Börnin sem bíða á Gaza

Heim­ildin hefur rætt við aðstand­endur rúm­lega sjö­tíu ein­stak­linga sem fastir eru á Gaza, for­eldra sem ótt­ast um afdrif barna sinna og börn sem ótt­ast um líf for­eldr­anna. Algjör örvænt­ing birt­ist hjá þeim öllum, sem eru á Íslandi og þurfa að leggja líf fjöl­skyldu­með­lima í hendur íslenskra stjórn­valda. Auk þess að biðla til stjórn­valda að ná fjöl­skyldum þeirra heim, biðla þau til þeirra að gera ekki grein­ar­mun á íslenskum börnum og palest­ínskum.

Móðir barns í lífs­hættu eftir árásir Ísra­els­hers, faðir þriggja ára lang­veikrar stelpu og frændi sem sér um systk­ina­börn sín sem þrá ekk­ert heitar en að fá for­eldra sína til Íslands. Faðir ell­efu mán­aða gam­als barns, faðir tíu mán­aða barns, sjö barna faðir, eig­in­maður sem upp­lifir sig ekki lif­andi án eig­in­konu sinnar sem er föst á Gaza.

Á síð­ustu vikum hefur Heim­ildin rætt við fólk um hvernig það er að eiga fjöl­skyldu­með­limi sem eru fastir á Gaza, búa við stríð, hungur, vatns­skort og stöðugan ótta. Hvernig til­finn­ing það sé að bíða þeirra hér heima á Íslandi. Þetta eru fjöl­skyldu­með­limir rúm­lega sjö­tíu ein­stak­linga sem hafa fengið sam­þykkt dval­ar­leyfi fyrir fjöl­skyld­una sína á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar. Sumir sóttu um slíkt leyfi árið 2022 en geta en ekki enn tekið utan um fjöl­skyldu sína.

Þetta eru sögur þeirra.

„Pabbi, ekki leyfa okkur að deyja“

„Má ég koma til þín, gerðu það?“ sagði Mohammed Albayyouk í sím­ann við pabba sinn úr tjaldi í Rafah. Hann bað hann um að hlífa sér við árásum Ísra­els­hers, hann bað pabba sinn um að hlífa sér við dauð­anum. „Pabbi, gerðu það, ekki leyfa okkur að deyja, ekki leyfa þeim að drepa okkur,“ sagði Mohammed litli, sem er þriggja ára, við Imad Albayyouk, pabba sinn, sem er hér á Íslandi ásamt þrettán ára dóttur sinni að bíða eftir Mohammed, systk­inum hans og móður. Imad gat ekki annað en grátið við að heyra son sinn segja þetta.

Mohammed litliYngsti sonur Imad heitir Mohammed og er þriggja ára gam­all.

Imad reyndi hvað hann gat að koma börn­unum sínum og eig­in­konu á lista landamæra­stöðv­ar­innar í Rafah við landa­mæri Egypta­lands en það kostar tæpar 700 þús­und fyrir hvern full­orð­inn ein­stak­ling að kom­ast yfir á eigin vegum og um 350 þús­und krónur fyrir hvert barn. Það hefði kostað Imad þrjár og hálfa milljón króna að koma þeim yfir landa­mærin til Egypta­lands og hann átti þá upp­hæð ekki.

Sömu sögu má segja af Madji Abdaljawwad, sem fór nýlega til Egypta­lands til þess að reyna á eigin spýtur að koma fjöl­skyld­unni sinni, þremur börnum og konu, út af Gaza. Fyrsta verk við komu hans til Kaíró, höf­uð­borgar Egypta­lands, var að óska eftir því við utan­rík­is­ráðu­neyti Egypta að fjöl­skyldu hans yrði komið yfir landa­mærin og í skjól. Honum var tjáð að það myndi kosta hann 1,7 millj­ónir króna að koma þeim yfir. Upphæð sem hann á ekki.  

„Ég mun ekki fara aftur til Íslands án eig­in­konu minnar og barn­anna þriggja. Það er nóg að ég sé búinn að missa móður mína og frænda. Ég ætla ekki að missa þau líka,“ sagði Madji við blaða­mann Heim­ild­ar­innar frá Egypta­landi.

Úr einu tjaldi í annað

Mohammed litli, sonur hans Imad, hefur þurft að flytja tjalda á milli frá því að stríðið hófst fyrir fjórum mán­uðum síðan. Bæði hefur hann þurft að flytja á milli tjalda með fjöl­skyldu sinni á leið þeirra frá Khan Younis, þar sem þau áttu heima áður en stríðið byrj­aði, til Rafah þar sem þau eru núna og á milli tjalda í Rafah-borg. 

Rafah-borg, sem áður hýsti 275 þús­und íbúa, hýsir nú yfir eina og hálfa milljón Palest­ínu­manna, eða um 65 pró­sent af öllum íbúum Gaza, og ásýnd borg­ar­innar ein­kenn­ist af þeim fjölda tjald­búða sem settar hafa verið upp og eyði­legg­ingu vegna loft­árása. Sum tjöldin sem finna má í Rafah eru gerð úr engu öðru en gólf­mottum eða öðru efni sem til­tækt var til að búa til ein­hvers konar skjól fyrir veðri og vindum. Snákar og önnur skrið­dýr eiga greiða leið inn í þau eins og rign­ingin og kuld­inn. Tjöld úr betri efni­viði eru seld dýrum dómi í Rafah á meðan tjöld sem hjálp­ar­stofn­anir hafa reynt að koma inn á svæðið ásamt vatni, mat og öðrum nauð­synjum, sitja ónotuð í vöru­geymslum hinum megin við landa­mærin í Egypta­landi þar sem Ísrels­her hleypir þeim ekki í gegn. Þeirra afsökun er að fólkið sem er í Rafah, sem býr við hungur og aðstæður sem sam­kvæmt full­trúa Sam­ein­uðu þjóð­anna eru ekki ætl­aðar mann­eskjum, gæti notað tjald­stangir sem vopn. 

Aðstæður í tjald­búðum í RafahMyndin var tekin þann 15. febr­úar og á henni má sjá mann reyna að sópa út drullu eftir mikla rign­ingu.

Fólkið sem býr í Rafah býr við stans­lausan ótta um að Benjamin Net­anjahú láti verða af hót­unum sínum að senda land­göngu­liða inn í borg­ina til þess að rýma hana, borg­ina sem átti að vera síð­asti öruggi stað­ur­inn á Gaza. Þetta vita fjöl­skyldu­með­limir íslensku dval­ar­leyf­is­haf­anna sem eru föst í Rafah.

„Það sem hræðir mig mest er að Ísra­els­her fari inn á Rafah. Ef fjöl­skyldan mín er ekki komin út fyrir það, þá kom­ast þau aldrei út,“ segir Imad Albayyouk. 

„Pabbi, gerðu það, ekki leyfa okkur að deyja, ekki leyfa þeim að drepa okkur“

Of ungur til að fá dvalarleyfi

Imad sótti um dval­ar­leyfi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar fyrir pabba sinn og systur líka en fékk neitun. Pabbi hans er 66 ára og til þess að falla undir skil­grein­ingu á því hverjir eiga rétt á dval­ar­leyfi á þessum for­sendum þurfa for­eldrar að verða orðnir 67 ára. Systkini upp­fylla ekki skil­yrði um fjöl­skyldu­sam­ein­ingu heldur. Yasmin Albayyouk, systir Imad, greind­ist með krabba­mein tveimur mán­uðum áður en stríðið hófst. Hún býr með Mohammed og systk­inum hans, mömmu þeirra og pabba sínum í tjaldi í Rafah og fær enga með­ferð við krabba­mein­inu, hvorki lyf né aðhlynn­ingu. Imad segir að þegar hún hafi leitað á sjúkra­hús til að fá aðstoð sé henni tjáð að því miður hafi þeir alvar­lega slös­uðu og deyj­andi for­gang. „Hún er bara í tjaldi að deyja,“ útskýrir Imad. 

Dóttir hans, Samira, sem er hér á Íslandi með pabba sínum, er þrettán ára gömul. Hún er því í grunn­skóla en gengur illa að stunda námið vegna kvíða yfir því að vita af mömmu sinni og litlu systk­inum í þessum aðstæðum. Imad útskýrir að um dag­inn hafi Samira hringt í mömmu sína til að heyra rödd hennar en þegar mamma hennar svar­aði var hún á hlaupum undan sprengjuregni ásamt börnum sínum, Samira heyrði í gegnum sím­ann í sprengj­unum falla á jörð­ina. Imad gat ekk­ert sagt við Samiru fyrir tárum. 

Imad reynir að hugga dóttur sína, reynir að fá hana til að ein­beita sér að nám­inu, reynir hvað hann getur að hún, ver­andi á Íslandi, geti lifað eðli­legu lífi. Til þess að róa hana hefur hann logið að henni að mamma hennar sé á leið­inni, að íslensk stjórn­völd séu á leið­inni að ná í hana. Það er það sem Samira trúir en Imad veit hvorki hvenær eða hvort þau kom­ist ein­hvern tíma hingað. 

Þau feðgin búa inni á bróður Imad því þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir hefur hann ekki fengið hús­næði eða vinnu ef út í það er farið. 

Sjö börn á Gaza

Strák­arnir hans SalimMyndin af Ibrahim 9 ára, Fayeq 7 ára, Mohammed 5 ára og Khalil 4 ára var tekin tveimur dögum áður en stríðið braust út.

Margir með­limir Albayyouk-fjöl­skyld­unnar búa nú á Íslandi og eru í sömu stöðu og Imad. Salim Albayyok frændi hans á sjö börn og konu á Gaza. Yngsta barnið hans er fjög­urra ára, sonur hans Khalil. Fjögur af sjö börnum hans sem búa nú í tjaldi í Rafah eru 10 ára eða yngri. Tvær eldri stelp­urnar hans, Ghazal sem er þrettán og Talja sem er fjórtán ára eru ekki að upp­lifa stríð eða árásir ísra­elska hers­ins í fyrsta skipti eins og sum af yngri systk­inum þeirra. „Þær þekkja spreng­ingar,“ segir Salim. Hann segir skelfi­legt að vera for­eldri og vita að börnin hans þekki hljóðin í sprengjum eins vel og þau gera. 

„Hún er bara í tjaldi að deyja“

Þær voru ekki nema 10 og 11 ára árið 2021 þegar sprengjum rigndi úr her­þotum Ísra­els­hers í ell­efu daga sam­fleytt. Þegar Antonio Guterres, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, sagði að „ef til er hel­víti á jörðu, þá lifa börnin á Gaza í því“. Þetta „hel­víti“ eins og Guterres lýsti því, var að mati Salim „brand­ari“ miðað við það sem er að ger­ast núna. „Barnið mitt hringir í mig grát­andi því hann vill bara fá ban­ana en ég er ekki með dval­ar­leyfi og get ekki unnið svo ég get ekki sent honum neina pen­inga,“ segir Salim. Hann segir að þegar fjöl­skyldan hans fái ein­hvern mat sé það yfir­leitt í gegnum hjálp­ar­stofn­anir og þess vegna finn­ist honum „hræði­legt“ að Ísland hafi fryst greiðslur til Palest­ínu­flótta­manna­hjálp­ar­innar.

„Land eins og Ísland sem styður öll mann­rétt­indi en svo stöðva þau allt í einu, í miðju stríði, alla hjálp til flótta­manna hjálp­ar­innar. Það er hræði­legt.“ Frændi hans, Jamil, sem sjálfur á fjögur börn sem eru föst á Gaza, lýsir því í sam­tali við Heim­ild­ina að yngsti sonur hans, Mohammed, sem er fimm ára, sé orð­inn „lífs­hættu­lega veikur vegna vannær­ingar“.

í lífs­hættu vegna vannær­ingarYngsti sonur Jamil eldri er í lífs­hættu vegna vannær­ingar.
Samir og TolinPabbi þeirra er hræddur um að missa Samir og Tolin og mömmu þeirra Suzan á hverri stundu.

Þar sem Salim er ekki með dval­ar­leyfi var það 17 ára sonur hans, Firas, sem kom til Íslands sem fylgd­ar­laust barn, sem sótti um dval­ar­leyfi fyrir systk­ini sín og móður á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar. Salim vonar að hann sjálfur fái dval­ar­leyfi sem fyrst.

Ammar Albayyouk á tvö börn föst á Gaza, þau Tolin og Samir en Samir er þriggja ára. Ammar segir börnin sín horfa upp á dauða hverja mín­útu og seg­ist sömu­leiðis viss um að hann gæti misst þau og mömmu þeirra á hverri mín­útu. „Ég er svo hræddur um þau, gerið það hjálpið mér, segir hann.“

Gaza er búið 

Jamil Albayyouk yngri, frændi Jamil og Samil, á eig­in­konu sem er föst á Gaza. Hún heitir Alaa Yousef og er 23 ára. Sjálfur er Jamil 27 ára en hann sótti um dval­ar­leyfi fyrir hana í mars á síð­asta ári og fékk sam­þykkt fyrir einum og hálfum mán­uði síðan. Aðspurður um það hvernig sé að vera svona langt í burtu frá henni á tímum sem slíkum segir hann: „Mér líður eins og ég sé ekki lif­andi án hennar.“

„Ég þakka guði að fjöl­skyldan mín er enn á lífi. En ég veit ekki hvað ger­ist eftir tvær mín­útur, hvort hún lifi næstu mín­útur af.“

Hann segir að það eina sem hann vilji sé að fá hana til sín. „Ég þarf ekki að fá neina frek­ari aðstoð frá stjórn­völdum, bara að fá hana hingað.“ Hann er að vinna í fiski í Keflavík og sáttur við sitt. Síðast þegar hann heyrði í kon­unni sinni lýsti hún því fyrir honum að það væri ekk­ert vatn að finna og eng­inn matur í boði. 

„Svo segir hún mér fréttir, að þessi og hinn séu dánir og þessi hafi verið drep­inn hér og annar þar. Ég veit ekki hvað ég á að segja við hana, þetta er svo skelfi­legt.“

Mamma hans og pabbi búa á Íslandi ásamt fimm systk­inum hans. Bróðir hans, Ahmed, er með honum þegar hann hitti blaða­mann, honum til halds og trausts en Jamil er auð­sjá­an­lega í miklu upp­námi, svo miklu að hann á erfitt með að tjá sig og þá tekur Ahmed við. 

Fordómar ekk­ert miðað við þjóð­ar­morðJamil er til vinstri á mynd­inni og bróðir hans Ahmed til hægri. Þeir segja þá for­dóma sem þeir verða fyrir á Íslandi blikna í sam­an­burði við það er að ger­ast á Gaza.

 Hann á tvö systk­ini sem eru á Gaza og lýsir því hvernig for­eldrum hans líður illa að vita af þeim þar. Hann segir að margir í fjöl­skyld­unni hans séu með sam­þykkta umsókn um dval­ar­leyfi á Íslandi, til dæmis sé einn bróðir hans með umsókn fyrir sína fjöl­skyldu sem er föst á Gaza. „Í þeirra huga er Gaza bara búið. Guð blessi Gaza. Það er ekk­ert líf þar, það er búið að rústa Khan Younis og nú ætla þeir að taka Rafah. Fyrir þau er það ann­að­hvort Ísland eða dauði. Þess vegna eru þau svona mörg að sækja um,“ útskýrir Ahmed Albayyouk, sem verður 24 ára í des­em­ber á þessu ári. 

Fordómar eru ekkert miðað við þjóðarmorð

Hann var því fjórtán ára í stríð­inu á Gaza árið 2014 og seg­ist muna vel eftir því, muna vel eftir þessum 51 degi af eyði­legg­ingu. Sex þús­und sprengjum var varpað á Gaza yfir þessa daga og 1.462 Palest­ínu­menn voru drepnir, þriðj­ungur þeirra börn. „Hundruð palest­ínskra borg­ara voru myrt á eigin heim­ilum, sér­stak­lega konur og börn,“ sagði í yfir­lýs­ingu frá Sam­ein­uðu þjóð­unum í kjöl­far þess. Í máls­höfðun Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir þjóð­ar­morð fyrir Alþjóða­dóm­stólnum í Haag er tekið fram að þján­ing Palest­ínu­manna af hendi Ísra­els­hers eigi sér 75 ára sögu og að hern­aður Ísraels hafi oft, eins og í stríð­inu 2014, beinst að almennum borg­urum og geti þannig ekki verið skil­greindur sem almennur hern­aður heldur sem alls­herjar refs­ing (e. collective pun­is­h­ment) sem lýsi sér meðal ann­ars í því að vernda ekki almenna borg­ara og að í stríð­inu 2014 hafi 18 þús­und heim­ili verið eyðilögð að hluta eða að fullu. 

„Mér líður eins og ég sé ekki lif­andi án hennar“
Lana og HamadPabbi þeirra veit ekki hvort þau séu á lífi en hann hefur ekki heyrt frá þeim í tvær vikur.

Lana, sjö ára dóttir Abdalhay Alfarra, sem er föst á Gaza ásamt móður sinni, þekkir einnig spreng­ingar en hún tengir þær við heilög­u­stu hátíð múslima, Ramadan, því að sögn Abdalhay byrjar Ramadan iðu­lega á skot­hríð frá hernum.  „Þetta stríð er búið að vera í gangi svo lengi, það er fast í minni barn­anna. Þetta mun vera fast í minni þeirra þó þau hafi ekki þroska til að túlka það sem þau muna,“ segir Abdalhay sem veit ekki hvort Lana eða bróðir hennar, Hamad, sem er fimm ára, séu á lífi.

Ahmed segir að þó að þessi tími hafi verið hræði­legur sé hann ekk­ert í sam­an­burði við það sem er að ger­ast núna, það sem sé að ger­ast núna hafi ekk­ert með Hamas að gera heldur sé þjóð­ar­morð, beint að „venju­legu fólki“ eins og hann orðar það. Hann segir þá for­dóma sem hann hefur orðið fyrir á Íslandi sömu­leiðis blikna í sam­an­burði við það sem fólkið á Gaza þarf að þola. „Þegar ég verð fyrir for­dómum þá labba ég bara í burtu. Það eru bara miklu verri hlutir að ger­ast. Þetta er ekki neitt miðað við það.“ 

Hræddur alla daga alltaf

Ahmed Albayyouk vinnur á KFC í Skeif­unni og á meðan hann er í vinn­unni reynir hann hvað hann getur að hugsa ekki um stríðið en „ég ræð ekki við mig“, útskýrir hann. Hann er stans­laust að fylgj­ast með fréttum. „Ég er bara svo hræddur. Ég gæti fengið frétt um það að systir mín sé dáin, bara núna á meðan við erum að tala saman.“ Hann segir mikið lík­am­legt og and­legt álag fylgja því að vera svona hræddur „alla daga, alltaf“.

Þegar Jamil bróðir hans er spurður að því hvort hann nái að leiða frétt­irnar hjá sér, hugsa um eitt­hvað annað eða hvort hann sé sífellt að fylgj­ast með þeim, segir hann: „Ég get ekki einu sinni talað, ég sver til guðs að ég get ekki talað. Ég veit ekki hvað er hægt að segja, hvað á maður að segja þegar maður sér myndir af fótum, hausum, höndum, börnum að deyja, fólki að svelta, þegar maður veit af fólki sem er að borða asna­kjöt, hunda­kjöt, hvað á maður að segja?“ Jamil tekur upp sím­ann til að sýna að hann geti ekki opnað neina sam­fé­lags­miðla án þess að sjá ein­hvern hryll­ing. Hann sýnir blaða­manni myndir af dánum börnum, margar í röð áður en hann leggur sím­ann á borð fyrir framan sig og grefur and­lit sitt í höndum sér. 

„Ég gæti fengið frétt um það að systir mín sé dáin, bara núna á meðan við erum að tala saman.“

Hinn 26 ára Ahmad Al-Shaghanoubi er orð­inn óvinnu­fær af kvíða af því að bíða eftir að fá mömmu sína, pabba sinn, bróður sinn og eig­in­konu sína til Íslands en þau eru öll komin með dval­ar­leyfi hér. „Ég get ekki sinnt vinn­unni, ég geri ekk­ert, ég er bara heima kvíð­inn. Konan mín hringir í mig dag­lega og grætur og ég veit ekki hvað ég á að gera. Ég segi henni að bíða en á meðan við bíðum hérna á Íslandi getum við misst alla sem við elskum.“

Fjöl­skyldan býr í tjaldifjöl­skylda Ahmad býr í tjaldi. Lengst til vinstri á mynd­inni er pabbi hans og fyrir miðju bróðir hans Mousa. Þeir eru báðir með dval­ar­leyfi á Íslandi.

Þrátt fyrir að hafa fengið upp­á­skrifuð svefn­lyf hjá lækni nær hann ekki að festa svefn nema í klukku­stund eða tvær á dag. Hann hætti að vinna eftir að stríðið byrj­aði, hann gat ekki hugsað sér að missa af sím­tali frá þeim á meðan hann var að vinna, auk þess sem svefn­leysið og mat­ar­leysið var farið að hafa of mikil áhrif á getu hans til að ein­beita sér í vinn­unni.

Mahmoud Alsaiqali, sem Heim­ildin ræddi við í des­em­ber, er í svip­aðri stöðu, kvíð­inn og getur lítið borðað eða sofið og hefur þess vegna grennst mikið. Á meðan hann tal­aði við blaða­mann reyndi hann að hringja í kon­una sína og elstu dóttur sína, sem eru fastar á Gaza ásamt þremur öðrum börnum hans, en það kom eng­inn sónn, þær voru utan þjón­ustu­svæðis. 

Mahmmour og börnin hansMahmoud sýndi blaða­manni Heim­ild­ar­innar myndir af börn­unum sínum í des­em­ber síð­ast­liðnum.

„Hann mun deyja ef hann kemst ekki út strax“

Ahmed Murtaja hefur einnig fengið sinn skammt af stríði og eyði­legg­ingu á Gaza en hans eina ósk er að þriggja ára, lang­veika dóttir hans þurfi aldrei að upp­lifa það, þó hann sjálfur muni aldrei gleyma þeirri reynslu, sama hvað hann reyni. Sham Murtaja, dóttir hans, fædd­ist með sjald­gæft heil­kenni sem veldur til dæmis floga­köstum frá fæð­ingu og því þarf hún bæði mikla og reglu­lega lækn­is­að­stoð og lyf til að halda floga­köst­unum í skefjum og til þess að blind­ast ekki en heil­kennið hefur helst áhrif á heila og sjón­taugar. 

Sham MurtajaPabbi hennar vill ekk­ert frekar en að hlífa henni við þeim hörm­ungun sem hann sjá­flur hefur þurft að ganga í gegnum.

Þegar Heim­ildin náði tali af Ahmed sagði hann að hún fengi engin lyf lengur og að hún og mamma hennar byggju í tjaldi í Deir Al Balah. Hann gerði til­raun til að lýsa því hvernig er að ótt­ast svona um kon­una sína og barn á hverjum ein­asta degi. Hann líkir því við að horfa á eftir barn­inu sínu ganga yfir gang­braut á rauðu ljósi, ganga í veg fyrir umferð­ina. Hann sagði mik­il­vægt að stjórn­völd tækju ekki bara mál hans fyrir heldur allra í sömu stöðu. „Ég biðla til stjórn­valda að horfa á Palest­ínu­menn sem fólk. Sem venju­legt fólk sem elskar lífið og vill lifa. Við erum bara venju­legt fólk.“

Fadia Radwan þekkir að hafa áhyggjur af því að eiga lang­veikt barn sem er fast á Gaza og býr í tjaldi en 17 ára strák­ur­inn hennar, Ahmed Radwan, hefur þurft að jafna sig eftir stóra aðgerð, sem hann þurfti að fara í án þess að fá deyf­ingu, á gólfi í tjaldi sem hann deilir með pabba sínum og tveimur systk­inum. „Hann mun deyja ef hann fer ekki út strax. Vatnið er skítugt, mat­ur­inn skítugur, hann sefur á gólf­inu. Það er ekki hreint umhverfi í kringum hann og hann er með mjög veikt ónæm­is­kerfi,“ segir Fadia og útskýrir að ónæm­is­kerfi hans sé veikt vegna þess að þegar hann var tveggja ára hlaut hann svo alvar­lega áverka í árás Ísra­els­hers að það þurfti að fjar­lægja annað nýrað og hluta af lifr­inni. 

Þegar hann særð­ist núna í nóv­em­ber síð­ast­liðnum þurfti Ahmed Radwan að vera í 23 daga á spít­ala og það liðu fimm dagar þangað til hann gat heyrt rödd mömmu sinnar því síma- og inter­net­sam­bandið er svo slæmt en það fyrsta sem hann sagði eftir að aðgerð­inni á honum lauk var að hann vildi fá að heyra rödd hennar. 

Ahmed alvar­lega særður á spít­alaÞegar Ahmed var tveggja ára varð hann fyrir árás ísra­els­hers og það þurfti að taka úr honum annað nýrað og hluta af lifur.

„Ég veit ekki hvað ég á að segja en dag­ur­inn minn fer í að gráta, ég fer ekki út úr hús­inu. Ég sé svo illa því ég er búin að gráta svo mikið.“ 

Segir þeim að vera þolinmóð

Sami shaheen reynir að segja börn­unum sínum fimm, sem hann sótti um dval­ar­leyfi fyrir fyrir ári síðan, að vera þol­in­móð og að Ísland sé á leið­inni að ná í þau. „Þú ert að ljúga, sögðu þau við mig þá og grétu,“ segir hann. Sami hefur ekki séð börnin sín, Ayahu, Islam, Eman, Aeshu og Mohammed, í þrjú ár sem þýðir að sá yngsti, Mohammed, hefur ekki séð pabba sinn síðan hann var tveggja ára. 

Börnin hans SamiAyah 12 ára, Islam 10 ára, Mohammed 4 ára, Eman 15 ára og Aesha 8 ára.

Allt í allt hefur ísra­elski her­inn rænt Sami 120 ætt­ingjum, þar á meðal systur hans og fjórum börnum hennar. Þegar her­inn sprengdi hús fjöl­skyld­unnar í loft upp særð­ust bæði mamma hans og pabbi. Fjöl­skyldan hans bjó í Jabalia-flótta­manna­búð­unum, þeim sömu og voru sprengdar og Bjarni Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra efað­ist um að væri í raun árás. 

Abdalqader J. A. Albhaisi á fjögur börn á Gaza og það yngsta Ann er 5 ára. 

Ann AlbhaisiMyndin af Ann litlu var tekin nokkru áður en stríðið byrj­aði. En fyrir pabba hennar var mik­il­vægt að börnin hans myndu birt­ast eins og þau voru áður en það byrj­aði.

Þreyttur á að ljúga

Naji Assar á þrettán fjöl­skyldu­með­limi sem eru með dval­ar­leyfi á Íslandi en eru föst á Gaza, þar á meðal for­eldra þriggja drengja sem eru á Íslandi með honum og hann sér um á meðan for­eldrar þeirra kom­ast ekki hingað. Naji seg­ist vera orð­inn þreyttur á því að ljúga að litla frænda sínum, Basem, sem er sex ára. Hann upp­lifir að í fimm ár, frá því hann flúði með hann tæp­lega tveggja ára í bak­poka frá Gaza, hafi hann logið að honum. „Ég er orð­inn svo þreyttur á því að ljúga.“

„Ég biðla til stjórn­valda að horfa á Palest­ínu­menn sem fólk.“

Logið að honum í Grikk­landi í flótta­manna­búðum að þeir kæmust þaðan fljótt, en sú varð ekki raunin, logið að honum að þeir væru alveg að kom­ast í skjól þegar þeir lögðu leið sína til Íslands en ferðin var löng, logið að honum að þeir væru alveg að fara að fá kenni­tölu á meðan þeir biðu, logið að honum að mamma hans og pabbi væru alveg að fara að fá sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu, en hann sótti um fyrir þau í októ­ber 2022 en fékk hana ekki sam­þykkta fyrr en stríðið byrj­aði og svo þegar hann fékk hana loks­ins sam­þykkta lýgur hann að honum að mamma hans og pabbi séu alveg að koma. Basem hefur til dæmis tekið frá pláss í her­berg­inu sínu fyrir dót sem hann hefur safnað handa litlu systur sinni sem er þriggja ára sem er föst á Gaza, veik í mag­anum og fær engin lyf. 

Naji er orð­inn mjög þreyttur, enda búinn að standa á Aust­ur­velli í fimm­tíu daga núna að krefj­ast þess að fá fjöl­skyldur strák­anna heim og að stjórn­völd hætti að brott­vísa Palest­ínu­mönnum „í miðju þjóð­ar­morði“. Hann er þreyttur á að vera fyrst álit­inn flótta­maður áður en hann er álit­inn mann­eskja. Hann er þreyttur á því að

Sá minnsti AwniAwni er 11 mán­aða.

íslensk stjórn­völd geri grein­ar­mun á strák­unum þremur sem hann ann­ast og öðrum íslenskum börnum. Þreyttur á að hugsa til þess að alþing­is­menn geti farið heim til sín og borðað mat með börn­unum sínum en líti fram hjá Basem litla. „Af hverju fær Basem ekki fjöl­skyld­una sína? Hann fær ekki mömmu sína og pabba til sín. Pabbi hans, bróðir minn, við erum enn undir sama himni en við erum í

sundur. Það er ekki sann­gjarnt. Það er ekki erfitt að fá hann hingað.“ Basem upp­lifir að sögn Naji mikla sorg. Hann biður Naji stundum um að koma heim og sofa þar en Naji útskýrir fyrir honum að hann „verði að berj­ast. Berjast fyrir mömmu hans og pabba. Ef ég kem heim, hver er þá að berj­ast fyrir þeim?“

„Ég þakka guði fyrir að fjöl­skyldan mín er enn á lífi. En ég veit ekki hvað ger­ist eftir tvær mín­útur, hvort hún lifi næstu mín­útur af,“ útskýrir hann þar sem hann situr og drekkur heitt súkkulaði til að ylja sér eftir að hafa staðið og mót­mælt í

kuld­anum. En hann seg­ist vera með sam­visku­bit yfir því að drekka yfir höfuð þegar fjöl­skyldan hans getur ekki einu sinni drukkið vatn. En hann vill ekki gef­ast upp, vill ekki gef­ast upp á mót­mælum. „Við erum að reyna að hjálpa 128 manns, að koma þeim í burtu úr hel­víti.“ 

Yngsta barnið sem er fast í þessu „hel­víti“ sem Naji lýsir og er með dval­ar­leyfi á Íslandi er tíu mán­aða og það næstyngsta 11 mán­aða. Það er hann Awni Awad sem er fastur ásamt mömmu sinni á Gaza.  


Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðrún Konný Pálmadóttir skrifaði
    Erfitt að lesa...
    3
  • Heiðar Kristinsson skrifaði
    Ömurleg lesning og ábyrð þeirra mikil sem þessu valda svo og þeirra sem geta hjálpað en gera það ekki.
    7
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Aldrei lesið annan eins hrylling og blessuð saklausu börnin eru aðal fórnarlömbin.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Föst á Gaza

Sema segir engar mútur hafa verið greiddar – Ráðamenn reyni að sverta mannorð sjálfboðaliða
FréttirFöst á Gaza

Sema segir engar mútur hafa verið greiddar – Ráðamenn reyni að sverta mann­orð sjálf­boða­liða

Stofn­andi og for­seti Solaris, sem hefur unnið að því að koma dval­ar­leyf­is­höfum frá Gaza til Íslands, segir það „gjör­sam­lega sturlað“ að fylgj­ast með ráð­herrum í rík­is­stjórn Íslands, stofn­unum og þing­fólki sem ýji ítrekað að því að hún og aðrir sjálf­boða­liðar séu að brjóta af sér „og jafn­vel fremja lög­brot í við­leitni okkar til að koma fólki undan þjóð­ern­is­hreins­unum.“
Dvalarleyfishafar senda kvörtun til umboðsmanns Alþingis
FréttirFöst á Gaza

Dval­ar­leyf­is­hafar senda kvörtun til umboðs­manns Alþingis

Móðir og þrjú börn hafa fengið sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu á Íslandi en sitja enn föst á Gaza. Fjöl­skyldu­fað­ir­inn er dval­ar­leyf­is­hafi á Íslandi. Lög­fræð­ingur fjöl­skyld­unnar hefur sent inn kvörtun til umboðs­manns Alþingis. Er þar haldið fram að íslenska ríkið fari á mis við laga­á­kvæði og alþjóð­legar skuld­bind­ingar með aðgerða­leysi sínu við að forða fólki frá stríðs­hrjáðum svæðum á Gaza.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár