuðn­ingi lýst við fram­göngu Svan­dísar Svav­ars­dóttur og gömul stefnu­mál sett aftur á odd­inn.

Í fyrsta sinn síðan á stof­nári sínu rétt fyrir síð­ustu alda­mót mæl­ast Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur, með svo lítið fylgi í könnun hjá Gallup að það myndi ekki nægja til að koma þing­manni að. Einungis 4,7 pró­sent lands­manna segja að þeir myndu kjósa flokk­inn. Fylg­is­hrunið er ekki nýtil­komið. Flokk­ur­inn hefur ekki mælst með meira en 6,1 pró­sent fylgi frá því í fyrra­vor, og ekki mælst með fylgi í tveggja stafa tölu í tæp tvö ár. Staðan fær þó á sig nýjan blæ þegar það blasir við, rúmu ári fyrir næstu kosn­ingar haldi rík­is­stjórnin út kjör­tíma­bilið, að ef kosið yrði í dag myndi það ger­ast í fyrsta sinn í Íslands­sög­unni að flokkur for­sæt­is­ráð­herra myndi falla af þingi.

Flokkur sem mæld­ist stærstur allra mán­uði fyrir kosn­ing­arnar 2017, með tæp­lega 26 pró­sent fylgi, og ákvað, þrátt fyrir að vera sam­kvæmt skil­grein­ingu rót­tækur vinstri flokkur, að mynda óvenju­lega rík­is­stjórn þvert á hið póli­tíska lit­róf eftir þær með því að setj­ast að völdum með þeim tveimur flokkum sem ráðið hafa Íslandi meira og minna frá því að landið fékk full­veldi, miðju­flokknum Framsókn og hægra íhald­inu í Sjálf­stæð­is­flokknum. 

Nú blasir við að fylgi Vinstri grænna er tæp­lega einn fimmti af því sem það var þegar Katrín varð von­ar­stjarna margra kjós­enda á Íslandi, sem von­uð­ust eftir auknum stöð­ug­leika í íslenskum stjórn­málum eftir glund­roða áranna á undan. Það má segja að Katrín og Vinstri græn hafi náð árangri í þeirri við­leitni, enda hefur stjórn hennar, skipuð ofan­greindum flokkum, nú setið í vel á annað kjör­tíma­bil, og varð árið 2021 fyrsta stjórnin til að sitja sem meiri­hluta­stjórn í heilt kjör­tíma­bil frá árinu 2007. 

Fórn­ar­kostn­að­ur­inn hefur þó verið mik­ill. Allir stjórn­ar­flokk­arnir hafa tapað miklu fylgi og allir mæl­ast nú með minna fylgi en þeir hafa nokkru sinni fengið minnst í kosn­ingum. Einungis þriðj­ungur þjóð­ar­innar styður stjórn­ina. Enginn þeirra hefur þó tapað jafn mik­illi til­trú hjá kjós­endum sínum og Vinstri græn, sem standa nú frammi fyrir þeirri bláköldu stað­reynd að ákvörðun um mynda rík­is­stjórn með Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokki geti leitt til þess að flokk­ur­inn legg­ist niður sem stjórn­mála­afl. 

Íhuga stöðu sína en finnst kjósendur ekki sjá veisluna

Viðbrögð Katrínar við könnun Gallup voru tví­þætt. Annars vegar voru þau kunn­ug­leg, og í takti við fyrri við­brögð, þar sem hún sagði í sam­tali við RÚV að vanda­málið virt­ist liggja í því að Vinstri grænum væri ekki að takast að miðla þeim góða árangri sem flokk­ur­inn hefði náð í rík­is­stjórn til kjós­enda. „það er alveg ljóst að við sem teljum að við höfum náð umtals­verðum árangri að það er greini­lega ekki að skila sér til þjóð­ar­innar.“

Blendnar til­finn­ingarFlokks­ráðs­fund­ur­inn var hald­inn í skugga þess að ný könnun sýndi Vinstri græn með svo lítið fylgi að flokk­ur­inn næði ekki inn á þing ef kosið yrði í dag.

Hins vegar sagði Katrín, í ræðu sem hún flutti blað­laust á flokks­ráðs­fundi Vinstri grænna á föstu­dag, að staðan væri þannig að hún, og aðrir sem stýra flokknum, þurfi að íhuga stöðu sína. Þegar hún hefur verið beðin um að skýra þau orð þá hefur for­sæt­is­ráð­herra þó sagt að í þeim felist ekki að hún sé að hugsa um að hverfa úr for­ystu flokks síns.

Flokks­ráð Vinstri grænna fer með æðsta vald flokks­ins milli lands­funda. Þar er staðan mörkuð, og eftir atvikum end­urstillt ef þörf er á. Að minnsta kosti í orði þótt það sé ekki alltaf þannig á borði. 

Fundir ráðs­ins fara fram að vori og snemma hausts á hverju ári. Í fyrra bætt­ist við lands­fundur hjá flokknum milli flokks­ráðs­funda, þar sem helsta for­ystu­fólk, for­maður og vara­for­maður, voru end­ur­kjörin í emb­ætti sín. Það hefur því ekki skort tæki­færi hjá þunga­vigt­ar­fólki í flokknum til að setj­ast niður og ræða stöð­una síð­ast­liðið ár. 

Á lands­fund­inum í fyrra söng annar helm­ingur vand­ræða­skálda fyrir fund­ar­menn lag sem hét „Það gæti verið verra“, með skírskotun til slakrar stöðu flokks­ins í könn­unum. Þá mæld­ist fylgið 7,1 pró­sent. Lagið vakti mikla kát­inu. 

Í ræðu sinni á föstu­dag sló Katrín Jak­obs­dóttir á létta strengi með fylg­is­leysi flokks­ins, sem hafði á því ári sem liðið var frá lands­fundi orðið umtals­vert verra, og minnkað um þriðj­ung. Það væri nú svo slakt að „bara batnað“, sam­kvæmt frá­sögn mbl.is af ræð­unni. Flokk­ur­inn myndi rísa upp eins og Þor­valdur Örlygs­son, sem nýverið vann for­manns­kosn­ingu innan Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands. 

Beinskeytt gagnrýni á stefnu Bjarna

Í ræðu sinni sagði Katrín líka að Vinstri græn þyrftu að taka sam­tal um hvaða skila­boðum hann vildi koma á fram­færi til kjós­enda. Þau skila­boð voru svo form­gerð í álykt­unum sem flokks­ráðið sam­þykkti á fund­inum á laug­ar­dag. Í þetta skiptið voru álykt­an­irnar, að uppi­stöðu, um sam­an­safn af málum sem Vinstri græn hafa haft ofar­lega á stefnu­skrá sinni en ekki náð í gegn í rík­is­stjórn­ar­samt­arfi síð­ustu sex og hálfa árið og hins vegar skörp gagn­rýni á mála­flokka sem sam­starfs­flokkar Vinstri grænna fara með í því rík­is­stjórn­ar­sam­starfi. 

„Frysting fjár­magns eykur aðeins á þján­ingar“
Úr ályktun flokks­ráðs Vinstri grænna um fram­lög til UNRWA

Í almennri stjórn­mála­á­lyktun árétt­aði fund­ur­inn til að mynda að Íslandi yrði að tryggja UNRWA, Flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna í Palest­ínu, fjár­hags­stuðn­ing. „Frysting fjár­magns eykur aðeins á þján­ingar þeirra millj­óna flótta­manna í Palest­ínu sem reiða sig á UNRWA.“ Sá sem tók ákvörðun um að frysta fjár­hags­stuðn­ing til UNRWA er Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og utan­rík­is­ráð­herra. Það gerði hann í jan­úar eftir að Ísraelar sök­uðu hluta starfs­manna stofn­un­ar­innar um að hafa með ein­hverjum hætti átt aðild að árás Hamas á Ísrael þann 7. októ­ber í fyrra. Í sér­stakri ályktun um mál­efni Palest­ínu segir að Ísland eigi ekki að „taka þátt í órétt­mætri hóprefs­ingu ann­arra vest­rænna ríkja sem bitnar á lífs­björg millj­óna almennra borg­ara“ og þess kraf­ist að fram­lögin til UNRWA verði greidd taf­ar­laust.

Vilja hætta brottvísunum Palestínufólks

Málefni Palest­ínu voru flokks­ráð­inu svo hug­leikin að það var ekki ein­ungis fjallað um þau í almennu stjórn­mála­á­lykt­un­inni heldur einnig lögð fram sér­stök ályktun bara um það efni. Þar hvatti fund­ur­inn ráð­herra hreyf­ing­ar­innar til að beita sér enn frekar fyrir aðgerðum til að sam­ein­ing palest­ínskra fjöl­skyldna verði að veru­leika, en rík­is­stjórnin hefur verið harð­lega gagn­rýnd víða fyrir að geta ekki komið fjöl­skyldum sem eru þegar með land­vist­ar­leyfi hér­lendis út af Gaza og til Íslands. Það hafa íslenskir sjálf­boða­liðar hins vegar getað gert. 

Í álykt­un­inni segir að það sé mik­il­vægt að for­ysta og ráð­herrar Vinstri grænna tjái afstöðu flokks­ins með skýrum hætti og að stjórn­völd geri allt sem í þeirra valdi stendur til að ná fólki án tafar af hættu­svæð­inu á Gaza. „Flokks­ráðs­fund­ur­inn krefst þess einnig að þegar í stað verði látið af brott­vís­unum á palest­ínsku flótta­fólki og því veitt vernd á Íslandi. Sjötíu og fimm ára útþenslu­stríði Ísraels gagn­vart nágrönnum sínum ber að for­dæma og bregð­ast við rétt eins og ofríki rúss­neskra yfir­valda gagn­vart sínum nágrönnum. Þá styður flokks­ráð ein­dregið snið­göngu almenn­ings á vörum og þjón­ustu frá Ísrael.“

Gagnrýni á samstarfsráðherra

Fund­ur­inn lýsti yfir áhyggjum af þróun skóla­mála á Íslandi meðal ann­ars með vísun í nið­ur­stöður PISA-könn­un­ar­innar, fagn­aði þeim árangri sem náðst hefur í að draga úr kostn­aði sjúk­linga í íslensku heil­brigð­is­kerfi, en lýsti „áhyggjum af auk­inni áherslu á einka­rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu, kerfi sem á ekki að vera gróða­lind fárra rekstr­ar­að­ila heldur sam­eig­in­legt vel­ferð­ar­kerfi okkar allra.“ Þessari gagn­rýni er beint gegn Ásmundi Einari Daðasyni, sem fer með mennta­mál í rík­is­stjórn­inni, og Willum Þór Þórssyni, heil­brigð­is­ráð­herra, sem hefur leitt þög­ula einka­væð­ingu og auk­inn einka­rekstur í íslensku heil­brigð­is­kerfi á síð­ustu árum og er með frek­ari áform í þá veru.

Í sér­stakri ályktun var afstaðan gegn stefnu­mótun Willums Þórs sér­stak­lega und­ir­strikuð. Þar sagði að það þyrfti að taka þá auknu áherslu sem verið hefur á einka­rekna heil­brigð­is­þjón­ustu á síð­ast­liðnum tveimur árum mjög alvar­lega. „Fund­ur­inn telur að þessu fylgi umtals­verð hætta á til­færslu mannauðs og fjár­muna úr opin­berri heil­brigð­is­þjón­ustu, sem koma muni niður á aðgengi og þjón­ustu heilsu­gæslu og sjúkra­húsa. Með samn­ings­gerð heil­brigð­is­ráð­herra við sér­greina­lækna hefur verið fest í sessi það fyr­ir­komu­lag að þjón­usta þeirra sé óað­gengi­leg öðrum en þeim sem búa á eða nærri höf­uð­borg­ar­svæð­inu.“

Málin sem flokkurinn hefur ekki náð í gegn

Tvö af stærstu málum Vinstri grænna þegar þau lögðu upp í stjórn­ar­sam­starfið árið 2017 voru að koma á kopp­inn mið­há­lend­is­þjóð­garði á Íslandi og breyt­ingum á stjórn­ar­skrá. Hvorugt hefur gengið hingað til, þrátt fyrir að hafa verið í stjórn­ar­sátt­mála, vegna and­stöðu sam­starfs­flokka Vinstri grænna í rík­is­stjórn. 

Í almennu stjórn­mála­á­lykt­un­inni er kallað eftir því að „stofn­aður verði þjóð­garður á mið­há­lendi Íslands og sunn­an­verðum Vest­fjörðum til verndar víð­ernum og líf­breyti­leika“ og Alþingi afgreiði „til­lögur til breyt­inga á stjórn­ar­skrá sem hafa verið boð­aðar af for­sæt­is­ráð­herra og byggja á vinnu und­an­far­inna ára.“ 

Þá eru ótalin mál á for­ræði ráð­herra Vinstri grænna sem hafa verið í miklum ágrein­ingi milli stjórn­ar­flokk­anna, sér­stak­lega milli Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks. Um er að ræða hita­mál sem heyra undir mat­væla­ráðu­neytið, sem Svandís Svav­ars­dóttir stýrir vana­lega. Svandís er í veik­inda­leyfi sem stendur eftir að hafa greinst með krabba­mein og for­sæt­is­ráð­herra stýrir ráðu­neyti hennar á meðan. 

Fullum stuðningi lýst við ákvörðun Svandísar

Tilkynnt var um veik­inda­leyfið sama dag, 22. jan­úar, og til stóð að leggja fram van­traust­s­til­lögu á Svandísi vegna með­höndl­unar hennar á málum tengdum hval­veiðum sem óljóst var hvort ýmsir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks ætl­uðu að verja hana gagn­vart. Flokks­ráðs­fund­ur­inn lýsti yfir ein­dregnum stuðn­ingi við þá áherslu Svan­dísar að standa með lögum um vel­ferð dýra við veiðar á hvölum. „Flokks­ráðs­fund­ur­inn styður mat­væla­ráð­herra í að færa lög um hval­veiðar til nútím­ans og áréttar í því sam­hengi stefnu Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs að ekki eigi að leyfa þær.“

SamþykktFlokks­ráðs­fund­ur­inn studdi ákvörðun Svan­dísar Svav­ars­dóttur sem leiddi næstum til þess að van­traust­til­laga var lögð fram gegn henni. Hann studdi líka áherslur hennar um breytta lög­gjöf í fisk­eldi og sjáv­ar­út­vegi, sem eru afar umdeildar inn í rík­is­stjórn.

Það voru þó ekki ein­ungis hval­veiði­mál sem gerðu Svandísi óvin­sæla á meðal sumra sam­ráð­herra sinna, og þing­manna úr þeirra flokkum. Hún hefur líka unnið mark­visst að því að breyta lög­gjöf í kringum sjáv­ar­út­veg, undir merkjum Auð­lind­ar­innar okkar, en þær til­raunir hafa mætt mik­illi and­stöðu útgerð­ar­manna og ýmissa valda­mik­illa aðíla innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins sér­stak­lega. Þá hafa áform hennar um að sníða skýr­ari ramma utan um fisk­eldi á Íslandi einnig mætt mót­stöðu innan rík­is­stjórnar. Í ályktun Vinstri grænna nú er stuðn­ingi lýst yfir við öll þessi mál Svan­dísar. Þqar er lagt til að lög um hval­veiðar verði end­ur­skoðuð og sagt að það sé „ löngu orðið tíma­bært að Alþingi taki raun­veru­lega afstöðu til hval­veiða.“ Þar er kallað eftir því að frum­varp um breyt­ingar á ramm­anum utan um fisk­eldi verði að lögum og að vinnu við Auð­lind­ina okkar verði lokið og laga­frum­varp lagt fram.

„Markvissar aðgerðir gegn stéttskiptingu og fátækt“

Vinstri græn hafa verið gagn­rýnd, innan og utan frá, á síð­ustu árum fyrir að gefa of mikið eftir að grunn­gildum sínum sem vinstri flokkur með sér­stak­lega rót­tækar áherslur í umhverfis- og jafn­rétt­is­málum í skiptum fyrir völd í þeirri rík­is­stjórn sem nú situr. 

Flokk­ur­inn not­aði tæki­færið á föstu­dag til að reyna að leiða þeir áherslur aftur fram með skýrum hætti. Í almennu stjórn­mála­á­lykt­un­inni segir að stjórn­völd eigi að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, og tryggja þannig for­sendur fyrir verð­bólgu og stýri­vexti til að lækka, með félags­legum aðgerðum. „Sérstök áhersla verði á að styðja við fólk á hús­næð­is­mark­aði, auka fram­boð á leigu­í­búðum og styðja við barna­fjöl­skyldur og tryggja þannig betur lífs­gæði fólks­ins í land­inu. Alþingi getur stigið mik­il­vægt skref sem spara mun heim­il­unum millj­arða króna í ónauð­syn­leg útgjöld með sam­þykkt frum­varps um inn­lenda greiðslu­miðlun.“

Þá ályktaði fund­ur­inn að brýnt væri að stjórn­völd myndu ráð­ast „í mark­vissar aðgerðir gegn stétt­skipt­ingu og fátækt“, sér­stak­lega barna, meðal ann­ars með því að gera skóla­mál­tíðir gjald­frjálsar, lýst var yfir „áhyggjum af því bakslagi sem sést hefur víða um heim í jafn­réttis- og kven­frels­is­málum“ og áréttað „að jafn­vægi þarf að vera milli lofts­lags­að­gerða og nátt­úru­verndar og að for­gangs­raða eigi orku til inn­lendra orku­skipta“.

Vilja sjálfstætt umhverfisráðuneyti

Gagnrýni innan flokks hefur ekki síður verið vegna þessa að Vinstri græn gáfu eftir umhverf­is­ráðu­neytið við síð­ustu stjórn­ar­myndun og eft­ir­létu Sjálf­stæð­is­flokknum það. Ekki nóg með það heldur var ráðu­neytið sam­einað orku­mála­ráðu­neyt­inu. Með því voru mála­flokk­arnir tveir sem í huga margra umhverf­is­vernd­ar­sinna eru and­stæðir pólar, sá sem snýr að orku­öflun og sá sem snýr að því að láta nátt­úr­una njóta vafans, komnir í eina sæng undir stjórn Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar. 

Ljóst er að þessi ráð­stöfun situr í flokks­fólki. Á fund­inum var sam­þykkt ályktun um mik­il­vægi þess að hafa sjálf­stætt starf­andi umhverf­is­ráðu­neyti í Stjórn­ar­ráði Íslands. “Í slíku ráðu­neyti er mik­il­vægt að halda skyldum mála­flokkum saman þ.m.t. allt sem varðar umhverf­is­mál, vernd og end­ur­heimt vist­kerfa, vernd nátt­úru­minja, frið­lýs­ingar svæða, lofts­lags­mál og vernd líf­breyti­leika“.

Áhugi Vinstri grænna á líf­breyti­leika nær raunar lengra. Flokks­ráðs­fund­ur­inn fól þing­flokki flokks­ins að útfæra til­lögu um stofnun líf­breyti­leika­ráðs. „Ráðið skal vera sjálf­stætt starf­andi og veita stjórn­völdum ráð­gjöf og aðhald við eft­ir­fylgni þeirra skuld­bind­inga og mark­miða sem stjórn­völd hafa sett sér varð­andi líf­breyti­leika. Horfa má til reynslu Lofts­lags­ráðs sem sinnir sam­bæri­legu hlut­verki innan stjórn­sýslu lofts­lags­mála.“

Kjósa
69
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Omar Sigurjónsson skrifaði
    VG var með þetta í hendi sér, gàtu slitið ríkissstjórnarsamstarfinu í haust en àjvàðu að taka sjénsinn en nú er það orðið of seint, þau vissu hvert stefndi en gerðu ekkert, að skjóta sig viljandi í bàðar fætur er glórulaust.
    4
  • Hjördís Heiðrún Hjartardóttir skrifaði
    Illa fer þarna saman mál og mynd. Öll loforð svikin, Íslandsbankasalan látin óátalin, þagað um gróðavæðingu heilbrigðis og öldrunarþjónustu o.s. frv. o.s.frv. ég get alls ekki munað eftir neinu jákvæðu að segja um VG síðustu ár. Allt virðist gefið eftir fyrir ráðherrastólana. Ég tók þátt í að stofna þennan flokk, en orðið ansi langt síðan ég hef kosið hann og virðist útséð um að það gerist nokkurn tíman aftur.
    6
  • Valtýr Kári Finnsson skrifaði
    Ef að Katrín og vinstri-grænir mundu sjá til þess að Bjarni Ben og félagar hans yrðu sóttir til saka fyrir Íslandsbankaránið. Sækja þá peninga sem var stolið frá Íslensku þjóðinni. Og koma í veg fyrir að Þórdís og sjálftökuliðið steli því sem eftir er ... þá mundi ég alla vegana íhuga að kjósa þau aftur.

    En það vita allir að það mun aldrei gerast. Og því vona ég að þessi samtíningur af svikurum og lygurum hverfi af þingi í næstu kosningum, og þurkist af yfirborði jarðar!
    5
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Megi þessi svika-hreyfing hverfa, í eitt skipti fyrir öll, niður í hyldýpi gleymskunnar. Það er alveg sama hvaða mál hún "setur á oddinn", ég myndi aldrei kjósa hana. Aldrei!

    Vonandi fer Katrín Jakobsdóttir af sviði þjóð- og stjórnmála og snýr sér að einhverju allt öðru í framtíðinni.
    5
  • Bryndís Dagbjartsdóttir skrifaði
    Of lítið og of seint. Ályktanir eru eitt en verkin verða að fylgja og það er vandamálið hjá öllum flokkum að efndir skortir alltaf. Ég tel mig með ágætis minni og man samt ekki í svipinn eftir einu einasta stefnumáli þessara ríkisstjórnarflokka sem hefur bætt hag hins almenna íslendings, allt hefur miðað að því að bæta hag hinna best settu.
    11
  • Kári Jónsson skrifaði
    XV-fólkið hefur GÚFFAÐ í sig allar mögulegar og ómögulegar skítaklessur Valhallar síðastliðin 6ár og látið sér vel líka, ráðgjafarnir Hégómi, Hroki, Þrælslund og Hræsni hafa verið tíðir gestir hjá ráðherrum xV og ráðleggja núna þegar xV er rúið öllu trausti kjósenda sinna að xV skerpi á stefnumálum sínum og fyrri sig ábyrgð á gjörðum sínum. Ókeypis ráð til formanns og þingflokks REKIÐ RÁÐGJAFANNA tafarlaust pantið tíma á Bessastöðum og slítið ríkisstjórninni strax í dag, þá gæti verið von um 5% fylgi í kosningunum.
    21
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár