Selur heimagerðar vorrúllur til að bjarga fjölskyldu sinni frá Gasa

Charla Mae Calzada og sam­býl­is­maður hennar Mahmoud Ali selja heima­gerðar vor­rúllur til að safna fyrir fjöl­skyldu Mahmoud. Fjöl­skyldan hans er föst á Gasa og fer ágóð­inn beint í að koma fjöl­skyld­unni af stríðs­svæð­inu yfir til Egypta­lands.

Litlar frænkur á Gasa
Litlar frænkur á Gasa Ágóðinn af söfn­un­inni mun allar renna til fjöl­skyldu Chörlu og Mahmoud á Gasa. Mynd: Aðsend
Charla Mae Calzada

„Vor­rúllur er eitt­hvað sem ég kann að gera. Mamma kenndi mér að búa þær til,“ sagði Charla Mae Calzada. Charla býr til heima­gerðar vor­rúllur og selur þær til styrktar fjöl­skyldu sam­býl­is­manns síns, Mahmoud Ali frá Palest­ínu. Eru þau að safna pen­ing til að koma fjöl­skyldu Mahmoud frá stríðs­á­tök­unum í Gasa.

Charla segir söfn­un­ina ganga mjög vel. Til að byrja með ósk­uðu þau eftir styrkjum frá fólki „en það var ekki nóg. Svo ég þurfti að finna aðra leið. Eitthvað sem ég gæti gert sjálf.“ Þá datt henni í hug að búa til vor­rúll­urnar. Charla er frá Fil­ipps­eyjum og sagði að fjöl­skyldan borði mikið af vor­rúllum og lá því bein­ast við fyrir henni að búa til vor­rúllur og selja fyrir söfn­un­ina. 

RústirÁ mynd­inni eru leyfar af húsi fjöl­skyld­unnar.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Charla býr til heima­gerðar vor­rúllur og selur en hún og vin­kona hennar stofn­uðu sam­tökin Tala Project árið 2018 í kjöl­far felli­byls á Fil­ipps­eyjum. Gekk salan þá afar vel og rann ágóð­inn til fórn­ar­lamba felli­byls­ins Mangkhut.

Þegar Charla og Mahmoud hafa safnað þeim pen­ing sem þarf til að bjarga fjöl­skyldu þeirra frá Gasa mun Mahmoud fara út til Egypta­lands til að sækja fjöl­skyld­una sína. Mun hann byrja á því að sækja pabba sinn, Hussein Ali. Hussein kom til Íslands í febr­úar fyrir ári síðan en var vísað úr landi 6. októ­ber, degi áður en stríðið hófst. Hussein er með dval­ar­leyfi í Grikk­landi. 

Mahmoud Ali og Hussein Ali

Ætla þau að reyna að bjarga allri fjöl­skyld­unni sem eru for­eldrar Mahmoud, þrjár systur, mágur Mahmoud og þrjár litlar frænkur hans. Átti ein af systrum Mahmoud að vera að útskrif­ast sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur á þessu ári. Hún sendi nýverið skila­boð á Chörlu um að ástandið á Gasa sé mjög slæmt. Dauðinn væri alls­staðar. Stríðið skemmi allt, heim­ili og drauma. Ekkert sé á sínum stað og að það kosti mikið að ferð­ast frá Gasa.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Föst á Gaza

FréttirFöst á Gaza

Sema segir engar mútur hafa verið greiddar – Ráðamenn reyni að sverta mann­orð sjálf­boða­liða

Stofn­andi og for­seti Solaris, sem hefur unnið að því að koma dval­ar­leyf­is­höfum frá Gaza til Íslands, segir það „gjör­sam­lega sturlað“ að fylgj­ast með ráð­herrum í rík­is­stjórn Íslands, stofn­unum og þing­fólki sem ýji ítrekað að því að hún og aðrir sjálf­boða­liðar séu að brjóta af sér „og jafn­vel fremja lög­brot í við­leitni okkar til að koma fólki undan þjóð­ern­is­hreins­unum.“
FréttirFöst á Gaza

Dval­ar­leyf­is­hafar senda kvörtun til umboðs­manns Alþingis

Móðir og þrjú börn hafa fengið sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu á Íslandi en sitja enn föst á Gaza. Fjöl­skyldu­fað­ir­inn er dval­ar­leyf­is­hafi á Íslandi. Lög­fræð­ingur fjöl­skyld­unnar hefur sent inn kvörtun til umboðs­manns Alþingis. Er þar haldið fram að íslenska ríkið fari á mis við laga­á­kvæði og alþjóð­legar skuld­bind­ingar með aðgerða­leysi sínu við að forða fólki frá stríðs­hrjáðum svæðum á Gaza.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár