Verðlagseftirlit sett í hendur neytenda

Prís, nýtt smá­forrit gegn verð­bólg­unni, kom út í síð­ustu viku og er ætlað til verð­sam­an­burðar á vörum í versl­unum. Forritið mun halda áfram að þró­ast og í fram­tíð­inni verður not­endum kleift að sjá hvar sé hag­stæð­ast að versla sína mat­ar­körfu.

Verðlagseftirlit sett í hendur neytenda
Verðlag Alþýðu­sam­bandið hefur sett í loftið smá­forrit sem leyfir neyt­endum að skanna strik­a­merki og sjá umsvifa­laust nýj­ustu athug­anir á verði vör­unnar í mis­mun­andi versl­unum. Mynd: Shutterstock

Smá­forritið Prís kom út í síð­ustu viku, en það er á vegum verð­lags­eft­ir­lits Alþýðu­sam­bands Íslands. Til­gangur for­rits­ins er að gera not­endum kleift að kanna verð­lags­mun á milli versl­ana á auga­bragði. Við­skipta­ráðu­neytið styrkti ASÍ um 15 millj­ónir króna til að vinna þetta verk­efni. Sam­eig­in­legt mark­mið beggja aðila er að vinna gegn verð­bólg­unni.

„Við byrj­uðum í vor að safna verðum í verð­lags­eft­ir­lit­inu á miklu breið­ari grunni en við höfum verið að gera áður, þar sem við vorum hægt og bít­andi farin að skoða öll verðin sem voru skráð í mat­vöru­versl­unum. Okkur datt í hug, sem hlið­ar­af­urð af því, að við myndum ekki bara geta gert góðar grein­ingar á verð­lagi, heldur getum við líka gefið fólki aðgang að gögn­unum. Við lögðum upp með það í haust að koma út appi fyrir jól og það bara svona rétt slapp,“ segir Benjamín Julian, verk­efn­is­stjóri verð­lags­eft­ir­lits ASÍ.

Notendur geta gert verð­sam­an­burð milli versl­ana þegar …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár