Sveitarfélög gætu þurft að „skattpína“ borgarana til að mæta lagabreytingum

Sér­fræð­ingur í fjár­málum sveit­ar­fé­laga segir í minn­is­blaði til Alþingis að til­efni sé til að skoða nánar áform um afnám fast­eigna­skatts­jöfn­unar, sem stefnt er að í breyt­ingum á lögum um Jöfn­un­ar­sjóð sveit­ar­fé­laga. Eins og frum­varp um málið líti út gætu ein­staka sveit­ar­fé­lög þurft að beita íbúa sína „skatt­pín­ingu“ í formi fast­eigna­skatta langt umfram það sem þekk­ist almennt hér á landi.

Fjármál
Fjármál Fjarða­byggð er eitt þeirra sveit­ar­fé­laga sem fengið hefur tölu­vert miklar tekjur vegna fast­eigna­skatts­jöfn­unar frá Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga. Myndin er frá Eski­firði. Mynd: Fjarðabyggð

Afleið­ing fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á reglu­verki Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga, sem fel­ast í því að leggja skuli niður fast­eigna­skatts­jöfn­un­ar­fram­lag, gæti orðið sú að ein­staka sveit­ar­fé­lög tapi tugum eða hund­ruðum millj­óna króna á ári, frá því sem verið hefur.

Í minn­is­blaði sem Guðjón Bragason, fyrrv. sviðs­stjóri lög­fræði- og vel­ferð­ar­sviðs Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, hefur lagt fram til Alþingis fyrir hönd félags síns, GB Stjórn­sýslu­ráð­gjafar, segir að í flestum til­vikum hafi sveit­ar­fé­lög ekki aug­ljós tæki­færi til að hag­ræða í rekstri til að vega á móti slíku tekju­tapi og tak­mark­aða mögu­leika til að afla nýrra tekna. 

GBGuðjón Bragason starf­aði sem sviðs­stjóri hjá Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga þar til í maí í fyrra.

Hins vegar gætu þau sveit­ar­fé­lög sem bregð­ist við með því að hækka fast­eigna­skatta á íbúð­ar­hús­næði upp í lög­bundið hámark mögu­lega inn­heimt skatt­tekjur sem nálg­uð­ust það sem tap­að­ist við fyr­ir­hug­aða laga­breyt­ingu. 

…

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár