Vonar að fjölskyldan þurfi ekki að bregða búi til að tryggja öryggi sonar síns

Hjörvar Árni Leósson, faðir drengs sem glímir við fjöl­þætta fötlun, segir að ákvörðun sveit­ar­stjórn Skaga­fjarðar um að loka Grunn­skól­anum austan Vatna á Hólum koma syni sínum og fjöl­skyldu sér­lega illa. Ekkert til­lit hafi verið tekið til sonar hans þegar ákvörð­unin var tekin. Til að mynda sé ekki gert ráð fyrir syni hans í skóla­bíl næsta vetur.

Vonar að fjölskyldan þurfi ekki að bregða búi til að tryggja öryggi sonar síns
Hjörvar Árni Leósson og sonur hans á Fjöl­skyldan hefur þurft að berj­ast fyrir því fá við­un­andi þjón­ustu og traust aðgengi í leik­skól­anum á Hólum. Mynd: Mynd/Aðsent

Hjörvar Árni Leósson bóndi, sem er faðir drengs með floga­veiki, hreyfi- og þroska­skerð­ingu, ótt­ast að þurfa að flytja úr sveit­inni austan Vatna í Skaga­firði, vegna lok­unar á starfs­stöð grunn­skól­ans á Hólum í Hjalta­dal.

Hjörvar segir að aðgeng­is­mál fyrir börn með fötlun í algjörum ólestri í grunn- og leik­skólum í Skaga­firði. Í færslu sem Hjörvar birti á Facebook-síðu sinni segir hann að sveit­ar­fé­lagið hafi ítrekað brugð­ist í skóla­þjón­ust­unni, sér­stak­lega gagn­vart þeim sem búa fyrir utan Sauð­ár­krók.

Hjörvar býr í Laufkoti austan megin í Skaga­firð­inum. Fram að þessu hefur Grunn­skól­inn austan Vatna, eins og hann heitir, haldið úti starf­semi á Hofsósi og svo á Hólum í Hjalta­dal, þar sem sonur Hjörvars hefur sótt skóla. Fyrr í þessum mán­uði tók byggð­ar­ráð Skaga­fjarðar ákvörðun um að loka Grunn­skól­anum austan Vatna á Hólum. Ástæð­urnar að baki ákvörð­un­inni, sem getið er í fund­ar­gerð­inni, eru sagðar vera að erfitt sé að tryggja nem­endum grunn­skól­ans austan Vatna á Hólum nægi­lega þjón­ustu.

Hjörvar segir að sveit­ar­fé­lagið hafi ekki sinnt skyldu sinni um að tryggja gott aðgengi fyrir börn með fötlun. Nauð­syn­legar lag­fær­ingar hafi verið gerðar of seint, gjarnan eftir að vanda­mál hafi komið upp. Nú ber svo við að sonur hans mun sækja skóla sem er tals­vert lengra í burtu frá heim­ili fjöl­skyld­unnar. 

Í sam­tali við Heim­ild­ina segir Hjörvar að fjöl­skyldan hafi upp­haf­lega séð fyrir sér að „fyrstu árin yrði hann á Hólum, þar sem grunn­skól­inn er rek­inn í sama hús­næði og leik­skól­inn, umhverfi sem hann þekkir á leik­skól­anum í sama húsi eru líka starfs­menn sem þekkja hann. Við sáum fram á að hægt væri að hafa ein­hverja skörun við leik­skól­ann þessi fyrstu ár til að auð­velda honum umskiptin.“

Í færsl­unni á Facebook bendir Hjörvar á nokkur dæmi sem sýnir hversu illa í stakk búinn, skól­inn á Hofsósi er til þess að taka á móti börnum sem eru með hreyfi­hömlun. Til að mynda sé und­ir­lag á bílaplani og úti­leik­svæði skól­ans ekki fært þeim sem styðj­ast við stoð­tæki. Þá eru dyr í skól­anum víða ófærar hreyfi­höml­uðum án aðstoðar og víða vantar rampa við þrösk­ulda. Sömu­leiðis sé ekki gert nægi­lega vel ráð fyrir aðgengi hreyfi­haml­aðra í mat­sal og íþrótta­sal skól­ans.

Þá bætir Hörður við í sam­tali við Heim­ild­ina, að ekki sé gert ráð fyrir syni hans í skóla­bíl næsta vetur. „Það er hvorki gert ráð fyrir honum né stuðn­ings­að­ila fyrir hann í þeim gögnum. Það má svo því líta á að aðgengi hans að skól­anum tak­mark­ist strax við afleggjar­ann að heim­ili okkar. Auðvitað er það eitt­hvað sem má leysa en af hverju er ekk­ert sam­tal og sam­ráð og af hverju eru allar ráð­staf­anir gerðar eftir á?“ spyr hann.

Langvarandi skortur á nauðsynlegri þjónustu

Á stuttri skóla­göngu sinni hefur son Hjörvars reglu­lega skort nauð­syn­lega þjón­ustu. Til að mynda hefur ekki tek­ist að ráða stuðn­ings­að­ila fyrir dreng­inn á leik­skól­anum síðan að stuðn­ings­að­ili hans hætti störfum og flutti úr sveit­ar­fé­lag­inu, fyrir tveimur árum. Strák­ur­inn hefur mjög skerta tján­ingu með tali og tjáir sig þar að leið­andi með táknum.

Þá hefur ekki tek­ist að manna leik­skól­ann með þeim hætti að hægt sé að halda úti fullu leik­skóla­starf. „Þetta hefur orðið til þessa að hann hefur ekki nýtt leik­skóla nema að hálfu leyti meira og minna þessi tvö ár,“ segir Hjörvar.

Hann segir fjöl­skyldu sína hafa barist fyrir því lengi að sveit­ar­fé­lagið myndi laga leik­skóla­lóð­ina á Hólum. Til að mynda segir hann fjöl­skyld­una hafa þurft að fá rétt­inda­gæslu­mann fatl­aðra til þess að þrýsta á sveit­ar­fé­lagið til ganga hraðar til verka. Nú sé leik­skóla­lóðin til fyr­ir­myndar, en Hjörvar leyfir sér að efa að breyt­ing­arnar að væru enn „komnar til fram­kvæmda ef rétt­inda­gæslu­maður hefði ekki til­kynnt sveit­ar­fé­lagið vegna slæms aðgengis“.

Ólíðandi aðstæður

Þá gagn­rýnir Hjörvar sömu­leiðis fyr­ir­hyggju­leysi sveit­ar­fé­lags­ins og seina­gang í fram­kvæmdum þegar kemur að aðgeng­is­málum í skólum. Um leið og dreng­ur­inn mun hefja skóla­göngu sína næsta haust hefj­ast fram­kvæmdir í skól­anum á Hofsósi. Til stendur til að byggja íþrótta­hús, færa mötu­neytið og gera aðrar breyt­ingar inn­an­húss til þess að bæta aðgengi. Þessar fram­kvæmdir munu skapa „ólíð­andi aðstæður“ fyrir son hans, nán­ast allt skóla­göngu hans, ef ekki kemur til flutn­inga.

„Við erum ekki bara að missa draum okkar um líf í sveit­inni sem við höfum unnið að í tæpan ára­tug“
Hjörvar Árni Leósson
Bóndi á Laufkoti í Skaga­firði

Í sam­tali seg­ist Hjörvar vona að hann þurfi ekki flytja á brott til þess að tryggja öryggi og vel­ferð sonar síns. Fjöl­skyldan stundi búskap, þar sem heim­ili og vinna eru sam­tvinnuð.

„Við erum ekki bara að missa draum okkar um líf í sveit­inni sem við höfum unnið að í tæpan ára­tug, æsku­heim­ili barn­anna okkar, fara úr nær­sam­fé­lagi sem er okkur mjög kært frá vinum og vanda­mönnum, heldur erum við líka atvinnu­laus,“ segir Hjörvar um aðstæð­urnar sem skap­ast ef hann neyð­ist til að flytja. Hann skorar á sveit­ar­stjórn Skaga að draga þessa ákvörðun til baka.  

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár