Aðstandendur eigi ekki að þurfa að berjast fyrir óháðri rannsókn

Að óbreyttu munu ein­ungis yfir­völd almanna­varna og lög­reglu­emb­ættið á Suð­ur­nesjum skoða aðdrag­anda þess að Lúðvík Pét­urs­son féll ofan í sprungu við vinnu sína í húsa­garði í Grinda­vík. Vinnu­eft­ir­litið skoðar ein­ungis lít­inn hluta. Það er ótækt fyr­ir­komu­lag að mati þing­manns sem telur óboð­legt að aðstand­endur þurfi að leggj­ast í bar­áttu fyrir rann­sókn í slíkum málum.

Aðstandendur eigi ekki að þurfa að berjast fyrir óháðri rannsókn
Hvernig vildi þetta til? Ætt­ingjar og vinir Lúðvíks Pét­urs­sonar vilja vita hvernig staðið var að und­ir­bún­ingi og ákvarð­ana­töku þess að Lúðvík féll í stóra sprungu sem honum hafði verið falið að fylla upp í. Veð­ur­stofan hafði varað við hættu af bæði sprungum og sprungu­hreyf­ingum í hættu­mati fyrir slysið. Ekkert áhættu­mat hafði hins vegar verið fram­kvæmt eða sprungur í bænum mældar. Hvort tveggja var gert eftir slysið. Mynd: Golli

Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum telur að vinna við sprungu­fyll­ingar í Grinda­vík hafi átt rétt á sér. Hann seg­ist þó ekki hafa komið að ákvarð­ana­töku varð­andi þá vinnu. Hann vill ekki tjá sig um aðdrag­anda þess að Lúðvík Pét­urs­son féll í sprungu í bænum þann 10. jan­úar þar sem lög­reglan hafi málið til rann­sóknar. Vinnu­eft­ir­litið er einnig að rann­saka málið. Almanna­varn­ar­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra hefur ekki tekið atvikið, til­drög þess eða aðdrag­anda, til sér­stakrar skoð­unar, þrátt fyrir að það sé hennar hlut­verk eftir að sér­stök rann­sókn­ar­nefnd var aflögð.

Í raun vísa flestir þeir aðilar sem Heim­ildin hefur rætt við frá sér beinni ábyrgð á því sem gerð­ist og álíta ekki, þrátt fyrir harða gagn­rýni á verk­lagið og við­bragð yfir­valda almanna­varna við sjálfu slys­inu, að mis­tök hafi átt sér stað. Hvorki þegar ákveðið var að opna svæðið eða hefja þær við­gerðir á innviðum líkt og sprungu­fyll­ingar.

„Ég tel að vinna við sprungu­fyll­ingar …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár