Ráðherrum gert að segja satt og bannað að nota stöðu sína í eiginhagsmunaskyni

Siða­reglur ráð­herra voru fyrst settar árið 2011. Um tíma voru þær ekki í gildi vegna þess að þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra vildi ekki stað­festa þær. Nú hefur þeim verið breytt umtals­vert og ráð­herra ber héðan í frá að hafa almanna­hags­muni að leið­ar­ljósi.

Ráðherrum gert að segja satt og bannað að nota stöðu sína í eiginhagsmunaskyni
Almanna­hags­munir Nú eiga ráð­herrar að hafa „lýð­ræð­is­leg gildi, mann­rétt­indi og meg­in­reglur rétt­ar­rík­is­ins“ að leið­ar­ljósi og starfa í „anda gagn­sæis, sann­sögli, ábyrgðar og heil­inda“. Mynd: Golli

Ráðherra á að hafa almanna­hags­muni að leið­ar­ljósi, hann á að segja satt og hann má ekki not­færa sér stöðu sína „í eig­in­hags­muna­skyni eða í þágu hags­muna tengdra aðila“. Þetta er á meðal þess sem til­tekið er í upp­færðum siða­reglum ráð­herra, sem birtar voru í Stjórn­ar­tíð­indum 6. des­em­ber síð­ast­lið­inn. 

End­ur­skoðun regln­anna, sem voru fyrst settar árið 2011, hafði staðið yfir frá haustinu 2022 og starfs­hópur sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra skip­aði leiddi þá vinnu. Eftir að starfs­hóp­ur­inn skil­aði til­lögum sínum voru þær teknar til umræðu á vinnufundi ráð­herra í rík­is­stjórn­inni sem hald­inn var í ágúst.  

Eiga að upplýsa um fjárhagsleg hagsmunatengsl

Um tölu­verðar breyt­ingar er að ræða. Í nýju siða­regl­unum er sú breyt­ing gerð á fyrstu grein að ráð­herrar eiga nú að hafa „almanna­hags­muni ávallt að leið­ar­ljósi í störfum sínum“, að hafa í heiðri „lýð­ræð­is­leg gildi, mann­rétt­indi og meg­in­reglur rétt­ar­rík­is­ins“ og starfa í „anda gagn­sæis, sann­sögli, ábyrgðar og heil­inda“. …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Ef ráðherrar segðu satt væru a.m.k. sumir bak við lás og slá.
    1
  • EK
    Elísabet Kjárr skrifaði
    Þannig að allt sem á undan er gengið er bara óheppilegt en framtíð Bjarna Ben er vonandi þá óheppileg fyrir hann. Hann breytist náttúrlega ekkert og mun fyrr en varir brjóta þær.

    Eða kannski kemst hann upp með allt því hvergi er minnst á viðurlög. Eru þau einhvers staðar annars staðar? Hvað gerist ef ráðherra brýtur siðareglur?
    0
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Getur verið að þetta hljómi eins og grafskrift Jakopsdóttur, eða lok VG?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár