Stór hluti kjósenda Vinstri grænna og Framsóknar telja að Bjarni hafi ekki axlað ábyrgð með afsögn

Næstum sjö af hverjum tíu kjós­endum Vinstri grænna telja að for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi alls ekki axlað ábyrgð á Íslands­banka­söl­unni eða ein­ungis gert það að litlu leyti. Sex af hverjum tíu kjós­endum Fram­sóknar eru sama sinnis.

Stór hluti kjósenda Vinstri grænna og Framsóknar telja að Bjarni hafi ekki axlað ábyrgð með afsögn
Flókið Formenn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna til­kynntu um það á blaða­manna­fundi 14. októ­ber að þeir ætl­uðu sér að klára kjör­tíma­bilið. Stór ágrein­ings­mál eru milli stjórn­ar­flokk­anna líkt og nýleg könnun Maskínu end­ur­speglar. Mynd: Golli

Mikill meiri­hluti lands­manna er á þeirri skoðun að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi ekki axlað til­hlýði­lega ábyrgð á Íslands­banka­söl­unni með því að segja af sér emb­ætti fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, en taka svo sam­stundis við emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra.

Í könnun sem Maskína gerði 19. til 27. des­em­ber kemur fram fram að um 50 pró­sent aðspurðra eru á þeirri skoðun að hann hafi alls ekki axlað þá ábyrgð sem honum bar og 22 pró­sent til við­bótar telja hann hafi ein­ungis axlað ábyrgð­ina að litlu leyti. 

Það eru ein­ungis kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem telja að meiri­hluta að Bjarni hafi axlað ábyrgð með því að hafa stóla­skipti við vara­for­mann sinn, Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur, en 70 pró­sent þeirra eru á þeirri skoðun að hann hafi axlað ábyrgð­ina að öllu leyti eða hluta. Kjós­endur ann­arra flokka eru á allt öðru máli. Meiri­hluti þeirra allra er á þeirri skoðun að Bjarni hafi ekki axlað ábyrgð­ina eins og vera skyldi. Þar með taldir eru kjós­endur hinna stjórn­ar­flokk­anna tveggja, Vinstri grænna og Fram­sóknar. Alls 68 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna telja að Bjarni hafi annað hvort ekki axlað þá ábyrgð sem honum bar eða ein­ungis gert það að litlu leyti. Um 59 pró­sent kjós­enda Fram­sóknar eru sama sinnis. Þar af telur þriðj­ungur kjós­enda Vinstri grænna að Bjarni hafi alls ekki axlað ábyrgð og 41 pró­sent kjós­enda Fram­sóknar er sama sinnis.

Bjarni sagði af sér í októ­ber eftir að umboðs­maður Alþingis komst að þeirri nið­ur­stöðu að Bjarna hefði skort hæfi til að selja félagi föður síns hlut í rík­is­bank­anum í lok­uðu útboði sem fór fram í mars 2022. Áður hafði Rík­is­end­ur­skoðun fellt áfelli yfir þætti Banka­sýslu rík­is­ins í sölu­ferl­inu og Íslands­banki játað marg­háttuð lög­brot við fram­kvæmd þess sem leiddi til met­sektar og afsagnar ýmissa stjórn­enda og stjórn­ar­manna í bank­anum, þar á meðal Birnu Ein­ars­dóttur banka­stjóra. 

Lítil ánægja með Gaza og hvalveiðimálið

Maskína spurði líka um tvö önnur deilu­mál sem mikið hefur verið tek­ist á um. Annars vegar um afstöðu Íslands til þeirra atburða sem hafa átt, og eru að eiga, sér stað á Gaza og hins vegar fram­göngu Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra í hval­veiði­mál­inu. 

Í fyrr­nefnda mál­inu kom fram að 50 pró­sent aðspurðra voru ósáttir með opin­bera afstöðu Íslands almennt varð­andi Gaza en 23 pró­sent voru sáttir. 

Eini kjós­enda­hópur stjórn­mála­flokks á land­inu sem var að meiri­hluta sáttur við afstöðu Íslands voru kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en 51 pró­sent þeirra eru ánægðir með stefn­una. 

Hjá hinum tveimur stjórn­ar­flokk­unum eru fleiri ósáttir en sáttir. Í til­felli Vinstri grænna sögð­ust 40 pró­sent vera ósátt við opin­bera afstöðu Íslands almennt varð­andi Gaza en 27 pró­sent voru sáttir. Innan kjós­enda­hóps Fram­sóknar sögð­ust 42 pró­sent vera ósátt en 32 pró­sent sátt. 

Tæplega 52 pró­sent svar­enda sögð­ust vera ósátt með Svandísi í hval­veiði­mál­inu, en hún bann­aði hval­veiðar tíma­bundið í upp­hafi ver­tíðar og leyfði þær síðar aftur að ákveðnu skil­yrðum upp­fylltum. Mun færri, 23 pró­sent, eru ánægðir með hana í mál­inu. 

Grið­ar­legur munur er á skoð­unum kjós­enda stjórn­ar­flokk­anna á þessu deilu­máli. Alls segj­ast 59 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna vera sátt með fram­göngu Svan­dísar og 12 pró­sent segj­ast ósátt. Innan kjós­enda­hóps Sjálf­stæð­is­flokks­ins segj­ast ein­ungis átta pró­sent vera sátt með fram­göngu mat­væla­ráð­herra og 79 pró­sent eru ósátt. Staðan er litlu skárri á meðal Fram­sókn­ar­manna, en 12 pró­sent þeirra eru sáttir með Svandísi á meðan að 65 pró­sent eru ósáttir. 

Svar­endur í könn­un­inni voru alls 1.212 tals­ins.

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ekkret mál að lækka verðbólgu lækka skatt á bensin og disel. það gerðu spánverjar í sumar og verðbolga féll um 3.5% , Hvers konar hávita erum við með í stjórn ?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár