Við hvaða myndir keppir Hlynur Pálmason um Óskarsverðlaunin?

Úr Volaða landi.
Úr Volaða landi. Elliott Hove Crosset í hlut­verki sínu.

Hlynur Pálmason er nú kom­inn í skot­færi við Ósk­arsverð­launin eftir að myndin hans Volaða land náði inn á svo­nefndan stutt­lista 15 bíó­mynda frá jafn­mörgum löndum sem keppa um verð­laun sem besta alþjóð­lega myndin.

Hlynur Pálmason

Af þessum stutt­lista verða svo valdar fimm myndir er munu keppa á úrslita­kvöld­inu í febr­úar um hin einu sönnu verð­laun.

Árangur mynd­ar­innar hans Hlyns nú þegar er vita­skuld frá­bær en hann er þó sjálf­sagt ekki búinn að taka frá hillu­pláss fyrir verð­launa­stytt­una, því það er sann­ar­lega við ramman reip að draga og margar mjög athygl­is­verðar myndir um hit­una.

Hér fara á eftir upp­lýs­ingar um mynd­irnar 14 sem keppa við Volaða land og sjálf­sagt að taka fram að ég hef séð fæstar þeirra, svo fyrst og fremst er byggt á upp­lýs­ingum af net­inu og víðar.

Listinn er í staf­rófs­röð þeirra landa sem tefla fram við­kom­andi bíó­myndum.

Armenía

teflir fram mynd­inni Amerikatsi.

Michael Goordjian

Leik­stjóri er rúm­lega fimm­tugur banda­rískur leik­ari og leik­stjóri af armenskum ættum að nafni Michael Goorjian.

Hann fer og með aðal­hlut­verkið.

Myndin segir frá Banda­ríkja­manni af armenskum ættum sem kemur til Armeníu árið 1948 og ætlar að kynn­ast rótum sínum en lendir í fang­elsi enda ógn­ar­stjórn Stalíns enn í fullum gangi.

Úr fang­els­is­glugg­anum fylgist hann með lífi armenskrar fjöl­skyldu í nágrenn­inu. Myndin þykir taka á alvar­legum við­fangs­efnum á furðu líf­legan og lífs­glaðan hátt en er áreið­an­lega ívið of meló­dramat­ísk til að koma alvar­lega til greina þegar stutt­list­inn verður í lok jan­úar grisjaður niður í hinar fimm til­nefndu myndir.

Bhútan

komst á stutt­list­ann með mynd­ina Munk­ur­inn og byssan sem Pawo Choyning Dorji leik­stýrir.

Pawo Choyning Dorji

Þótt kvik­mynda­gerð í Himalaja-rík­inu Bhutan eigi sér ekki langa sögu virð­ist eitt­hvað vera að gerj­ast þar.

Aðeins eru tvö ár síðan mynd sama leik­stjóra, Lunana: Jakuxinn í skóla­stof­unni var ein 5 til­nefndra mynda til Ósarsverð­launa.

Hún hlaut ekki verð­launin þá en nú fær leik­stjór­inn ef til vill annað tæki­færi. Miðað við hve fáar myndir eru gerðar í Bhútan er fram­gangur hans alveg ein­stæður.

Nýja myndin ger­ist árið 2006 þegar Bhútan er að feta sig í átt til lýð­ræðis.

Þá birt­ist banda­rískur byssusafn­ari í Bhutan í leit að ævafornri byssu er bland­ast á sér­kenni­legan hátt inn í lýð­ræð­is­þró­un­ina.

Bretland

teflir fram mynd á þýsku og pólsku að þessu sinni. Hún heitir The Zone of Interest og er laus­lega byggð á skáld­sögu eftir Martin Amis.

Nokkrar bækur og bíó­myndir hafa komið fram síð­ustu árin þar sem fjallað er um vit­neskju og ábyrgð almennra borg­ara í Þýska­landi og fleiri löndum á hrann­vígum helfar­ar­innar í seinni heims­styrj­öld.

Þessi mynd er af því tagi.

Jonathan Glazer

Hún fjallar um huggu­legt fjöl­skyldu­líf Rudolf Höss fanga­búða­stjóra í Auschwitz. Fjöl­skyldan bjó í sjón­máli við hina hrylli­legu dauða­verk­smiðju sem Höss stjórn­aði en lét sem ekk­ert væri.

Sá fjöl­skyldan ekk­ert, vissi hún ekk­ert eða var henni skít­sama?

Þetta mun vera ansi sterk mynd sem lætur fáa ósnortra í yfir­læt­is­leysi sínu.

Sandra Hüller ku og vera sér­lega öflug í hlut­verki sínu sem frú Höss en Hüller er nýbúin að slá í gegn í frá­bærri franskri mynd sem flestir hér þekkja undir enska nafn­inu Anatomy of a Fall.

Sjá aðeins nánar um hana hér neðar.

Leik­stjóri The Zone of Interest er Jonathan Glazer en tíu ár eru síðan hann gerði síð­ast bíó­mynd — Under the Skin með Scarlett Johansen í hlut­verki geim­veru!

Danmörk

býður vita­skuld upp á nýj­ustu mynd Mads Mikk­el­sen, Bast­ar­den, eða The Promised Land eins og hún er kölluð á ensku. Hvernig Danir komust eig­in­lega af áður en Mads Mikk­el­sen var fund­inn upp er ótrú­legt.

Leik­stjóri er hinn þraut­reyndi Nikola Arcel en þeir Mikk­el­sen leiddu síð­ast saman hesta sína í mynd­inni En Kongelig Affære frá 2012.

Nikolaj Arcel

Í milli­tíð­inni reyndi Arcel fyrir sér í Hollywood og gerði stór­mynd­ina The Dark Tower eftir sögu Stephen King en hún hlaut hraksmán­ar­lega dóma og enga aðsókn.

Nú eru Arcel og Mikk­el­sen á svip­uðum slóðum og í áður­nefndri mynd um Kristján kon­ung 7. en nýja myndin fjallar um hlut­skipti danskra heið­ar­bænda á ofan­verðri 18. öld.

Fyrir Íslend­inga verður kannski sér­lega merki­legt að skoða mynd­ina með til­liti til þess að hún ger­ist á því svæði sem sumir létu sér detta í hug að gæti orðið athvarf Íslend­inga ef þeir þyrftu að flýja land sitt vegna móðu­harð­ind­anna.

Finnland

er líka á stutt­list­anum og þar er eng­inn smá­kall á ferð heldur sjálfur Aki Kauris­mäki með mynd­ina Fallin lauf sem þykir ein besta mynd hans í áraraðir.

Við­fangs­efnið er þó ekki bein­línis nýstár­legt af honum að vera, því myndin fjallar um tvær ein­mana og sér­lund­aðar mann­eskjur sem reyna að ná tengslum sín á milli.

Aki Kauris­mäki

Myndin hefur þegar hlotið gagn­rýnenda­verð­launin á Cannes-hátíð­inni og þykir til alls lík­leg.

Alma Pöysti þykir fara á sér­legum kostum í öðru aðal­hlut­verk­inu en Jussi Vatanen gefur henni víst lítið eftir í helsta karl­hlut­verk­inu.

Pöysti vakti athygli fyrir nokkrum árum þegar hún lék Tove Jansson höf­und Múmínálf­anna í ágætri mynd um ævi hennar.

Frakkland

kemur næst með mynd­ina La Passion de Dodin Bouffant eftir leik­stjór­ann Trần Anh Hùng.

The Taste of Things er myndin kölluð á ensku.

Trần Anh Hùng

Trần Anh Hùng fædd­ist í Víetnam en hefur búið í Frakk­landi frá 12 ára aldri.

Þekkt­astur er hann kannski fyrir mynd­ina Norwegian Wood sem gerð var eftir sögu Murakami, þótt hún hafi ekki þótt að öllu leyti vel heppnuð.

Nýja myndin skartar hinni eilífu Juliette Binoche og Benoît Magimel og mun fjalla á afar munúð­ar­fullan hátt um bæði ást og mat­ar­ást milli mið­aldra fólks. Maginel leikur eig­anda veit­inga­húss sem hefur Binoche í þjón­ustu sinni en hún er frá­bær kokkur sem Maginel verður smátt og smátt ást­fang­inn af.

Og ef ég skil þetta rétt, þá ákveður hann að elda fyrir hana mat og mat­ar­til­bún­ing­ur­inn verður eins­konar ást­ar­játn­ing.

Full ástæða fyrir unn­endur góðrar mat­ar­gerð­ar­listar og vand­aðra ást­ar­mynda að hlakka til að sjá þessa.

Unnendur franskra kvik­mynda furð­uðu sig hins vegar margir á því að þessi mynd skyldi til­nefnd til Ósk­arsverð­laun­anna fyrir hönd Frakk­lands en ekki hin magn­aða Anatomy of a Fall (sjá hér að ofan um bresku mynd­ina The Zone of Interest). Hún fékk gullpálmann á Cannes síð­ast­liðið vor og er magnað per­sónu­drama. Því er fleygt í Frakk­landi að elítan þar í landi hafi ákveðið að refsa leik­stjóra Anatomy, Justine Triet, fyrir gagn­rýni sem hún setti fram gegn Macron Frakk­lands­for­seta og því ekki lagt fram mynd­ina hennar.

Ítalía

tefldi fram mynd­inni Io Capitano eftir leik­stjór­ann Matteo Garrone.

Io Capitano fjallar um tvo unga menn frá Senegal sem ferð­ast frá heima­landi sínu til Ítalíu og talar því vita­skuld beint inn í flótta­manna­straum­inn frá Afríku sunnan Sahara til Evrópu.

Garrone fékk óþekkta leik­ara til að fara með aðal­hlut­verkin í mynd­inni og flestir flótta­menn­irnir sem tví­menn­ing­arnir eru sam­ferða töl­uðu tungu­mál sem Garrone sjálfur var ekki mæltur á.

Matteo Garrone

„Ég varð að hlusta á blæ radd­anna til að kom­ast að því hvort þeir voru að leika vel eða illa,“ segir hann.

Garrone er þekkt­astur fyrir mynd­ina Gomorrah frá 2008. Margir þekkja sjón­varps­s­er­í­una með sama nafni sem ger­ist í sama umhverfi og bíó­myndin.

Mynd Garrone er þó tölu­vert önnur skepna en sjón­varps­s­er­ían, bæði enn hrárri en sjón­varps­s­er­ían og á sinn hátt sann­ari.

Mynd Garrones, Dogman, frá 2018 er svo jafn­vel enn betri en Gomorrah. Þið ættuð að skoða hana ef þið hafið áhuga á raun­sönnum hrá­slaga­legum glæpa­myndum.

Eina stór­mynd hefur Garrone gert — Pinocchio eða Gosa fyrir nokkrum árum.

Japan

er á list­anum með nýj­ustu mynd þýska leik­stjór­ans Wim Wenders.

Myndin fjallar um mann sem sér um þrifnað á almenn­ings­kló­setti í Tókíó og mun vera flétta nokk­urra sagna um fólk sem hann á í sam­skiptum við bæði í vinn­unni og utan hennar.

Wim Wenders

Myndin kall­ast á ensku Perfect Days.

Wenders á skammt í átt­rætt og hefur verið í fram­lín­unni í hálfa öld en hann kom fram á sjón­ar­sviðið um svipað leyti í Þýska­landi og þau Werner Herzog, Rainer Werner Fass­binder, Marg­ar­ethe von Trotta, Völker Schlöndorff og fleiri.

Á átt­unda ára­tugnum gerðu þau öll merki­legar myndir en svo hall­aði undan fæti hjá þeim hvað fjár­mögnun snerti þótt þeir Herzog séu enn að í hárri elli.

Marokkó

er líka á stutt­list­anum.

Á ensku heitir myndin The Mother of All Lies en heiti hennar á arab­ísku mun þýða bók­staf­lega Hvítar lygar.

Þetta er heim­ild­ar­mynd, leik­stjóri er hin rúm­lega þrí­tuga Asmae El Moudir sem vakti heil­mikla athygli fyrir heim­ild­ar­mynd­ina Póst­kortið fyrir fáeinum árum. Í þeirri mynd eins og hinni nýju fjallar El Moudir um sögu sinnar eigin fjöl­skyldu.

Asmae El Moudir

Þá var það móðir leik­stjór­ans sem var í for­grunni en í þetta sinn amma hennar. Myndin virð­ist veru­lega for­vitni­leg en El Moudir og faðir hennar bjuggu til eins konar leik­brúðu­heim til að túlka sögu fjöl­skyld­unnar og að lokum fékk hún líka ömmu sína til að segja sögu sína — og þá sögu fjöl­skyld­unnar sem amman hefur haldið að fólki en er kannski ekki að öllu leyti sönn.

Það gekk þó ekki þrauta­laust því amma neit­aði að vera með í mynd­inni þar til El Moudir sagði henni að hún myndi þá fá leikkonu til að túlka hana.

Ömmunni fannst ómögu­legt að ein­hver kerl­ing úti í bæ væri að leika hana á hvíta tjald­inu svo hún féllst á að vera með — og setur víst stór­kost­legan svip á mynd­ina.

Mexíkó

er næst með mynd­ina Totém sem Lila Avilés stjórnar.

Avilés vakti þó nokkra athygli fyrir mynd­ina Þernan fyrir nokkrum árum en í þess­ari mynd er, að sögn, fjallað á ljúfsáran hátt um fjöl­skyldu sem er að halda sam­komu með heil­mik­illi við­höfn og börnin í fjöl­skyld­unni eru framan af í mið­punkti frá­sagn­ar­innar.

Lila Avilés

Allir virð­ast kátir og allt með felldu og gleðin við völd en þegar á líður kemur í ljós að til­efni sam­kom­unnar er kannski ekki jafn mikið fagn­að­ar­efni og ætla mætti.

Ég rakst á gagn­rýni á mynd­inni í blað­inu Guardian þar sem kemur fram að við­kom­andi gagn­rýn­anda fannst vanta eitt­hvað svo­lítið dramat­ískt inn­tak í mynd­ina, sér í lagi miðað við Þernu leik­stjór­ans.

Nógu margir hafa þó hrif­ist af þess­ari mynd Avilés til að hún á nú dágóða mögu­leika á að vera til­nefnd til Ósk­arsverð­launa.

Spánn

sendi fram mynd­ina La sociedad de la nieve.

Það þýðir Sam­fé­lagið í snjónum, eða eitt­hvað álíka.

A.J.Bayona

Myndin fjallar um fræga harm­sögu sem átti sér stað árið 1972. Þá fórst flug­vél á afskekktum fjallstindi í And­es­fjöllum í Suður-Ameríku meðal ann­ars með heilt íþróttalið inn­an­borðs.

Eft­ir­lif­endur björgð­ust ekki fyrr en eftir tvo mán­uði og voru aðstæður allar hinar skelfi­leg­ustu.

Þeir neydd­ust til að leggja sér lík félaga sinna til munns til að lifa af.

Myndin er sögð vera firna sterk lýs­ing á fólki sem verður að grípa til algjörra örþrifa­ráða í von um að kom­ast af við hrika­legar aðstæður.

Leik­stjóri er J.A.Bayona sem sló í gegn með mynd sinni Mun­að­ar­leys­ingja­hælið 2007 og hefur síðan meðal ann­ars gert eina Jurrasic Park mynd.

Túnis

á full­trúa á stutt­list­anum, heim­ild­ar­mynd­ina Fjórar dætur sem Kaouther Ben Hania leik­stýrir en hún var til­nefnd til Ósk­arsverð­laun­anna 2021 fyrir mynd­ina Maðurinn sem seldi húð sína. 

Myndin ku vera aldeilis mögnuð og virð­ist reyndar kall­ast merki­lega á við mynd­ina frá Marokkó sem nefnd var hér að ofan.

Kaouther Ben Hania

Hér segir nefni­lega frá konu sem eign­ast hefur fjórar dætur en tvær þær elstu eru horfnar — „étnar af úlf­inum“ eins og það er orðað í upp­hafi mynd­ar­innar.

Til þess að segja sögu móð­ur­innar og dætr­anna fjög­urra fær Ben Hania tvær leikkonur til að fara með hlut­verk hinna horfnu dætra í upp­rifjun á ævi móð­ur­innar og dætr­anna og úr verður, segja gagn­rýnendur, stór­merki­leg sam­þætt­ing skáld­skapar og veru­leika, þar sem kon­urnar reyna að takast á við „úlfinn“ og hver aðra.

Úkraína

er líka með heim­ild­ar­mynd á list­anum, 20 dagar í Mariupol sem Mstyslav Chernov leik­stýrði.

Vart þarf að fjöl­yrða um hvað þessi mynd er.

Þar er lýst umsátri Rússa um borg­ina Mariupol í upp­hafi inn­rásar Rússa í Úkraínu 2022.

Mstyslav Chernov

Chernov og félagar hans lok­ast inn í borg­inni og kom­ast ekki burt en reyna eftir bestu getu að skrá­setja þann hryll­ing sem þeir eru lentir í.

Myndin hefur víða farið um kvik­mynda­há­tíðir og sópað að sér verð­launum, enda þykir hún firna sterk, nema reyndar í Serbíu en hætt var við sýn­ingar á henni á kvik­mynda­há­tíð þar þar eð um væri að ræða „andrúss­neskan áróður“ sagðu hinir serbesku skipu­leggj­endur hátíð­ar­innar eftir að hafa séð mynd­ina.

Þýskaland

birt­ist svo á list­anum með mynd­ina Das Lehrerzimmer, eða Kenn­ara­stofan. Leik­stjóri er Ilker Çatak en aðal­hlut­verkið leikur Leonie Benesch.

Benesch leikur kennslu­konu sem fer að rann­saka málið þegar nem­andi við skól­ann hennar er sak­aður um þjófnað.

İlker Çatak

Þótt til­efnið virð­ist í upp­hafi ekki stórt stendur hún fyrr en varir frammi fyrir þungum sam­visku­spurn­ingum. Ýmislegt veru­lega óþægi­legt mun koma í ljós um móral­inn í skól­anum.

Sumir hafa minnst á dönsku mynd­ina Jagten þegar myndin berst í tal.

Hún hefur farið sig­ur­för um kvik­mynda­há­tíðir.

Leik­stjór­inn İlker Çatak hefur gert nokkrar myndir um fólk í hvers­dags­líf­inu sem tekst á við hvers­dags­lega hluti en fær­ist hér ívið meira í fang.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár