Sjálfstæðisflokkur með 18 prósent hjá Gallup – Versta mæling hans frá upphafi

Sam­fylk­ingin hefur mælst stærsti flokkur lands­ins frá byrjun síð­asta árs og myndi fá 19 þing­menn ef kosið yrði í dag. Vinstri græn mæl­ast minnsti flokk­ur­inn á þingi og stjórn­ar­flokk­arnir myndu ein­ungis fá 21 þing­mann ef kosið yrði í dag.

Sjálfstæðisflokkur með 18 prósent hjá Gallup – Versta mæling hans frá upphafi
Forystan Frá því að síð­ast lands­fundur Sjálf­stæð­is­flokks­ins fór fram í nóv­em­ber í fyrra, þar sem for­ysta hans vsar kjörin, hefur fylgi flokks­ins dalað um sex pró­sentu­stig. Það er er jafn mikið og allt það fylgi sem Vinstri græn mæl­ast með nú um stundir. Mynd: HAG/Sjálfstæðisflokkurinn

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 18,1 pró­sent fylgi í nýj­ast Þjóð­ar­púlsi Gallup. Það er lang­minnsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni mælst með í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins. Raunar er þetta ein­ungis í þriðja sinn frá því að Gallup hóf mæl­ingar sem fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist undir 20 pró­sentu­stigum. Hin skiptin voru í apríl 2022 og nóv­em­ber 2023 þegar fylgi mæld­ist 19,8 pró­sent. 

Hinir tveir stjórn­ar­flokk­arnir bæta við sig svip­uðu og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar milli mán­aða. Fylgi Vinstri grænna mælist nú sex pró­sent eftir að hafa náð met­lægð í nóv­em­ber þegar það mæld­ist ein­ungis 5,1 pró­sent. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fer úr 8,6 í 9,4 pró­sent milli mán­aða.

Í frétt RÚV um könn­un­ina kemur fram að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi fá tólf þing­menn að óbreyttu, sem er fimm færri en hann hefur í dag. Framsókn myndi fá sjö og Vinstri græn fjóra. Sam­an­lagt næðu stjórn­ar­flokk­arnir, sem í dag eru með 38 þing­menn, ein­ungis 21. Miðað við það væri rík­is­stjórnin kol­fallin ef kosið yrði í dag.

Samfylkingin langstærsti flokkurinn

Sam­fylk­ingin er áfram sem áður sá flokkur sem mælist langstærstur sam­kvæmt könn­unum. Alls segj­ast 28,4 pró­sent aðspurðra styðja flokk Kristrúnar Frosta­dóttur, sem er svipað fylgi og flokk­ur­inn hefur mælst með und­an­farna mán­uði. Sam­fylk­ingin hefur nú mælst stærsti flokkur lands­ins sleitu­laust frá byrjun árs 2023. Það fylgi sem flokk­ur­inn mælist með myndi tryggja Sam­fylk­ing­unni 19 þing­menn, sem er 13 fleiri en flokk­ur­inn hefur í dag. Samkvæmt útreikn­ingum Gallup fyrir RÚV yrði flokk­ur­inn stærstur í fimm af sex kjör­dæmum. Eina kjör­dæmið sem hann næði ekki slíkri stöðu er í Norð­vest­ur­kjör­dæmi þar sem Framsókn yrði stærstur að óbreyttu.

Mið­flokk­ur­inn, sem mælist með 9,7 pró­sent fylgi, myndi fá sex þing­menn ef kosið yrði í dag og þre­falda þing­flokk sinn. Þótt draga megi þá ályktun að þorri þess fylgis sem Mið­flokk­ur­inn hafi bætt við sig það sem af er kjör­tíma­bili – alls 4,2 pró­sentu­stig – komi frá Sjálf­stæð­is­flokknum þá er fylgis­tap hins fyrr­nefnda – 6,3 pró­sentu­stig – umtals­vert meira en fylg­is­aukn­ing þess síð­ar­nefnda. Mið­flokk­ur­inn mælist nú þriðji stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt Gallup.

Píratar og Viðreisn standa í stað

Píratar, sem mæl­ast með 9,1 pró­sent fylgi, og Viðreisn, sem mælist með 8,8 pró­sent, eru á nán­ast nákvæm­lega sömu slóðum og flokk­arnir voru eftir síð­ustu kosn­ingar. Píratar myndu áfram ná í sex þing­menn og Viðreisn í fimm, sem er sami þing­manna­fjöldi og flokk­arnir tveir eru með í dag. 

Eini stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn sem mælist með minna fylgi en hann fékk haustið 2021 er Flokkur fólks­ins. Þá fékk hann 8,8 pró­sent atkvæða en mælist nú með 6,8 pró­sent. Það myndi þýða að Flokkur Ingu Sæland myndi tapa heilum tveimur þing­mönnum vegna dreif­ingar fylg­is­ins og fá ein­ungis fjóra þing­menn.

Sós­í­alista­flokkur Íslands rekur lest­ina með 3,6 pró­sent fylgi en hann náði ekki inn á þing í kosn­ing­unum fyrir rúmum tveimur árum, og myndi heldur ekki ná inn miðað við stöðu mála í dag.

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Eyjólfsson skrifaði
    Betur má ef duga skal.
    0
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Úr íslenskri orðabók:
    fálki: 1) valur 2) auli, gapi, heimskingi, óáreiðanlegur maður.
    1
    • Gunnar Björgvinsson skrifaði
      https://is.m.wikipedia.org/wiki/Mynd:Merki_sjalfstaedisflokksins.svg
      0
  • Heiðar Þorleifsson skrifaði
    Skrítið en samt ekki skrítið.
    Afglapavæðing hefur verið stunduð í ansi langann tíma.
    2
  • Gott mál, þetta er mesta siðleysi landins,
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár