Þögul einkavæðing Willums Þórs á heilbrigðiskerfinu
Íslenska heil­brigð­is­kerfið á tíma­mótum Íslenska heil­brigð­is­kerfið stendur á tíma­ótum þar sem æ fleiri aðgerðir hafa verið færðar frá sjúkra­húsum lands­ins og yfir til einka­fyr­ir­tækja eins og Klíník­ur­innar. Þeir sem leiða þessar breyt­ingar eru Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra og Sigurður Helgi Helgason, for­stjóri Sjúktra­ygg­inga Íslands.

Þögul einkavæðing Willums Þórs á heilbrigðiskerfinu

Einka­væð­ing í heil­brigð­is­kerf­inu hefur verið stór­aukin á síð­ustu árum í gegnum Sjúkra­trygg­ingar Íslands. Til stendur að ganga lengra í þeim efnum sam­kvæmt heil­brigð­is­ráð­herra, Willum Þór Þórssyni. Í miðri þess­ari umræðu er einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tækið Klíníkin. For­stjóri Land­spít­al­ans, Runólfur Pálsson, hefur áhyggjur af áhrif­unum á rík­is­rekin sjúkra­hús og bendir á skort á eft­ir­liti með einka­rekstr­inum.

Síð­ast­liðið vor, eftir að Sigurður Helgi Helgason hafði tekið við for­stjóra­starf­inu hjá Sjúkra­trygg­ingum Íslands (SÍ), var útistand­andi mál þar gegn lækni hjá einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­inu Klíník­inni. Lækn­ir­inn var tal­inn hafa ofrukkað stofn­un­ina, og þar með íslenska ríkið, um tugi millj­óna króna og látið ófag­lærða starfs­menn vinna verk sem lækn­ir­inn átti að sjá um. Þetta herma upp­lýs­ingar Heim­ild­ar­innar.

„Það er fyllsta ástæða til að hafa meira eft­ir­lit með þeirri þjón­ustu sem greitt er fyrir úr opin­berum sjóðum á Íslandi.“
Runólfur Pálsson,
for­stjóri Land­spít­al­ans

Eitt af því sem slík mál geta leitt til er að Sjúkra­trygg­ingar Íslands krefj­ist end­ur­greiðslu frá við­kom­andi ein­stak­lingi eða fyr­ir­tæki og slíti jafn­vel samn­ingum við þessa aðila þannig að þeir geti ekki sinnt heil­brigð­is­þjón­ustu með kostn­að­ar­þátt­töku rík­is­ins. Umrætt mál er ekki það fyrsta sem komið hefur upp innan Sjúkra­trygg­inga Íslands sem varðar gjald­töku Klíník­ur­innar, sam­kvæmt heim­ildum. Ekkert hefur komið …

Kjósa
52
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Klíníkin er viðbjóður. Nú ríður á að styrkja almannakerfin okkar, ekki afhenda þau gróðafiklum á markaði. Einkavæðing er komin vel á veg með að rústa heilbrigðis- og velferðarkerfum þjóðarinnar, sem og fleiri grunnkerfum, svo sem orkuveitum. Við þurfum ekki bara nýja stjórnarskrá, við þurfum beint lýðræði à la Sviss, til að standast áhlaup og árásir fyrrnefndra gróðafíkla.
    0
  • Einar Magnusson skrifaði
    Bestu sérfræðiþekkingu í heilbrigðismálum á Íslandi er að finna á landspítalanum. Betur færi því á því að fela spítalanum utanumhald á biðlista aðgerða og jafnframt hugsanlega útvistun eða útboð aðgerða í stað Sjúkratrygginga. Með öðrum orðum að framkvæmdin sé á forsendum opinberra heilbrigðisstofnana þar sem bestu þekkinguna er að finna og lýðheilsa í fyrirrúmmi fremur en hagnaðardrift. Þannig er þetta gert annars staðar á Norðurlöndum og þannig næðist betri sátt í málinu.
    3
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Hvernig er það hægt að kalla þennan viðbjóð einkavæt framtak ?
    Þegar þessir auðrónar og gróðrapungar fá öll gjöld greidd af (OKKUR). ríkinu ?
    Hvert er einka framtakið, að oppna skúr með nafnspjaldi LÆKNASTOFA ?
    Á ummælakerfinu er talað um að hér á landi sé komið eitthvert allsherjar slaufunnar menning í gangi.
    En hverrs vegna hefur múgurinn ekki slaufað þessari glæpsamlegu aðför að hinu íslenska þjóðfélagi.
    Allt í nafni FRJÁSHYGGLUNAR stefnu skipulagðra glæpa hyskis sjálfstæðisflokksins
    3
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Það er himin og haf á milli einkavæðingar og einkarekstur. En staðreyndin er sú að heilbrigðiskerfið hefur farið hægt og sígandi niðurávið síðan helmingaskiptaflokkarnir ákváðu að ræna íslenska þjóð og seldu lands- og Búnaðarbankann. Ástæðan er þessi: Arður af bönkunum, sjávarútveginum, pósti og síma, fóru í að greiða fyrir velferðarkerfið okkar.
    Willem gerir vel með því að greiða fyrir því að fátækt fólk geti líka fengið nýjan lið ef þörf er á.
    Offita er sjúkdómur og það ætti að vera hagkvæmt fyrir ríkið að hjálpa fólki til að vinna á því með aðgerð ef hennar er þörf.
    Fólk sækir aðstoð þar sem hana er að finna og ég myndi vilja fá úttekt Heimildarinnar á rekstrarreikningi Landspítala Háskólasjúkrahúss líka til að gera mér upp skoðun á hvað er hvurs og hvurs er hvað. Allir þeir læknar sem eru á launum hjá LSH og eru síðan með einkastofu út í bæ.
    2
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    UFF SKAMMASTU THIN WILLUM OG THEIR SEM TENGJAST THESSUM SORA.
    THETTA ER BARA BROTA BROT AF SPILLINGUNNI SEM VIDGENGST.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Klíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkratryggingar Íslands svara ekki hvort opnuð hafi verið eftirlitsmál gegn Klíníkinni
FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar Íslands svara ekki hvort opnuð hafi verið eft­ir­lits­mál gegn Klíník­inni

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands hefur ekki svarað spurn­ingum sem Heim­ildin sendi henni fyrir tveimur mán­uðum síðan. Engin svör hafa borist um af hverju spurn­ing­unum hefur ekki verið svarað. Meðal spurn­inga er hvort Sjúkra­trygg­ingar Íslands hafi opnað eft­ir­lits­mál gegn einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­inu Klíník­inni líkt og Heim­ildir herma.
Willum opnar á meiri einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu: „Þannig aukum við skilvirkni“
SkýringKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Willum opnar á meiri einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu: „Þannig aukum við skil­virkni“

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra svarar spurn­ingum um einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu með kostn­að­ar­þátt­töku rík­is­ins. Einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tækið Klíníkin hefur í auknum mæli fengið til sín aðgerðir sem áður voru bara fram­kvæmdar á rík­is­reknum sjúkra­húsum. Skriður hefur kom­ist á þessa einka­rekstr­ar­væð­ingu eftir að Willum Þór tók við emb­ætti heil­brigð­is­ráð­herra.
Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu: Framlengja umdeildan samning við Klíníkina á grundvelli aðgerðareynslu
FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Einka­væð­ing í heil­brigð­is­kerf­inu: Fram­lengja umdeildan samn­ing við Klíník­ina á grund­velli aðgerð­a­r­eynslu

Sjúkra­trygg­ingar Íslands ætla að fram­lengja samn­ing um lið­skipta­að­gerðir sem gerður var í mars við Klíník­ina og Cosan. Samn­ing­ur­inn mun byggja á því hversu margar aðgerðir þessi fyr­ir­tæki náðu að gera á þessu ári. Klíníkin gerði langstærstan hluta þeirra 700 aðgerða sem gerðar voru með kostn­að­ar­þátt­töku Sjúkra­trygg­inga Íslands og munu því fá stærstan hluta af þessum aðgerðum.
Nýsköpun í heilbrigðiskerfinu og tengsl rikisstjórnarinnar og Klíníkurinnar
SkýringKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Nýsköpun í heil­brigð­is­kerf­inu og tengsl rikis­stjórn­ar­innar og Klíník­ur­innar

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir nýsköp­un­ar­ráð­herra tala með sam­bæri­legum hætti um mik­il­vægi nýsköp­unar fyrir heil­brigð­is­kerfið. Á sama tíma liggur fyrir að fram­kvæmda­stjóri Klíník­ur­innar, Sigurður Ingi­bergur Björns­son, er að taka við rekstri dótt­ur­fé­lags hjá Klíník­inni sem mun sér­hæfa sig í nýsköpun í heil­brigð­is­þjón­ustu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár