Flagga friðarfána með dúfu við ráðhúsið í mánuð

Borg­ar­ráð Reykja­víkur sam­þykkti í dag að flagga hvítum fána með mynd af dúfu við ráð­hús borg­ar­innar, í heilan mánuð frá Þor­láks­messu.

Ráðhúsið
Ráðhúsið Hvítum frið­ar­fána verður flaggað við ráð­húsið í Reykja­vík í heilan mánuð, frá Þor­láks­messu. Mynd: Davíð Þór

Á Þor­láks­messu verður hvítur frið­ar­fáni með mynd af dúfu dreg­inn að húni við ráð­hús Reykja­víkur og hann lát­inn standa í mánuð, en til­laga þessa efnis var sam­þykkt á fundi borg­ar­ráðs í dag. Tillagan var borin upp af öllu borg­ar­ráði, auk áheyrn­ar­full­trúa.

Ákall hefur uppi um að palest­ínskum fána verði flaggað við ráð­húsið við Tjörnina und­an­farnar vikur, en full­trúar Sós­í­alista­flokks­ins í borg­ar­stjórn voru á meðal þeirra sem höfðu lagt það til.

Undir lok nóv­em­ber var palest­ínskur fáni svo dreg­inn að húni við ráð­húsið að næt­ur­lagi, en fjar­lægður að morgni dags.

Í til­lög­unni sem borg­ar­ráð sam­þykkti í dag kemur fram að hvítum frið­ar­fána verði flaggað í  „þágu mann­úðar“ og  „til stuðn­ings við þá ský­lausu kröfu að almennum borg­urum sé hlíft við stríðs­á­tökum í þágu mann­úðar“.

Ráðgjöf frá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála

Í til­lög­unni sem borg­ar­ráð sam­þykkti í dag segir jafn­framt að frið­ar­dúfan sé tákn­ræn fyrir frið, sam­hug, sam­stöðu og mannúð. Þar segir einnig að borg­ar­ráð hafi leitað til Stofn­unar stjórn­sýslu­fræða og stjórn­mála við Háskóla Íslands, sem hafi mælt með fána með frið­ar­dúfu. 

„Lagt er til að frið­ar­fán­inn verði dreg­inn að húni við Ráðhús Reykja­víkur á Þor­láks­messu og standi í mánuð,“ segir í til­lög­unni, sem var síð­asta mál á dag­skrá á fundi borg­ar­ráðs í dag.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Hræsnin í Borgarstjórn Reykjavíkur! Þegar þurfti að sýna Úkraínu stuðning þá var fána Úkraínu flaggað í ráðhúsinu og Höfða og sérstök tilkynning á Facebook um það. En þegar kemur að Palestínu þá er samúð borgarstjórnarinnar með Ísrael!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár