Fyrrverandi forstjóri Doha banka ráðinn forstjóri Reita

Fast­eigna­fé­lagið Reitir hefur ráðið Guðna Aðal­steins­son sem næsta for­stjóra sinn. Hann starf­aði á árum áður sem stjórn­andi hjá Kaup­þingi en hefur und­an­farið verið for­stjóri hjá þriðja stærsta við­skipta­banka Katar.

Fyrrverandi forstjóri Doha banka ráðinn forstjóri Reita
Nýr for­stjóri Guðni Aðal­steins­son mun taka við af Guðjóni Auð­uns­syni 1. apríl næst­kom­andi, Mynd: Aðsend

Guðni Aðal­steins­son hefur verið ráð­inn for­stjóri fast­eigna­fé­lags­ins Reita. Þetta stað­festi stjórn félags­ins á fundi í dag, en hann mun hefja störf 1. apríl næst­kom­andi. 

Guðni var meðal ann­ars fram­kvæmda­stjóri fjár­stýr­ingar hjá Kaup­þingi áður en sá banki féll í októ­ber 2008. Eftir það starf­aði hann stutt­lega hjá breska fjár­mála­eft­ir­lit­in­u. 

Hann hefur einnig gegnt stjórn­enda­störfum hjá Allied Irish Banks og Lehman Brothers og starf­aði um nokk­urra ára skeið hjá breska fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Legal & General. Sumarið 2018 greindi Frétta­blaðið frá því að Guðni hefði ráðið sig til íslenska fjár­mála­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Alva sem rek­ur Net­gíró, Aktiva og Inkasso sem fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs. Það virð­ist þó hafa verið stutt stopp því ári síðar var hann sestur í fram­kvæmda­stjórn Doha Bank, þriðja stærsta við­skipta­banka Katar. Þar var hann síð­ast  for­stjóri og þar áður gegndi hann stöðu fram­kvæmda­stjóra fjár­fest­inga og fjár­stýr­ingar bank­ans.

Stjórn­ar­for­maður bank­ans er Sjeik Fahad Bin Mohammad Bin Jabor Al Thani. 

Tekur við af Guðjóni

Guðni tekur við starf­inu hjá Reitum af Guðjóni Auð­uns­syni sem gegnt hefur því síð­ustu 13 ár.

Í til­kynn­ingu segir að Guðni sé með B.Sc. gráðu í hag­fræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá háskól­anum í Cambridge.  Hann hefur jafn­framt lokið diplómu í fjár­fest­ingum frá Harvard við­skipta­há­skól­anum og er um þessar mundir í dokt­ors­námi við UBIS við­skipta­há­skól­ann í Genf.

Þar er haft eftir honum að það séu for­rétt­indi að vera val­inn til að leiða hóp starfs­fólks Reita í þeirri umfangs­miklu upp­bygg­ingu félags­ins sem framundan sé. „Staða fyr­ir­tæk­is­ins sem öfl­ug­asta fast­eigna­fé­lags lands­ins er sér­stak­lega traust og það vel í stakk búið að taka næstu skref sem leið­andi afl í þróun fast­eigna og fleiri inn­viða. Ég tel að félagið sé í ein­stakri stöðu til að mæta vax­andi þörfum opin­berra aðila fyrir upp­bygg­ingu sam­fé­lags­legra inn­viða sem og hús­næðis á almennum mark­aði fyrir fjöl­breyttan hóp við­skipta­vina. Ég þakka stjórn Reita traustið sem mér er sýnt og hlakka til að hefja störf".

Á sama stað segir Þórarinn V. Þór­ar­ins­son, stjórn­ar­for­maður Reita, að félag­inu sé mik­ill fengur að því að fá notið víð­tækrar reynslu og þekk­ingar Guðna nú þegar við blasi afar fjöl­breytt og áhuga­verð sókn­ar­færi til þró­unar á starf­semi félags­ins. „Hann kemur til starfa úr kröfu­hörðu alþjóð­legu umhverfi með áherslur og sýn m.a. um sjálf­bærni, sem vel falla að stefnu­mótun félags­ins um upp­bygg­ingu, þjón­ustu og arð­semi.  Guðni er vel til þess fall­inn að nýta krafta félags­ins og leiða það inn í nýtt upp­bygg­ing­ar­skeið til að svara nýjum þörfum og áskor­unum".

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • IHÁ
    Ingvar Helgi Árnason skrifaði
    Sem sagt fyrirmyndar hrunverji og hokinn af reynslu. Ekki mikið út á hann að setja eða hvað?
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Þessi verður ekki billegur. Sennilega 10-20 íbúða leigutekjur til að borga honum kaup.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár