Skinney-Þinganes kaupir olíuketil og bæjarráðið skorar á ríkið

Lands­virkjun hefur til­kynnt um að skerða þurfi afhend­ingu á víkj­andi orku til fiski­mjöls­verk­smiðja. Á meðal þeirra sem verða fyrir þeirri skerð­ingu, vegna þess að fyr­ir­tækið hefur ekki keypt for­gangsorku, er Skinney-Þinganes. Það ætlar nú að kaupa olíu­ketil til að sjá verk­smiðju sinni fyrir vara­afli.

Skinney-Þinganes kaupir olíuketil og bæjarráðið skorar á ríkið
Verða fyrir skerð­ingu Skinney-Þinganes er á meðal þeirra fyr­ir­tækja sem hafi ekki gert samn­ing um kaup á for­gangsorku. Útgerðin mun því verða fyrir skerð­ingu á afhentri orku.

Í nýlegri bókun bæj­ar­ráðs Horna­fjarðar er skorað á stjórn­völd til þess að fara í aðgerðir til þess að tryggja næga raf­orku til not­enda og koma í veg fyrir að aðilar neyð­ist til keyra starf­semi sína á inn­fluttri og meng­andi orku.

Þá segir þar að í ljósi ástands­ins hafi sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Skinney-Þinganes, sem rekur meðal ann­ars fisk­mjöls verk­smiðju á Höfn, verið knúið til þess að festa kaup á olíu­katli til þess að sjá verk­smiðj­unni fyrir vara­afli. Olíu­ket­ill­inn er knú­inn með díselolíu. 

Í bók­un­inni lýsir bæj­ar­ráð „furðu sinni og von­brigðum með að við hér á landi séum komin í þá grafal­var­legu stöðu að fyr­ir­tæki sem hafa fjár­fest mikið og lagt metnað sinn í að reka sína fram­leiðslu á inn­lendum sjálf­bærum orku­gjöfum, sé nú sett í þá stöðu að þurfa að fjár­festa í tækjum sem fram­leiða orku og keyra á díselolíu.“ Þá segir að þessi þróun sé ekki í takt við lofts­lags­mark­mið íslenskra stjórn­valda. 

Kaupin á olíu­katl­inum koma í kjöl­far til­kynn­ingar Lands­virkjun um að skerða þyrfti afhend­ingu á víkj­andi orku til fiski­mjöls­verk­smiðja. Í þeirri til­kynn­ingu er tekið sér­stak­lega fram að fiski­mjöls­fram­leið­endur sem hafa ekki gert samn­inga um kaup á for­gangsorku muni verða fyrir áhrifum skerð­ing­ar­innar. 

Í frétt sem var birt á RÚV um málið kemur fram að Skinney-Þinganes sé á meðal þeirra fyr­ir­tækja sem hafi ekki gert samn­ing um kaup á for­gangsorku. Þar er haft eftir Erlingi Brynj­ólfs­syni, bræðslu­stjóra á Höfn, að til­kynn­ingin hafi komið þeim á óvart og að skerð­ingin gæti ollið vand­ræðum ef loðna finnst í vetur.

Ítrekaðar skerðingar á afhendingu raforku

Lands­virkjun hefur á und­an­förnum árum þurft að grípa til þess ráðs í auknum mæli, að skerða afhend­ingu á orku til stórnot­enda og smærri verk­smiðja víða um land. Lands­virkjun til­kynnti fyrr í vik­unni að skerða þurfi orku til stórnot­enda á suð­vest­ur­hluta lands­ins vegna þurrka. Skerð­ingin tekur gildi í jan­úar á næsti ári  gæti staðið yfir til loka apríl. 

Í kjöl­farið hafa orku­mál verið mikið umræði þar sem deilt er nauð­syn þess að skammta  eða auka fram­boð á raf­magni. Þá benda sömu­leiðis margir á að vand­inn sé hægt leysa með því að bæta inn­viði sem snúa að afhend­ingu raf­magns.   

Margir hafa komið fram og lýst yfir neyð­ar­á­standi vegna brýns orku­skorts í land­inu. Til að mynda sagði Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, í við­tali við RÚV í lok síð­asta mán­aðar, að ráð­ast verði taf­ar­laust í upp­bygg­ingu til þess auka fram­boð á raf­orku til þess að leysa vandan. Tilefni ummæl­anna voru vegna frum­varps atvinnu­vega­nefndar Alþingis til raf­orku­laga, sem hefur verið rædd á þingi í haust.

Lögin áttu meðal ann­ars að tryggja almenn­ingi og öðrum fyr­ir­tækjum en stórnot­endum raf­orku ef til skammt­ana kemur. Fjölmörg sam­tök og fyr­ir­tæki hafa gagn­rýnt frum­varpið og sent inn umsagnir. Meðal and­mæl­enda eru stórnot­end­urnir Norðurál og Alcoa, hags­muna­sam­tök á borð við Samtök Iðn­að­ar­ins og Samtök Atvinnu­lífs­ins. Þá leggj­ast HS orka, Orka nátt­úr­unnar og Veitur gegn frum­varp­inu líka.

Þá hafa líka sumir gagn­rýnt orð­ræð­una sem hefur skap­ast í kringum orku­málin og þá full­yrð­ingu að hér blasi við neyð­ar­á­stand vegna skorts á raf­orku.

Til mynda sagði Björg Eva Hauks­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar, í við­tali hjá RÚV að eft­ir­spurn eftir orku verði ávallt mikil og hægt sé að selja hana enda­laust. Staldra þurfi við að og hugsa um afleið­ing­arnar sem átak í að auk­inni raf­orku­fram­leiðslu hefur á nátt­úru Íslands. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár