Noorina og Asil komnar með íslenskan ríkisborgararétt – Alþingi samþykkti 20 nýja Íslendinga

Íslenskum rík­is­borg­urum fjölg­aði um 20 í gær sam­kvæmt ákvörðun Alþingis. Þar á meðal eru tvær ungar konur, ann­ars vegar frá Afganistan og hins vegar frá Palest­ínu, sem stigu fram í Heim­ild­inni nýverið. Önnur, 27 ára læknir, flúði ógn­ar­stjórn Talíbana. Hin, sautján ára frá Gaza, missti fjöl­skyldi­una sína og hluta af vinstri fæti í loft­árás Ísraela.

Noorina og Asil komnar með íslenskan  ríkisborgararétt – Alþingi samþykkti 20 nýja Íslendinga
Barist fyrir þær Noorina naut lið­sinnis Ingi­bjargar Sólrúnar Gisla­dóttur í bar­áttu sinni fyrir að fá að vera á Íslandi og bróðir Asil, sem býr hér á landi, hefur barist fyrir að fá systur sína hingað. Mynd: Samsett


Alþingi veitti 20 nýjum Íslend­ingum rík­is­borg­ara­rétt í gær, en hægt er að sækja um slíkan rétt til alls­herjar- og mennta­mála­nefndar. Alls bár­ust nefnd­inni 127 umsóknir og hún lagði til að umsækj­endum á 18 þeirra yrði veittur rík­is­borg­ara­réttur að þessu sinni auk barna tveggja barna umsækj­enda. 

Á meðal þeirra sem fengu rík­is­borg­ara­rétt var Noorina Khalikyar, afganskur læknir sem flúði Kabúl eftir valda­töku Talíbana árið 2021, en eftir hana voru konur sviptar flestum mann­rétt­indum og tæki­færum sem talin eru sjálf­sögð víða í hinum vest­ræna heimi. Noorina fór fyrst til Rúmeníu en fékk engin tæki­færi og í við­tali við Heim­ild­ina í byrjun nóv­em­ber sagð­ist hún: „Ég hefði dáið einu sinni í Afganistan ef þeir hefðu komið og drepið mig þar. En í Rúmeníu dó ég dag­lega.“ Hún sagð­ist hafa fengið kaldar kveðjur frá Rúmenum sem hleyptu henni ekki inn í sam­fé­lagið. „Mig lang­aði að enda líf mitt því ég sá engan til­gang í því að berj­ast áfram.“

Í maí síð­ast­liðnum kom hún til Íslands. Eitt af hennar fyrstu verkum var að fara í Krónuna að kaupa sér í mat­inn. „Ég bað konu um aðstoð, ég vissi ekki hvaða jógúrt ég ætti að velja. Konan sagði: Velkomin til Íslands! Hvernig get ég hjálpað þér?“ rifjar Noorina upp með bros á vör. Hún varð strax hrifin af land­inu og þakk­lát fyrir það hve vel Íslend­ingar tóku henni. 

„Ísland er von um nýtt líf, nýtt upp­haf. Ísland er lognið sem ég þurfti eftir þrumu­veðrið sem ég var stödd í. Hér á ég tæki­færi á að end­ur­fæð­ast, eign­ast nýtt líf í góðu sam­fé­lagi með góðu fólki. Þess vegna sótti ég um alþjóð­lega vernd.“ 

Þeirri beiðni var hins vegar hafnað á þeim grund­velli að hún væri með stöðu flótta­manns í Rúmeníu.

Ingibjörg Sólrún aðstoðaði

Noorina kynnt­ist svo Ingi­björgu Sólrúnu Gísla­dóttur, fyrr­ver­andi for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar, borg­ar­stjóra og utan­rík­is­ráð­herra. Hún hjálp­aði henni með mál sitt á meðan að beðið var nið­ur­stöðu hjá kæru­nefnd útlend­inga­mála, en Ingi­björg bjó og starf­aði í tvö ár í Afganistan á vegum UN Women.

Í við­tal­inu við Heim­ild­ina í nóv­em­ber sagði Noorina: „Ef ég fæ að vera hér vona ég að ég geti klárað sér­námið mitt, ég veit að hér vantar lækna og von­andi get ég hjálpað til við það. Ég get séð svo fal­lega fram­tíð hér því þetta er land kvenna.“

Nú hefur henni verið veittur rík­is­borg­ara­réttur og er orð­inn Íslend­ingur. Ingi­björg Sólrún birti færslu á Facebook í gær­kvöldi vegna þessa þar sem hún sagði að í gær hafi komið besta jóla­gjöf sem hugs­ast getur í hús. „Alþingi sam­þykkti að veita Noorinu Khalikyar frá Afganistan íslenskan rík­is­borg­ara­rétt. Nú getur hún loks­ins farið að skipu­leggja fram­tíð sína eftir tvö ár á flótta í algerri óvissu. Kærar þakkir til Alþingis og ykkar allra sem lögðuð ykkar að mörkum til að þessi nið­ur­staða feng­ist. Þið vitið hver þið eruð.“ 

Missti fjölskyldu sína og hluta af fætinum

Önnur ung kona sem fékk rík­is­borg­ara­rétt eftir að hafa sótt um í gegnum alls­herjar- og mennta­mála­nefnd er Asil J. Suleiman Almassri. Hún er sautján ára stúlka frá Palest­ínu sem sem slas­að­ist al­var­lega í nýlegri loft­árás Ísra­els­hers. Afleið­ingar þessa voru meðal ann­ars þær að fjar­lægja þurfti vinstri fót hennar fyrir ofan hné.

Hún sagði í sam­tali við Heim­ild­ina í kjöl­farið að það hafi verið eins og heim­ur­inn henn­ar hafi rifn­að í sund­ur. For­eldr­ar henn­ar, eldri syst­ir, mág­ur og fimm ára frændi henn­ar dóu í árás­inni. Barn­ung­ir syst­ur­syn­ir henn­ar slös­uð­ust. Asil hefur dvalið á spít­ala í Egypta­landi en bróð­ir henn­ar, sem býr á Ís­landi, hefur barist fyrir því a fá hana hing­að. Til stóð að senda Asil aftur til Gaza þegar bráða­með­ferð hennar yrði lokið, þar sem hún átti engan lengur að og búið var að jafna heim­ili hennar við jörðu.

Í við­tal­inu við Heim­ild­ina sagði Asil að hún gæti ekki farið aftur til Gaza. „Ég á engan að þar. Ég er alvar­lega þung­lynd, ég er ein­mana og hrædd. Ég lifi í martröð.“

Miðflokkurinn sat hjá

Fyr­ir­komu­lag þess umsókn­ar­ferlis sem leiðir af sér að Alþingi veitir hluta umsækj­enda rík­is­borg­ara­rétt með ofan­greindum hætti er þannig að sér­stök und­ir­nefnd alls­herjar- og mennta­mála­nefndar, sem í sitja þrír þing­menn, fer yfir allar umsóknir sem ber­ast. Birgir Þór­ar­ins­son úr Sjálf­stæð­is­flokki, Jódís Skúla­dóttir úr Vinstri grænum og Dagbjört Hákon­ar­dóttir úr Sam­fylk­ingu skip­uðu nefnd­ina að þessu sinni, en Birgir stýrði starfi hennar. 

Sat hjáAllur þing­flokkur Mið­flokks­ins, sem telur tvo þing­menn, sat hjá þegar kosið var um að veita ein­stak­ling­unum 20 íslenskan rík­is­borg­ara­rétt.

Alls sam­þykktu 50 þing­menn úr sjö mis­mun­andi flokkum á þingi að veita ein­stak­ling­unum 20 rík­is­borg­ara­rétt þegar málið var afgreitt í gær. Ellefu þing­menn voru fjar­ver­andi og greiddu ekki atkvæði. Einu þing­menn­irnir sem voru við­staddir sem sátu hjá við atkvæða­greiðsl­una voru báðir þing­menn Mið­flokks­ins, þeir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bergþór Ólason.

Kjósa
59
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Þessi frétt lýsir spillingunni sem er inngróin í þjóðarsálina. Ef þú þekkir mann sem þekkir mann þá opnast allar dyr. Og ef sá maður hefur líka pólitízka innistæðu þá færðu jafnvel íslenzkan ríkisborgararétt á meðan aðrir heyra bara ..Þú ert númer 100 í röðinni...." Að því sögðu þá óska ég öllum nýju ríkisborgurunum til hamingju með þá stöðu sem ríkisborgararétturinn veitir.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár