JBT reynir aftur við Marel – Bjóða 386 milljarða króna

Hlut­höfum Marel býðst að fá allt að 45 pró­sent hlut í sam­ein­uðu félagi ef gengið verður að óskuld­bind­andi vilja­yf­ir­lýs­ingu JBT um yfir­töku á Marel. Banda­ríska fyr­ir­tækið hefur hækkað til­boð sitt og býður auk þess upp á að sam­einað félag verði tví­skráð í Banda­ríkj­unum og á Íslandi.

JBT reynir aftur við Marel – Bjóða 386 milljarða króna
Stjórn­endur Árni Oddur Þórð­ar­son var einu sinni stjórn­ar­for­maður Marel, áður en hann tók við starfi for­stjóra sem hann gegndi í ára­tug. Hann er í dag, ásamt föður sínum, stærsti hlut­haf­inn í stærsta eig­anda Marel. Árni Sig­urðs­son tók við for­stjóra­starf­inu af honum og Arnar Þór Másson hefur setið sem stjórn­ar­for­maður frá árinu 2021. Hann var vara­for­maður stjórnar frá 2013. Mynd: Heimildin / Tómas

John Bean TEchnologies Corporation (JBT), banda­rískt fyr­ir­tæki með höf­uð­stöðvar í Chicago, hefur sent frá sér nýja óskuld­bind­andi vilja­yf­ir­lýs­ingu um að kaupa öll hluta­bréf í Marel. Nýja óskuld­bind­andi til­boðið er upp á 511 krónur á hlut, sem er tæp­lega 17 pró­sent yfir dagsloka­gengi Marel í gær. Miðað við það er heild­ar­virði Marel 386,2 millj­arðar króna, eða 54,8 millj­örðum króna yfir mark­aðsvirði félags­ins við lok við­skipta í gær. 

Þetta er í annað sinn sem JBT leggur fram óskuld­bandi yfir­lýs­ingu um mögu­legt yfir­tökutil­boð í Marel. Fyrra boðið var gert í nóv­em­ber og var átta pró­sentum lægra, sé miðað við fram­sett til­boð í evrum, en Marel er tví­skráð á markað í Hollandi og á Íslandi. Nú er til­boðið upp á 3,4 evrur á hlut en fyrri óskulda­bandi yfir­lýs­ing um mögu­legt til­boð lagði til að greitt yrði 3,15 evrur á hlut. Stjórn Marel hafn­aði fyrri óskuld­bind­andi yfir­lýs­ing­unni og Heim­ildin greindi frá því 4. des­em­ber að það hafi meðal ann­ars verið vegna þess að búist væri við hærri til­boðum, bæði frá JBT og erlendum vog­un­ar­sjóðum sem hafa horft hýru auga til Marel um nokk­urt skeið. Þá hefur Heim­ildin greint frá því að hópur í kringum stærstu ein­stöku eig­endur Marel, feðgana Árna Odd Þórð­ar­son og Þórð Magn­ús­son, telji að einn stærsti banki lands­ins, Arion banki, hafi í upp­hafi mán­aðar reynt að tryggja Sam­herja og fjár­fest­inga­fé­lag­inu Stoð­um yf­ir­ráð í Mar­el á miklu und­ir­verði. 

Áður hafði Árni Oddur Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Marel, átt í beinum við­ræðum, sem fóru lágt, við Samherja um aðkomu að Marel í gegnum Eyri Invest.

Bjóða upp á skráningu á íslenskan markað

Það er ekki bara verðið sem er breytt í nýju yfir­lýs­ing­unni frá JBT. Hún gerir líka ráð fyrir því að allt að helm­ingur greiðsl­unnar fyrir Marel geti verið greidd með reiðufé en líka að allt end­ur­gjaldið geti verið í formi hluta­bréfa í sam­ein­uðu félagi JBT og Marel. Hlut­hafar Marel myndu eiga 38 pró­sent af sam­ein­uðu félagi ef fjórð­ungur yrði greiddur með reiðufé en 75 pró­sent í hluta­bréfum. Ef allt end­ur­gjaldið yrði greitt með hluta­bréfum þá myndu hlut­hafar Marel eign­ast 45 pró­sent í sam­ein­uðu félagi.

Þá kemur fram í nýju yfir­lýs­ing­unni að JBT sé til­búið að íhuga skrán­ingu í íslensku Kaup­höll­ina til við­bótar við núver­andi skrán­ingu hluta­bréfa JBT á markað í Banda­ríkj­unum, Við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar hafa sagt að slíkt fyr­ir­komu­lag gæti liðkað fyrir því að íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, sem eru stórir hlut­hafar í Marel, séu til­búnir að gang­ast að til­boð­inu. Ástæðan er sú að Marel er ein­stakt félag á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði, með umfangs­mikil alþjóð­leg við­skipti og mikla stækk­un­ar­mögu­leika. Flest önnur félög á mark­aðnum eru fyr­ir­tæki sem voru end­ur­skipu­lögð af bönkum eftir banka­hrunið og þeir los­uðu svo um eign­ar­hald þeirra með skrán­ingu á markað. Þorri þeirra keppa á inn­lendum fákeppn­is­mörk­uðum og hafa litla eða enga mögu­leika á því að vaxa erlendis. Líf­eyr­is­sjóð­irnir vilja ekki missa Marel, sem hefur oft­ast nær verið verð­mætasta skráða félag lands­ins, af mark­aði vegna þess að það þrengir mjög að mögu­leikum þeirra til fjár­fest­ingar inn­an­lands. Auk þess myndi afskrán­ing Marels draga úr fjöl­breytni og dýpt á íslenska hluta­bréfa­mark­aðnum. 

Eyrir Invest selur engum öðrum

Stærsti eig­andi Marel er Eyrir Invest sem á tæp­lega fjórð­ungs­hlut í Marel. Þangað til fyrir skemmstu áttu feðgarnir Þórður Magn­ús­son og Árni Oddur Þórð­ar­son 38,5 pró­sent í Eyri Invest. Arion banki fram­kvæmdi hins vegar veð­kall á lánum til Árna Odds í lok októ­ber og leysti til sín hluta af eignum feðganna. Það veð­kall leiddi til afsagnar Árna Odds sem for­stjóra Marels, en því starfi hafði hann gegnt í ára­tug. Feðgarnir eru þó áfram sem áður langstærstu eig­endur Eyris Invest.

Árni Oddur, sem var um tíma í greiðslu­stöðvun á meðan að unnið var úr hans málum, hefur átt beina aðkomu að aðkomu JBT að mögu­legum kaupum á Marel. Hann kom að mál­inu sem ólaun­aður ráð­gjafi og Eyrir Invest hefur gert sam­komu­lag við JBT um stuðn­ing við yfir­tök­una. 

Í nýju til­kynn­ing­unni til Kaup­hallar, sem birt var í nótt, kemur fram að sá stuðn­ingur sé enn í gildi. Í honum felst að Eyrir Invest mun ekki ganga til við­ræðna við aðra en JBT um sölu á hluta­fjár Eyris í Marel. 

Eftir að síð­asta yfir­lýs­ing um mögu­legt til­boð, þeirri sem stjórn Marel hafn­aði, var gerð opin­ber rauk virði Marel upp. Frá lægsta punkti, sem var 9. nóv­em­ber, og fram í byrjun des­em­ber hækk­aði mark­aðsvirðið um 30 pró­sent. Það fór úr 252 millj­örðum króna í 321 millj­arð króna, og hækk­aði þar með um 69 millj­arða króna. 

Miðað við það verð sem gert er ráð fyrir að JBT greiði sam­kvæmt upp­færðu yfir­lýs­ing­unni sem birt var í nótt þá hefur mark­aðsvirði Marel hækkað um 134 millj­arða króna á rúmum mán­uði. 

Það er þó langt frá þeim stað sem það var þegar verðið var sem hæst. Í byrjun árs 2022 var mark­aðsvirði félags­ins til að mynda 664 millj­arða króna.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár