„Það er eins og ríkisstjórnin telji að íslenska meðalheimilið svífi um á rósrauðu skýi“

Hart var sótt að ófull­nægj­andi aðgerðum til að bæta hag heim­ila lands­ins í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar á Alþingi í dag. Logi Ein­ars­son, þing­maður Sam­fylk­ingar, sagði að for­kast­an­legt væri að fjár­lögin væru „ger­sneydd skiln­ingi á stöðu almenn­ings í land­inu.“ Guð­brandur Ein­ars­son, þing­maður Við­reisnar, sagði að í frum­varp­inu væru fjár­magns­eig­end­ur­teknir yfir almenn­ing.

Gagnrýni
Gagnrýni Logi Ein­ars­son gagn­rýndi fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar á Alþingi í dag. Kosið verður um frum­varpið á morgun. Mynd: Bára Huld Beck

Logi Ein­ars­son, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ingar, fór ómjúkum orðum um fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar í ræðu sinni á Alþingi í dag. Segir hann flokk sinn ekki standa með þeim áherslum gagn­vart almenn­ingi sem fram kæmu í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar. „Það er ömur­legt að þurfa hér í síð­ustu störfum þings­ins á þessu ári að þurfa að lýsa von­brigðum með afrakstur hausts­ins,“ sagði hann.

5.000 heimilum „skutlað út úr vaxtabótakerfinu“

Var Logi helst óánægður með að ekki nægi­lega væri hugað að hag heim­il­anna í fjár­lögum. „Það er eins og rík­is­stjórnin telji að íslenska með­al­heim­ilið svífi um á ein­hverju rós­rauðu skýi.“ Vísaði hann til mik­illar verð­bólgu og hárra stýri­vaxta sem hafa mikil áhrif á kjör almenn­ings.

Sagði Logi að við­brögð rík­is­stjórn­ar­innar við slæmum hag heim­il­anna væri að „skutla 5.000 heim­ilum út úr vaxta­bóta­kerf­inu og með því að leyfa barna­bótum og hús­næð­is­bótum að lækka að raun­virði.“

Sagði hann for­kast­an­legt væri að fjár­lögin væru „ger­sneydd skiln­ingi á stöðu almenn­ings í land­inu.“ Við lok ræðu sinnar sagði Logi að „ef rík­is­stjórnin væri bíó­mynd hefði hún fengið svona 1,2 til 2 á Rotten Tomatoes.“

Fjármagnseigendur teknir fram yfir almenning

Guð­brandur Ein­ars­son, þing­maður Við­reisnar, tal­aði í svip­uðum dúr í ræðu sinni. Hann sagði að það að kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna hefði minnkað fimm árs­fjórð­unga í röð og að rúm 30% lands­manna ættu erf­ið­ara með að ná endum saman en áður ættu að vera skýr skila­boð til stjórn­mála­manna.

Harmaði hann að fjár­laga­frum­varpið sem kosið verður um á morgun væri ekki nýtt til að snúa þess­ari þróun við. „Þeir mögu­leikar sem rík­is­stjórnin hefur m.a. í til­færslu­kerf­unum til að jafna hlut fólks eru ekki nýttir. Þvert á móti munu mun færri fá hús­næðis-, vaxta- og barna­bætur á næsta ári og það segir ýmis­legt um for­gangs­röðun þess­arar rík­is­stjórnar.“

Hélt Guð­brandur því fram að um til­færslu fjár­muna frá íslensku launa­fólki til fjár­magns­eig­enda væri að ræða. En þeir síð­ar­nefndu þyrftu ekki á auknum fjár­munum að halda. „Við eigum að taka almanna­hags­muni fram yfir sér­hags­muni og tryggja að ekki sé verið að grafa dýpra og dýpra ofan í vasa almenn­ings.“

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Stoltur af Samfo þeð eru ju MEÐALHEIMILIN sem helst þurfa hjalp
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár