Svandís kynnir viðbrögð sín: Ætlar hvorki að segja af sér né færa sig

Viðbrögð Svan­dísar Svav­ars­dóttur við áliti umboðs­manns Alþingis verða þau að fela óháðum aðila að fara yfir stjórn­sýslu og lagaum­gjörð hval­veiða og fela rík­is­lög­manni að leggja mat á mögu­legt upp­gjör rík­is­ins við Hval. Van­traust­s­til­laga verður lögð fram á Svandísi síðar í dag. Óvissa er uppi um hvort allir stjórn­ar­þing­menn verji hana.

Svandís kynnir viðbrögð sín: Ætlar hvorki að segja af sér né færa sig
Situr sem fast­ast Svandís Svav­ars­dóttir hefur verið undir miklum þrýst­ingi frá sam­starfs­flokkum sínum, sér­stak­lega Sjálf­stæð­is­flokki, um að segja af sér eða færa sig til í starfi. Hún virð­ist ætla að gera hvor­ugt. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra ætlar að fela óháðum aðila að fara yfir stjórn­sýslu og lagaum­gjörð hval­veiða, þar með talið alþjóð­legar skuld­bind­ingar rík­is­ins, og vald­heim­ildir stjórn­valda á þeim grund­velli. Þá verður álits­gjaf­inn jafn­framt beð­inn um að gera til­lögur að úrbótum eftir því sem við á, og eftir atvikum til­lögur að breyt­ingum á lögum. 

Svandís hefur einnig ákveðið að fela rík­is­lög­manni að leggja mat á fram­komið erindi Hvals hf. þar sem félagið óskar eftir við­ræðum við ríkið um mögu­legt upp­gjör vegna álits­ins. Í færslu á Facebook segir Svandís að hún grípi „til þess­ara skýru við­bragða í ljósi þess að mik­il­vægt er að stjórn­völd beri virð­ingu fyrir eft­ir­lits­stofn­unum og sýni það í verki. Umboðs­maður Alþingis gegnir mik­il­vægu hlut­verki í eft­ir­liti með stjórn­sýslu rík­is­ins í okkar lýð­ræð­is­sam­fé­lagi.“

Með þessu virð­ast við­brögð Vinstri grænna við áliti umboðs­manns Alþingis, sem sagði að Svandís hefði brotið lög með ákvörðun sinni um að banna hval­veiðar tíma­bundið degi áður en þær áttu að hefj­ast, fram komin. Þingmenn hinna stjórn­ar­flokk­anna, sér­stak­lega Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafa þrýst á slík við­brögð. Þótt það hafi ekki verið sagt opin­ber­lega þá hefur verið krafa uppi um afsögn eða að Svandís feti í fót­spor Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og skipti um ráðu­neyti. Bjarni gerði slíkt í októ­ber eftir að umboðs­maður Alþingis komst að þeirri nið­ur­stöðu að hann hefði brostið hæfi til að selja félagi í eigu föður síns hlut í Íslands­banka. Bjarni fór þá úr fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu í utan­rík­is­ráðu­neytið. Í færslu Svan­dísar er hvorki boðuð afsögn né til­færsla í annað ráðu­neyti.

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, hefur sagt að hún muni leggja fram van­traust­s­til­lögu á Svandísi í dag þegar þing kemur aftur saman eftir rúm­lega mán­að­ar­langt jóla­frí. Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa ekki gefið afger­andi svör um hvort þeir muni verja Svandísi van­trausti og hafa margir sagt að það sé í höndum Vinstri grænna að finna réttu við­brögðin við nið­ur­stöðu umboðs­manns Alþingis. Nú liggja þau við­brögð fyrir. Búast má við að van­traust­s­til­lagan verði tekin fyrir á morgun eða hinn. 

Þungbært og umhugsunarefni

Í færsl­unni sem birt­ist í morgun segir Svandís að álit umboðs­manns Alþingis hafi verið sér mikið umhugs­un­ar­efni, bæði sem stjórn­mála­maður og emb­ætt­is­maður. „Það er hverjum ráð­herra þung­bært þegar álit umboðs­manns leiðir í ljós að ráð­staf­anir séu ekki eins og best verður á kosið. Í þessu til­viki að útgáfa reglu­gerðar um hval­veiðar hafi ekki átt sér nægi­lega skýra stoð í lögum eins og atvikum var háttað í júní. Einnig að aðdrag­andi og und­ir­bún­ingur reglu­gerð­ar­innar hafi ekki upp­fyllt kröfur um með­al­hóf.“

Að baki útgáfu reglu­gerð­ar­innar á sínum tíma hafi þó ekki verið neinn illur ásetn­ingur. Henni hafi ekki gengið neitt annað til en að fara að lögum og þar á meðal og ekki síst mik­il­vægum lögum frá 2013 um að okkur beri að koma vel fram við dýr. „Í afar þröngri stöðu í tíma og rúmi þar sem ég fékk í hendur álit fagráðs um dýra­vel­ferð sem taldi að veiðar á hval gætu ekki sam­ræmst dýra­vel­ferð­ar­lögum fól ég ráðu­neyti mínu að gera til­lögur að við­brögðum. Ég fór þá að öllu leyti að ráð­gjöf ráðu­neyt­is­ins og und­ir­rit­aði reglu­gerð um frestun á upp­hafi ver­tíð­ar­innar þar sem unnt væri að nýta tím­ann til að m.a. kanna til­lögur leyf­is­hafans um það hvort og þá hvernig bæta mætti fram­kvæmd­ina.“

Svandís segir að hún hafi enn ekki heyrt þá rödd sem telji að það sé rétt­læt­an­legt að stunda ómann­úð­legar veiðar á hvölum. „Og umboðs­maður tekur raunar undir það að mál­efna­legt geti verið að líta til sjón­ar­miða um dýra­vel­ferð við reglu­setn­ingu á grund­velli hval­veiði­lag­anna. En nú er álit umboðs­manns komið fram og ég hlusta á þau sjón­ar­mið sem þar koma fram og tek þau til mín.

Ráðu­neyti mitt hefur rýnt álitið og lög­fræði­leg nið­ur­staða þess er sú að það gefi ekki til­efni til sér­stakra við­bragða. Það er í sam­ræmi við nið­ur­stöðu umboðs­manns en hann beinir ekki sér­stökum til­mælum um úrbætur til mín, umfram það að hafa sjón­ar­miðin sem fram koma í álit­inu í huga til fram­tíðar.“

Ætlar að gera tvennt

Engu að síður hafi hún ákveðið eft­ir­far­andi: Í fyrsta lagi að fela óháðum aðila að fara yfir stjórn­sýslu og lagaum­gjörð hval­veiða, þar með talið alþjóð­legar skuld­bind­ingar rík­is­ins, og vald­heim­ildir stjórn­valda á þeim grund­velli. „Álits­gjafi verði jafn­framt beð­inn um að gera til­lögur að úrbótum eftir því sem við á, og eftir atvikum til­lögur að breyt­ingum á lögum.“

Í öðru lagi að fela rík­is­lög­manni að leggja mat á fram­komið erindi Hvals hf. þar sem félagið óskar eftir við­ræðum við ríkið um mögu­legt upp­gjör vegna álits­ins. „Ég gríp til þess­ara skýru við­bragða í ljósi þess að mik­il­vægt er að stjórn­völd beri virð­ingu fyrir eft­ir­lits­stofn­unum og sýni það í verki. Umboðs­maður Alþingis gegnir mik­il­vægu hlut­verki í eft­ir­liti með stjórn­sýslu rík­is­ins í okkar lýð­ræð­is­sam­fé­lagi.“

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Það er öllum ljóst að Svandís hefur nú þegar andað á kviku íhaldsins á Íslandi. Ekki bara innan Sjálfsstæðisflokks, einnig á flokksbrotið og Framsókn. Enginn framfarasinnaður stjórnmálamaður hefur til þessa voga sér að míga utaní goð þeirra. Ég hef fulla trú á Svandísi
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Mjög skynsamleg viðbrögð eins of okkar bestu ráðherra.
    Katrín Oddsdóttir júristi hefur dregið fram í þessa umræðu undarleg viðskipti um nálægt 40 hektara lands í Hvalfirði sem er selt ásamt bryggju allt fyrir einungis 10 milljónir til Kristjáns Loftssonar. Næanat fremur gjöf en sala. Líklegt er að þetta land sem var áður í eignasafni ríkisins hafi aldrei verið auglýst til sölu á almennum markaði.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár