„Ég hef stafinn alltaf hangandi í anddyrinu heima til þess að minna mig á þakklæti“

Dagur B. Egg­erts­son, sem hefur verið borg­ar­stjóri í ára­tug en hættir 16. jan­úar næst­kom­andi, tjáir sig um veik­indi sem hafa hrjáð hann og skotárás sem gerð var á bif­reið við heim­ili hans.

„Ég hef stafinn alltaf hangandi í anddyrinu heima til þess að minna mig á þakklæti“
Djúpstæð áhrif Dagur segir að hann hafi aldrei fundið annað en að lög­reglan hafi gert sitt besta við að rann­saka skotárás­ina. „Það voru tak­mörkuð gögn sem og dómafor­dæmi sem leiddu til þess að það var ekki sak­sótt fyrir þetta. Og það er auð­vitað eitt­hvað sem maður situr uppi með.“ Mynd: Golli

Dagur B. Egg­erts­son, sem verður borg­ar­stjóri Reykja­víkur í nokkra daga í við­bót, greind­ist með alvar­legan gigt­ar­sjúk­dóm haustið 2017. Áhrifin af þeim sjúk­dómi voru öllum sýni­leg. Um tíma þurfti borg­ar­stjór­inn að styðj­ast við staf við gang. Dagur segir að þetta hafi verið mikið áfall. „Maður var alveg sleg­inn kylli­flatur í orðs­ins fyllstu merk­ingu. Ég fékk mikið af kveðjum frá fólki með gigt. Þær voru allar settar fram af góðum hug en mér leist ekk­ert á blik­una þegar fólk var að segja að því sjálfu gengi mjög vel og gæti alveg verið í hálfu starfi. Það þyrfti bara að leggja sig svona eftir tveggja tíma vinnu skorpu. Þannig að ég var um tíma óviss um ein­hvern veg­inn hvort ég mundi valda því að sinna starfi borg­ar­stjóra, því að það auð­vitað fylgir því mikið álag.

Ég var hepp­inn að fá mjög góðan lækni sem setti mig á með­ferð sem átti eftir að koma á dag­inn að reynd­ist mjög árang­urs­rík. En hann bank­aði líka létt í öxl­ina á mér þegar hann var búinn að setja mig á með­ferð­ina og sagð­ist vera bjart­sýnn. Ég þyrfti bara að passa að vera ekki undir álagi. Svo hló hann eins og hross.“

Sú teg­und af gigt sem Dagur greind­ist með gengur niður hjá stórum hópi á 12 til 18 mán­uðum. Það gerð­ist ekki hjá honum. „Ég var á lyfjum í fjögur ár og er núna í lyfja­hléi. Það getur alveg brugðið til beggja vona hvort ég þurfi að byrja að taka lyfin aftur. Ég þurfti auð­vitað aðeins að breyta um takt, sér­stak­lega framan af. En á lyfj­unum finnst mér samt merki­legt hvað maður hefur getað beitt sér. Nú er ég nán­ast búinn að gleyma þessu nema ég hef staf­inn alltaf hang­andi í and­dyr­inu heima til þess að minna mig á þakk­læti.“

Árásin hafði djúpstæð áhrif á fjölskylduna

Í byrjun árs 2021 fund­ust byssu­kúlur í hurð á bif­reið fjöl­skyldu Dags. Ljóst var á ummælum hans í fjöl­miðlum eftir að málið kom upp að honum var veru­lega brugðið. Pólitísk orra­hríð hafði tekið á sig þessa mynd og hún var komin heim til hans þar sem áhrifin voru ekki bara á hann, heldur fjöl­skyld­una. Fólkið sem er honum kær­ast.

Dagur segir að skotárásin hafi þó ekki leitt til þess að hann hafi hugsað af neinni alvöru að hætta í stjórn­málum. „Ég hugsa að strax í kjöl­farið hafi þetta frekar haft áhrif á það að ég ákvað að láta ekki gott heita. Mér hefði fund­ist ein­hvern veg­inn það gefa röng skila­boð, þó að það hafi sann­ar­lega komið upp í hug­ann og ég hafi farið í gegnum það. En öll reynsla sem maður verður fyrir tekur maður með og vinnur úr á ein­hvern hátt.“

Viðbrögð lang­flestra hafi líka verið þannig að það hafi komið eitt­hvað jákvætt út úr atvik­inu. „Sem betur fer tóku lang­flestir undir það að við sem sam­fé­lag viljum auð­vitað vera nákvæm­lega það, sam­fé­lag, en ekki land eða borg þar sem borg­ar­stjórar eða ráð­herrar eða ráða­menn ferð­ast um í lög­reglu­fylgd eða þurfa að vera í stöðugri gæslu. En þetta er mjög brot­hætt ef eitt­hvað ger­ist.“
Rannsókn á mál­inu var fellt niður síðla árs 2021 og sá sem var grun­aður um verkn­að­inn því aldrei ákærður. Dagur segir þó að hann hafi aldrei fundið annað en að lög­reglan hafi reynt að gera sitt besta. „Það voru tak­mörkuð gögn sem og dómafor­dæmi sem leiddu til þess að það var ekki sak­sótt fyrir þetta. Og það er auð­vitað eitt­hvað sem maður situr uppi með en mér fannst heldur ekki gagn­legt ein­hvern veg­inn að láta þetta verða fyr­ir­ferð­ar­mikið í okkar dag­lega lífi. Þó að þetta væri stað­reynd sem við fjöl­skyldan sátum uppi með og hafði djúp­stæð áhrif á okkur öll.“



Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Viðtal

Skilur eftir sig áhuga­verð­ari borg og hræð­ist ekki dóm sög­unnar

Dagur B. Egg­erts­son er að hætta sem borg­ar­stjóri. Hann ætlar ekki að bjóða sig aftur fram í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, ætlar heldur ekki í for­seta­fram­boð en úti­lokar ekki að færa sig yfir í lands­málin. Dagur er stoltur af því sem hann hefur áorkað sem borg­ar­stjóri, stoltur af þeirri borg sem hann skilur eftir sig og sann­færður um að dómur sög­unnar á þeim ára­tug sem hann stýrði henni eigi eftir að vera góður.

18 mín. lestur

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • jon petur kristjansson skrifaði
    Maðurinn er meyr bara ! Búin að halda uppi húsnæðisverði í Reykjavík í meir en áratug með of fáum lóðum til sölu til almennings og Sorpa farin að hirða matarafganga frá almenning EN EKKI FYRIRTÆKJUM OG ÞAR AÐ AUKI MEÐ HITNANDI VEÐRI ER ÞESSI LÆKNIR BÚIN AÐ SJÁ TIL ÞESS AÐ FLUGUM Í REYKJAVÍK HEFUR FJÖLGAÐ UM HELMING (með tilv.smithættum í framtíðinni ) OG ÞÉTTING BYGGÐAR ER ÞANNIG AÐ ÞÚSUND MANNS SJÁ ALDREI TIL SÓLAR !
    -2
  • Axel Axelsson skrifaði
    spurning hvort þessi frétt eigi við kauða: https://www.visir.is/g/20242512111d/saettir-sig-ekki-vid-bann-eftir-slod-gjald-throta . . .
    -2
    • J
      Jón skrifaði
      Kristján? Albert? Friðrik? Matthías? Kristófer? Guðmundur? Nei takk. Nei takk. Ég hef aldrei stundað slíkt.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár