Samkeppniseftirlitið telur Festi hafa framið alvarleg brot á lögum

Samkvæmt frummati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins þá hefur Festi brotið alvar­lega gegn sátt sem félagið gerði vegna sam­runa þess við N1 fyrir rúmum fimm árum síðan. Festi seg­ist enn þeirrar skoð­unar að félagið hafi ekki brotið af sér og mun nýta and­mæla­rétt sinn.

Samkeppniseftirlitið telur Festi hafa framið alvarleg brot á lögum
Ekki sátt Ásta S. Fjeld­sted stýrir Festi. Hún var þó ráðin í það starf í fyrra haust og var því ekki for­stjóri þegar sáttin varð gerð sum­arið 2018. Þá stýrði Eggert Þór Krist­ó­fers­son Festi. Páll Gunnar Pálsson er for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu í frummati að Festi hf., eitt stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki lands­ins, hafi brotið gegn ákvæðum sáttar sem félagið gerði við eft­ir­litið sum­arið 2018, þegar N1 sam­ein­að­ist Festi. Það er mat eft­ir­lits­ins að brot Festi séu „alvar­leg“. 

Eftir lokun mark­aða í gær barst Festi and­mæla­skjal frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu þar sem hin ætl­uðu brot voru fram­sett en rann­sókn eft­ir­lits­ins á þeim hófst í des­em­ber 2020, og hefur því þegar staðið yfir í þrjú ár. 

Í til­kynn­ingu sem Festi sendi til Kaup­hallar Íslands í morgun kemur fram að í and­mæla­skjal­inu sé gerð grein fyrir því frummati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að Festi hafi í nokkrum liðum brotið gegn ákvæðum sáttar félags­ins við eft­ir­litið sem gerð var 30. júlí 2018 vegna sam­runa N1 og Festi. Jafn­framt sé vísað til ætl­aðra brota gegn 19. og 17. grein sam­keppn­islaga. Sú fyrri fjallar um upp­lýs­inga­skyldu og sú síð­ari um skil­yrði sam­runa.

Festi segir í til­kynn­ing­unni að and­mæla­skjalið feli „hvorki í sér stjórn­valds­á­kvörðun né er það á nokkurn hátt bind­andi. Svo sem greinir í and­mæla­skjal­inu er það ritað í þeim til­gangi að auð­velda Festi að nýta and­mæla­rétt sinn sam­kvæmt stjórn­sýslu­lögum og stuðla að því að rétt ákvörðun verði tekin í mál­inu.“

Þá sé því lýst að ef athuga­semdir, skýr­ingar eða ný gögn þykja gefa til­efni til, geti frummatið tekið breyt­ingum. „Festi er enn þeirrar skoð­unar að félagið hafi ekki brotið gegn ákvæðum sátt­ar­innar við SE og er vinna hafin við að bregð­ast við til­greindu and­mæla­skjali og því frummati sem þar er lýst.“

Getur haft alvarlegar afleiðingar

Frummat Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins er, líkt og áður sagði, „ að meint brot Festi séu alvar­leg og að til álita komi að beita við­ur­lögum á grund­velli 37. gr., 3. mgr. 17. gr. e. og 1. og 2. mgr. 16. gr. sam­keppn­islaga.“

Í þriðju máls­grein 17. greinar e. er heim­ild fyrir Sam­keppn­is­eft­ir­litið til að aft­ur­kalla ákvörðun um að heim­ila sam­runa ef ákvörð­unin er byggð á röngum upp­lýs­ingum sem ein­hver sam­runa­að­ila ber ábyrgð á eða þegar hún er fengin fram með blekk­ingum eða að hlut­að­eig­andi fyr­ir­tæki brjóta gegn skil­yrðum sem sam­runa hafa verið sett.

Í annarri máls­grein 16. greinar sam­keppn­islaga segir að aðgerðir Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins geti falið í sér hverjar þær ráð­staf­anir sem nauð­syn­legar eru til að efla sam­keppni, stöðva brot eða bregð­ast við athöfnum opin­berra aðila sem kunna að hafa skað­leg áhrif á sam­keppni. „Sam­keppn­is­eft­ir­litið getur beitt nauð­syn­legum úrræðum bæði til breyt­ingar á atferli og skipu­lagi vegna þeirra atriða sem til­greind eru í 1. mgr. í réttu hlut­falli við það brot sem framið hefur verið eða þær aðstæður eða hátt­semi sem um ræðir.] Þó er ein­ungis heim­ilt að beita úrræðum til breyt­ingar á skipu­lagi ef sýnt þykir að ekki sé fyrir hendi árang­urs­ríkt úrræði til breyt­ingar á atferli eða þar sem jafn­ár­ang­urs­ríkt úrræði til breyt­ingar á atferli væri meira íþyngj­andi fyrir hlut­að­eig­andi aðila en úrræði til breyt­ingar á skipu­lagi.“

Áttu að selja frá sér ýmsar eignir

Umrædd sátt var und­ir­rituð síðla árs 2018. Hún heim­il­aði Festi, sem rak Krón­una og fleiri mat­vöru­versl­an­ir, Elko og vöru­hót­elið Bakk­ann að sam­ein­ast eld­neyt­is­ris­anum N1. Í sátt­inni fólst meðal ann­ars að selja átti fimm sjálfs­af­greiðslu­stöðvar til nýrra, óháðra aðila á elds­neyt­is­mark­aði. Um var að ræða þrjár sjálfs­af­greiðslu­stöðvar undir merkjum Dæl­unnar við Fells­múla og Staldrið í Reykja­vík og Hæð­ar­smára 8 í Kópa­vogi, og tvær stöðvar undir merkjum N1 við Salaveg í Kópa­vogi og Vatna­garða í Reykja­vík. Þá átti sam­einað félag að selja verslun Kjar­vals á Hellu ásamt verslun Krón­unnar í Nóatúni. 

Festi seldi bens­ín­stöðv­arnar fimm til Ein­ars Arnar Ólafs­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra Skelj­ungs og umsvifa­mik­ils fjár­fest­is, og hann seldi þær síðar áfram til Skelj­ungs, sem í dag heyrir undir SKEL fjár­fest­inga­fé­lag. Samkaup keypti versl­an­irnar á Hellu og í Nóatúni. 

Sér­stakur óháður kunn­áttu­maður, lög­mað­ur­inn Lúðvík Berg­vins­son, var skip­aður til að hafa eft­ir­lit með því að skil­yrðum sáttar Festar við Sam­keppn­is­eft­ir­litið yrði fylgt eftir. Hann átti að ljúka störfum í lok ágúst í ár. Kostn­aður vegna kunn­áttu­manns­ins var umtals­verður fyrstu árin eftir skipun hans en fór svo hratt lækk­andi. Í sum­ar­lok í fyrra var hann alls kom­inn upp í 61 milljón króna en á fyrstu átta mán­uðum árs­ins 2022 hafði hann ein­ungis verið tæp­lega 2,6 millj­ónir króna. 

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Einar Örn, Skel, Jón Ásgeir! Það er ekkert víst að þarna séu brögð og blekkingar að baki. Festi bara saklaust fórnarlamb......
    1
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    ,,Kunnáttumaðurinn" fékk milljónir í laun, er þá ekki allt gott ?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár