Sló lán til þess að bjarga mæðgunum

Til þess að koma dætrum sínum og eig­in­konu úr lífs­hættu á Gazasvæðinu þurfti Hani Al Zainy að taka lán hjá vinum og ætt­ingjum upp á tæpar þrjár millj­ónir króna. Þær komu til Íslands í gær og þar með lauk tveggja ára aðskiln­aði.

Sló lán til þess að bjarga mæðgunum
Fjöl­skyldan Dæturnar sögð­ust ham­ingju­samar að vera loks­ins komnar til Íslands og pabba síns. Mynd: Golli

Hani Al Zainy stóð með fjóra blóm­vendi í fang­inu fyrir framan mót­t­töku­hliðið í Leifs­stöð og beið. Hann var bros­andi en stressið leyndi sér ekki. Vélin með eig­in­konu hans og þremur dætrum sem hann hafði ekki séð í tvö ár var lent en hvergi bólaði á mæðg­unum. 

Mín­út­urnar liðu, „hver eins og klukku­stund“ sagði Moamen Awad, vinur Hanis sem beið með honum ásamt tveimur öðrum. Þeir eru allir frá Palest­ínu og eiga allir ætt­ingja og vini á Gazasvæðinu sem búa við stríðs­á­stand. 

Svo voru þær allt í einu komnar, Abeer og dæt­urnar þrjár: Ameera – ell­efu ára – Adeal – sex ára – og Howayda – fjög­urra ára. Þær léku sér í snjónum fyrir utan flug­völl­inn á leið­inni út. 

Með þeim var Sigrún Johnson, sjálf­boða­liði sem tók sér launa­laust leyfi úr vinnu til þess að aðstoða fólk af Gaza sem er með íslenskt dval­ar­leyfi. 

Ævilöng skuldbinding

En það kost­aði sitt að koma fjöl­skyld­unni hingað til lands, nánar til tekið það sem nemur um 2,7 millj­ónum króna. Það er fjár­hæð sem Hani fékk lán­aða frá vinum og ætt­ingjum sínum. 

„Það er nátt­úru­lega ævi­löng skuld­bind­ing að borga það lán til baka,“ sagði Sigrún. 

ÞakklætiEin stúlkn­anna rétti Sigrúnu blóm­vönd á vell­inum.

Mæðgurnar voru ekki hluti af þeim hóp sem sjálf­boða­lið­arnir náðu út þar sem Hani greiddi sjálfur fyrir för þeirra. Sjálf­boða­lið­arnir ætla samt að reyna að aðstoða Hani við að greiða skuld­ina til baka, en þeir hafa safnað um 30 millj­ónum nú þegar til þess að greiða fyrir för íslenskra dval­ar­leyf­is­hafa sem eru fastir á Gazasvæðinu. 20 til 30 millj­ónir þarf til við­bótar til þess að koma öllum sem hafa íslenskt dval­ar­leyfi og eru á Gaza þaðan. Sjálf­boða­lið­arnir hafa gagn­rýnt íslensk stjórn­völd harð­lega fyrir að taka ekki málin í sínar eigin hendur og segja að þau þyrftu ekki að greiða slíkar fjár­hæðir til þess að koma fólk­inu af svæð­inu.

Sigrún komin aftur heim til tveggja ára dóttur

Sigrún fór af stað til Kaíró með Semu Erlu Serdaroglu viku síðan. „Ég bara gat ekki setið heima hjá mér með brotið hjarta,“ sagði Sigrún. „Mér fannst það sið­ferði­leg skylda okkar að gera eitt­hvað ef við getum. Ég setti vinn­una á hold, tók mér launa­laust leyfi og er með vinnu­veit­endur sem sýna því skiln­ing. Ég skyldi fjöl­skyld­una eftir, tveggja ára dóttur sem saknar mömmu sinnar. Ég er mjög fegin að vera komin aftur.“ 

Á vell­inum tók faðir hennar, Agnar Johnson á móti henni. 

„Ég er mjög stoltur af henni og þeir sem koma að máli við mig segja það líka: Þú hlýtur að vera mjög stoltur af dóttur þinni,“ sagði Agnar. 

Hani, Abeer og stúlk­urnar þeirra þrjár lögðu af stað af flug­vell­inum í litlu íbúð­ina sína fljót­lega eftir að mæðgurnar lentu. Þau eru að leita sér að stærra hús­næði, nú þegar fjölgað hefur svo mikið í hópnum. Og Hani, sem starf­aði við hjúkrun á spít­ala á Gazasvæðinu áður en hann kom hingað til lands, er far­inn að læra íslensku og dreymir um að kom­ast í háskóla­nám hér á landi. 

Vona að stjórnvöld geri sitt

Áfram bíða þó tugir fjöl­skyldu­með­lima fólks sem fast er á Gazasvæðinu eftir svörum hér á Íslandi. Áfram munu sjálf­boða­lið­arnir reyna sitt besta við að koma þeim úr lífs­hættu­legum aðstæðum. 

„Við vonum bara það besta og vonum að íslensk stjórn­völd nái þess­ari rest út,“ segir Sigrún. 

Kjósa
67
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Júlía Björnsdóttir skrifaði
    Takk elsku sjálfboðaliðar allir fyrir ykkar frumkvæði og mikla dugnað, þið sýnið sannarlega fallegt fordæmi !
    Mér er spurn, hvað er eiginlega þessi þriggja manna hópur frá Utanríkisráðuneytinu að gera þarna úti ? það heyrist ekkert frá þeim! Er þetta sýndarmennska ráðuneytisins, verið að róa okkur hér heima, slá ryki í augu fólks ? Augljóslega vilja ráðamenn okkar ekkert gera og þeirra er svo sannarlega skömmin að halda að sér höndum allan þennan tíma og þykjast vera að vinna í málum sem séu svo "flókin" !!
    4
  • Hadla Helgadottir skrifaði
    Ríkisstjórnin má skammast sín fyrir aumingjadóminn, já eða kynþáttahatrið...
    13
  • HSG
    Helga Salbjörg Guðmundsdóttir skrifaði
    Þvílíkar hetjur!!
    13
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár