Dagur: Reykjavíkurmódelið á erindi í landsmálin

Dagur B. Egg­erts­son ætlar ekki fram aftur í kosn­ingum til borg­ar­stjórnar en úti­lokar ekki að stíga inn í lands­málin. Hann segir það alltaf hafa verið býsna fjarri sér að skoða sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn í borg­inni.

Dagur: Reykjavíkurmódelið á erindi í landsmálin
Stefnir ekki á Bessa­staði Dagur seg­ist ekki hafa áhuga á því að bjóða sig fram til for­seta Íslands, en það emb­ætti losnar á kom­andi sumri. Mynd: Golli

Frá árinu 2010 hefur Dagur, sem odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í borg­inni, tekið þátt í að mynda fjóra mis­mun­andi meiri­hluta í borg­ar­stjórn Reykja­víkur. Sá fyrsti var með Besta flokknum, næsti með Vinstri grænum, Bjartri fram­tíð og Pírötum, í þeim þriðja var Viðreisn skipt inn á fyrir Bjarta fram­tíð og í þeim nýjasta kom Framsókn inn úr kuld­anum í stað Vinstri grænna, sem biðu afhroð í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2022.

Þetta eru, í íslensku sögu­legu sam­hengi, óvenju­legt sam­starf bæði vegna eðlis flokk­anna og vegna þess hversu margir flokkar hafa komið að því að stjórna saman.

Á móti hefur lítið örlað á erjum milli meiri­hluta­flokk­anna. Þeir hafa gengið í takt og unnið vel saman.

Dagur segir að þetta sé fyr­ir­komu­lag sem ætti sann­ar­lega erindi í lands­málin. „Ég held að grunn­ur­inn að góðu sam­starfi sé bara virð­ing og að átta sig á því að sam­starfs­fólk er fyrst og fremst fólk. Það þarf að gefa sam­starfi tíma og það þarf að byggja upp traust og trúnað og það held ég að hafi verið lyk­ill­inn að hvað þetta hefur gengið vel að vinna með svona ólíku fólki og svona ólíkum flokkum.“

Hann hafi komið nestaður inn í svona sam­starf eftir að hafa hafið sinn póli­tíska feril í Reykja­vík­ur­list­anum. „Ég kom þar inn óflokks­bund­inn, og hann er settur saman af fjórum flokkum. Þannig að þar var búið að búa til ákveð­inn sam­ræðu­kúltúr sem höfð­aði til mín og er gagn­legur. Ég held að sá andi sem hefur ríkt hérna í ráð­hús­inu síð­ustu tíu ár sé því sann­ar­lega til útflutn­ings. Þetta meiri­hluta­sam­starf allt á það sam­eig­in­legt að það hefur nán­ast engan skugga brugðið þar á og birt­ing­ar­mynd meiri­hluta­sam­starfs­ins allan þennan tíma er ekki það sem þú sérð oft í póli­tík. Enginn að ríf­ast fyrir opnum tjöldum eða lifa út ein­hverjar frústra­sjónir inn­byrðis í gegnum fjöl­miðla. Þetta er bara gott, ein­lægt, upp­byggi­legt sam­starf fólks sem brennur fyrir borg­ina og þar sem við erum ósam­mála, þar finnum við fleti. Það er bara gald­ur­inn.“

Versta viðskiptaákvörðun borgarinnar

Dagur segir það alltaf hafa verið býsna fjarri sér að skoða önnur stjórn­ar­mynstur, til dæmis að mynda meiri­hluta með hinum stóra flokknum í borg­ar­stjórn, Sjálf­stæð­is­flokknum. „Í fyrsta lagi vegna þess að við höfum staðið fyrir ólíka hluti, ólík gildi, ólíka áherslu varð­andi stjórn borg­ar­innar. En til við­bótar þá hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn birst sem býsna ósam­stæð heild og inn­byrðis klof­inn. Og stundum hefur mér liðið þannig að hann þurfi svo­lítið að gera upp fyrir hvað hann ætlar að standa í borg­inni áður en hann verður álit­legur sam­starfs­að­ili. Ég held að þetta hafi krist­all­ast í meiri­hluta­myndun mörg síð­ustu kjör­tíma­bil. Það er þannig ára og andi og lítil sam­staða innan þessa hóps til þess að öðrum finn­ist það árenni­legt. Enda var það svo­lítið nið­ur­staða kjör­tíma­bils­ins sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk að spreyta sig 2006 til 2010, að svona inn­byrðis ágrein­ingur þar varð honum mik­ill fjötur um fót og leiddi til alls konar vondra nið­ur­staðna fyrir borg­ina, eins og sölu á hlut okkar í Lands­virkjun.“

Það er ljóst að sú ákvörðun, þegar meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar ákvað að selja 46 pró­sent hlut í Lands­virkjun fyrir 27 millj­arða króna á þávirði, um 66 millj­arðar króna á núvirði, situr mikið í Degi. Ef borgin ætti enn hlut sinn má ætla að hún hefði fengið um 15 millj­arða króna í arð­greiðslu á síð­ustu tveimur árum. Dagur segir að borgin hafi, heilt yfir, orðið af hund­ruð millj­örðum króna vegna söl­unnar ef horft sé á þróun eigin fjár Lands­virkj­unar á þeim tíma sem er lið­inn frá söl­unni. Þetta sé því versta við­skipta­á­kvörðun sem Reykja­vík­ur­borg hafi nokkru sinni tekið.

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Viðtal

Skilur eftir sig áhuga­verð­ari borg og hræð­ist ekki dóm sög­unnar

Dagur B. Egg­erts­son er að hætta sem borg­ar­stjóri. Hann ætlar ekki að bjóða sig aftur fram í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, ætlar heldur ekki í for­seta­fram­boð en úti­lokar ekki að færa sig yfir í lands­málin. Dagur er stoltur af því sem hann hefur áorkað sem borg­ar­stjóri, stoltur af þeirri borg sem hann skilur eftir sig og sann­færður um að dómur sög­unnar á þeim ára­tug sem hann stýrði henni eigi eftir að vera góður.

18 mín. lestur

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Og hversu marga milljarða hafa stradæmin og hjólastíga dekur og annað kostað borgarbúa meðan börn gamalmenni og óæðri stéttin berst I rok rigningu og frosti til starfa og nauðsynja því samgöngur og þjónusta er i lamasessi ?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár