Þrefalt fleiri sækja um meðferð við offitu en komast að

Þrefalt fleiri sækja um með­ferð hjá offituteymi Reykja­lundar ár hvert en kom­ast að. Plássum hjá teym­inu hefur ekki fjölgað á síð­ast­liðnum ára­tug en á sama tíma­bili hefur algengi sjúk­dóms­ins farið úr um 22 pró­sentum í 27. Læknir hjá teym­inu segir það miður að neyð­ast til þess að hafna fólki sem þarf sár­lega á þjón­ust­unni að halda.

Þrefalt fleiri sækja um meðferð við offitu en komast að
Á Reykja­lundi Guðrún og Olga við sund­laug­ina á Reykja­lundi þar sem margir skjól­stæð­ingar þeirra fara í vatns­leik­fimi. Mynd: Golli

Fólkið sem kemur inn á Reykja­lund í með­ferð við offitu hefur margt hvert orðið fyrir alvar­legum áföllum á lífs­leið­inni. Stór hluti hóps­ins hefur sætt for­dómum sam­fé­lags sem dæmir út frá holda­fari og hefur reynt ýmis­legt til þess að ná tökum á sjúk­dómnum með tak­mörk­uðum árangri.

Í byrjun með­ferð­ar­innar, sem getur tekið upp undir heilt ár, eru margir skjól­stæð­ing­anna illa staddir bæði and­lega og lík­am­lega en við útskrift upp­lifir fólk almennt betra ástand: Ekki bara sterk­ari vöðva og betri blóð­syk­ur­s­stjórnun en áður heldur líka sterk­ari sjálfs­mynd og neista í brjóst­inu, neista til þess að halda áfram á veg­ferð­inni til heil­brigð­ara lífs, að sögn læknis og hjúkr­un­ar­fræð­ings hjá teym­inu.

Frekari rann­sóknir og gögn um lang­tíma árangur með­ferð­ar­innar skortir aftur á móti, rétt eins og í til­vikum ann­arra með­ferða við offitu á Íslandi. 

Fjöldi plássa endurspegli ekki tækifærin

Offituteymi Reykja­lundar er stærsta og reynslu­mesta þver­fag­lega teymi lands­ins sem sér­hæfir …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár