Jón Helgi óttast stöðu heilsugæslu á landsbyggðinni: „Ég hef áhyggjur“

Fram­kvæmda­stjóri heil­brigð­is­stofn­unar Norð­ur­lands Jón Helgi Björns­son hefur áhyggjur af fjár­mögnun heilsu­gæsl­unnar á lands­byggð­inni með til­komu einka­rek­inna heilsu­gæslu­stöðva þar.

Jón Helgi óttast stöðu heilsugæslu á landsbyggðinni: „Ég hef áhyggjur“
Afleið­ing af einka­væð­ingu Jón Helgi Björns­son, for­stjóri Heil­brigð­is­stofn­unar Norð­ur­lands, hefur áhyggjur af því að opnun heilsu­gæslu­stöðvar í einka­rekstri á Akureyri grafi undan fjár­mögnun heilsu­gæsl­unnar í dreifð­ari byggðum.

Jón Helgi Björns­son, fram­kvæmda­stjóri Heil­brigð­is­stofn­unar Norð­ur­lands, hefur áhyggjur af því að opin­bera heilsu­gæslan á lands­byggð­inni verði van­fjár­mögnuð með til­komu einka­rek­inna heilsu­gæslu­stöðva þar, til dæmis á Akureyri. „Ég hef áhyggjur af því að við missum fjár­muni út og að við munum þurfa að hag­ræða á þessum minni stöðum.“ 

Ástæðan er sú sjúktra­tryggðir við­skipta­vinir heilsu­gæsl­unnar sem búa á Akureyri færi sig frekar yfir á einka­reknar heilsu­gæslu­stöðvar þar sem sá mögu­leiki verður fyrir hendi á meðan við­skipta­vinir í dreifð­ari byggðum og minni bæjum á Norð­ur­landi verði áfram hjá opin­beru heilsu­gæsl­unni. Dýrara er að þjón­usta síð­ar­nefnda hóp­inn en þann fyrr­nefnda, segir Jón Helgi.

„Það er miklu dýr­ara að reka heil­brigð­is­þjón­ustu í hinum dreifðu byggðum.“
Jón Helgi Björns­son,
for­stjóri Heil­brigð­is­stofn­unar Norð­ur­lands

Heim­ildin ræddi við …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Ótrúleg þróun í samfélaginu!
    En eins og heilbrigðisráðherra segir, „alveg til athuga að einkavæða heilbrigðiskerfið“.
    Ráðamenn virðast duglegir í því að einkavæða ótrúlegustu þætti samfélagsins.
    Getur verið að þeir hafi þegar einkavinavætt okkur sem einstaklinga (sagða íslendinga)?
    Það er ótrúlegt hvað einstaklings hyggja einstaklings í ráðastöðu getur rústað samfélagi, til frambúðar, sjálfum sér og sinna til upphefðar í núinu!
    Þessi fullyrðing á við marga flokka sem hafa andsamfélagslega einstaklinga sér til framdráttar!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár