Indó segist hafa sparað viðskiptavinum sínum 347 milljónir á árinu

Haukur Skúlason, fram­kvæmd­stjóri indó, segir fyrsta starfsár spari­sjóðs­ins hafi farið framúr sínum björt­ustu vonum. Hann segir að sjóð­inn stefna á að bjóða upp á útlán til ein­stak­linga snemma á nýju ári. Spari­sjóð­ur­inn hefur vaxið hratt og tekju­mögu­leikum fjölgað.

Indó segist hafa sparað viðskiptavinum sínum 347 milljónir á árinu
Bjart­sýnn Haukur Skúlason, fram­kvæmd­stjóri indó, lítur björtum augum á næsta ár. Sjóð­ur­inn gengur var­lega til verks við fjölga vörum fyrir við­skipta­vini sína. Mynd: Heiða Helgadóttir

Indó spari­sjóður stefnir á að hefja útlána­starf­semi til ein­stak­linga snemma á nýju ári, að sögn Hauks Skúla­sonar, fram­kvæmda­stjóra indó. Í sam­tali við Heim­ild­ina segir Haukar þetta fyrsta starfsár hafa gengið vonum framar, „við höfðum svona ákveðnar vænt­ingar og vonir, en við erum komin langt fram úr því sem við von­uð­umst eftir.“ 

Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu bank­ans er greint frá því að rúm­lega 45.000 manns hafi stofnað reikn­ing hjá indó á árinu og að sam­an­lagt hafi við­skipta­vinir bank­ans sparað 347 millj­ónir krónar með því að nota kort frá indó. Bankinn rukkar hvorki færslu­gjöld eða gjald­eyr­is­á­lag, sem bank­inn nefnir „óþarfa bull­gjöld.“

Spurður út í hvað sé framundan á nýju ári hjá indó segir Haukur að fyrri hluti árs­ins muni fara út í að útfæra útlána­þjón­ustu bank­ans. Hann leggur áherslu á að fyr­ir­tækið vandi sig sem allra mest við að kynna til leiks nýja þjón­ustu fyrir við­skipta­vini sína.

„Síðan erum við með alls­konar skemmti­lega hluti í píp­unum. Það eru hlutir eins og sam­eig­in­legir reikn­ingar. Svo ætlum við að opna á aðgang fyrir ein­stak­linga undir 18 ára líka. Við ætlum að gera það svona með hætti sem hefur ekki sést áður á Íslandi, sem gerir það soldið skemmti­legt,“ segir Haukur. 

„Við erum alveg skýrt plan með það hvað við ætlum að gera næstu miss­erin. Áskor­unin er að vanda sig í hverju skrefi ef við reynum að gera of mikið of hratt getur það skapað vanda­mál.“
Haukur Skúlason, fram­kvæmda­stjóri indó

Mörg verk­efni eru því fram undan og sjóð­ur­inn áætlar að færa við­skipta­vinum sínum fleiri þjón­ustu­mögu­leika á næstu miss­erum. Þá bendir hann einnig á að fyr­ir­tækið horfi gjarnan til vænt­inga og vilja við­skipta­vina sinni við for­gangs­röðun og þróun á nýjum vörum. Til mynda sé sjóð­ur­inn með hug­mynda­banka á vef­síðu sinni.

Indó tók form­lega til starfa 30. jan­úar á þessu ári og er fyrsti íslenski spari­sjóð­ur­inn sem hefur verið stofn­aður frá 1991. Fyr­ir­tækið ætlar sér að breyta íslensku banka­kerfi og fara ótroðnar slóðir. Meðal ann­ars með því að sleppa því að rukka óþarfa gjöld. Þá leggur spari­sjóð­ur­inn mikið upp úr gagn­sæi og trausti milli sjóðs­ins og við­skipta­vina hans. 

Sjóðurinn stækkar og tekjustraumum fjölgar

Upp­haf­lega voru tekju­straumar indó af tvennu tagi. Annars vegar af ávöxtun af inn­lánum sem lögð voru inn á við­skipta­reikn­ingi hjá Seðla­banka Íslands. Hinn tekju­straum­ur­inn var síðan af færslu­gjöldum sem sölu­að­ili greiðir þegar tekið er við greiðslu frá Visa-korti indó. Á árinu hefur sjóð­ur­inn stækkað og kjöl­farið fært sig  aðra eign­ar­hluta, sem hann hefur tekjur af.

„Til dæmis erum núna með rík­is­víxla og rík­is­verð­bréf sem við setjum fjár­mun­ina í. Svo nátt­úru­lega þegar við förum að lána út til okkar við­skipta­vina, þá fer hluti inn­lána við­skipta­vina í það að lána öðrum við­skipta­vinum,“ segir Haukur.    

Kjósa
46
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár