Grindavík og borgarstjóri í Pressu

Sjónum er beint að stöðu íbúa í Grinda­vík í Pressu í hádeg­inu og rætt við Grind­vík­inga og björg­un­ar­sveit­ar­mann sem var að störfum í bænum. Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri verður í beinni útsend­ingu.

Grindavík og borgarstjóri í Pressu
Allt breytt Stjórn­völd telja að grund­vall­ar­breyt­ing hafi orðið í Grinda­vík eftir að gossprunga opn­að­ist innan varn­ar­garða og bæj­ar­markanna. Mynd: Golli

Staðan í Grinda­vík verður í brennid­epli í Pressu í hádeg­inu í dag, föstu­dag. Grind­vík­ing­ur­inn Pálmi Ing­ólfs­son verður til við­tals en hann á eitt af fyrstu hús­unum sem úrskurðuð hafa verið ónýt með öllu eftir jarð­hrær­ingar og eld­gos í og við Grinda­vík á síð­ustu mán­uðum. Viðtal við hann birt­ist einnig í Heim­ild­inni í dag. 

Þegar fjöl­miðlum var hleypt inn í Grinda­vík í byrjun vik­unnar fylgdi þeim björg­un­ar­sveit­ar­mað­ur­inn Haraldur Har­alds­son, sem þá hafði staðið vakt­ina lengi. Við spilum við­tal sem tekið var við Harald rétt við hrauntung­una í bænum. 

Auk þeirra verður rætt við Bryndísi Gunn­laugs­dóttur, íbúa í Grinda­vík og fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúa, sem fékk stand­andi lófatak á íbúa­fundi sem hald­inn var með ráða­mönnum og íbúum í vik­unni, þegar hún lýsti því sem von­brigðum að hafa ekki misst hús sitt undir hraun þegar gaus innan bæj­ar­markanna á sunnu­dag. Ef svo hefði verið hefði hún verið „skorin úr snör­unni“ og haft frelsi til að hefja líf á nýjum stað. 

Í síð­ari hluta Pressu sest Einar Þor­steins­son, nýr borg­ar­stjóri, við umræðu­borðið og fer yfir stöð­una í borg­ar­mál­unum. Samið var um það við myndun núver­andi meiri­hluta Fram­sókn­ar­flokks, Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar, að Einar tæki við borg­ar­stjóra­stólnum þegar átján mán­uðir væru liðnir af kjör­tíma­bil­inu. Enn er sami meiri­hluti og mál­efna­samn­ingur í gildi, þótt nýr maður sitji á skrif­stofu borg­ar­stjóra. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu