Of hættulegt að reyna að stöðva hraunrennslið

Hjördís Guð­munds­dóttir, sam­skipta­stjóri almanna­varna, segir að ekki standi til að senda fólk inn í Grinda­vík til að reyna að stöðva hraun­straum­inn sem nú hefur skemmt tvö hús. Svæðið er ein­fald­lega of hættu­legt. Enn gætu sprungur opn­ast sunnar, inni í bænum.

Of hættulegt að reyna að stöðva hraunrennslið
Hraun­flæði Hraun rennur nú inn í göt­una Efrihóp. Mynd: Heimildin / Golli

„Miðað við gang­inn á þessu þá sjáum við ekki fram á nema það að þetta sé ekki að fara að stoppa.“ Þetta segir Hjördís Guð­munds­dóttir sam­skipta­stjóri almanna­varna í sam­tali við Heim­ild­ina. Á hún við hraun­rennslið sem flæðir inn í Grinda­vík. Nú þegar hafa tvö hús við göt­una Efrihóp nyrst í bænum orðið hraun­inu að bráð. 

Hjördís segir að lík­lega hafi ekk­ert eld­gos verið í jafn beinni útsend­ingu og þetta. „Það er þyngra en tárum taki að horfa upp á þetta. Maður getur eig­in­lega ekki sett sig í spor Grind­vík­inga að horfa á þetta.“

Hætta ekki lífi fólks vegna möguleikans á nýjum sprungum

Nú er bann við því að vera inni í bænum. Ástæða þess er að engin leið er að vita hvort að önnur sprunga geti opn­ast. Því stendur ekki til að senda fólk til að reyna að stöðva hraun­straum­inn. „Núna er hættan það mikil inni á …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Talandi um gjörsamlega VANHÆFA ríkisÓSTJÓRN!
    Milljörðum spreðað í að verja einkafyrirtæki.
    En EKKERT gert til að verja eigur einstaklingana!
    Því var ekki búið að staðsetja öflugar dælur við jaðar Grindavíkur ?
    Stutt í ískaldann sjóinn og reyna að stýra hraunfæðinu frá bænum, eins og gert var í Vestmannaeyjum á sínum tíma.
    Svo maður tali nú ekki um að rusla upp varnargörðum, eins og gert var fyrir einka fyrirtækin þeim að kostnaðarlausu.
    Og þjóðin látin borga brúsann fyrir auðrónana!
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár