Miðflokkurinn fær minna frá skattgreiðendum en meira frá útgerðinni

Framlög lög­að­ila til Mið­flokks­ins hafa auk­ist sam­hliða því að færri kusu flokk­inn. Flokkur fólks­ins fær allar sínar tekjur úr opin­berum sjóðum og Viðreisn eyddi miklu meira í þing­kosn­ingar en sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

Miðflokkurinn fær minna frá skattgreiðendum en meira frá útgerðinni
Ólík staða Flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar átti 83 millj­ónir króna í óráð­stafað eigið fé en flokkur Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttir var með nei­kvætt óráð­stafað eigið fé upp á 35 millj­ónir króna. Mynd: Bára Huld Beck

Enginn flokkur tap­aði jafn­miklu fylgi í kosn­ing­unum 2021 og Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sem helm­ing­að­ist og fékk 5,4 pró­sent atkvæða. Fjöldi þing­manna hans, sem hafði vaxið vegna flótta­manna úr Flokki fólks­ins, fór úr því að telja níu í að verða þrír. Og skömmu síðar tveir þegar Birgir Þór­ar­ins­son flutti sig yfir í Sjálf­stæð­is­flokk­inn. 

Ljóst var að þetta myndi hafa umtals­verð áhrif á fjár­mál Mið­flokks­ins, sem fékk 100 af þeim 112 millj­ónum króna sem flokk­ur­inn afl­aði á því ári úr opin­berum sjóðum, eða næstum níu af hverjum tíu krónum. 

Á árinu 2022 dróg­ust tekjur flokks­ins veru­lega saman í kjöl­far kosn­inga­ó­sig­urs­ins og voru í heild 66 millj­ónir króna. Þar af voru fjár­fram­lög frá hinu opin­bera 54 millj­ónir króna. Hlutfall þeirra var tæp­lega 82 pró­sent. Athygli vekur að fram­lög lög­að­ila og félags­gjöld hækk­uðu sam­hliða því sem fylgi flokks­ins dróst saman. Alls gáfu lög­að­ilar Mið­flokknum tæp­lega 6,8 millj­ónir króna á árinu 2022. …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár