Ný könnun: Öryrkjar búa við mikla fátækt og slæma andlega líðan

Nið­ur­stöður nýrrar könn­unar sýna svarta mynd af stöðu öryrkja á Íslandi. Þar kemur fram að fjár­hags­staða og and­leg líðan þeirra sé síður en svo góð. Eru það ein­stæðir for­eldrar á örorku­líf­eyri, end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri og örorku­styrk sem standa hvað verst.

Ný könnun: Öryrkjar búa við mikla fátækt og slæma andlega líðan
Öryrkjar Sjö af hverjum tíu segj­ast búa við slæma and­lega líðan. Mynd: Shutterstock

Nið­ur­stöður nýrrar könn­unar sýna svarta mynd af stöðu öryrkja á Íslandi. Þar kemur fram að fjár­hags­staða og and­leg líðan þeirra sé síður en svo góð. Eru það ein­stæðir for­eldrar á örorku­líf­eyri, end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri og örorku­styrk sem standa hvað verst.

Öryrkja­banda­lag Íslands og Varða, rann­sókn­ar­stofnun vinnu­mark­að­ar­ins, stóðu fyrir könn­un­inni. Var hún lögð fyrir þá sem voru með örorku­líf­eyri, end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri og örorku­styrk í októ­ber þessa árs.

Bág fjárhagsstaða

Í ljós kom að ríf­lega þrír af hverjum tíu sem eru á örorku- eða end­ur­hæf­ing­ar­styrk sögð­ust búa við skort á efn­is­legum gæðum. Tveir af hverjum tíu við sára fátækt. Helm­ingur þarf að neita sér um félags­líf vegna fjár­hags­stöðu sinnar og fjórir af hverjum tíu að neita sér um nauð­syn­legan klæðnað og nær­ing­ar­ríkan mat. 

Margir hafa þurft að neita sér um tann­lækna- og sál­fræði­þjón­ustu eða rúm­lega fjórir af hverjum tíu. Skrifast það langoft­ast á háan kostnað. 

Spurð hve mikil áhrif óvæntur kostn­aður upp á 80.000 krónur hefði segj­ast sjö af hverjum tíu ekki myndu geta staðið undir honum nema með því að stofna til skulda. Meira en helm­ingur þátt­tak­enda segir fjár­hags­stöðu sína verri en fyrir ári síðan.

Einstæðir foreldrar hafa það hvað verst

Fjár­hagur ein­stæðra for­eldra með örorku­styrk, end­ur­hæf­ingar- eða örorku­líf­eyri er hvað verstur. En rúm­lega þrír af hverjum tíu þeirra búa við veru­legan skort.

Tæpur helm­ingur ein­stæðra for­eldra seg­ist ekki geta veitt börnum sínum nær­ing­ar­ríkan mat og nauð­syn­legan klæðnað, greitt kostnað vegna félags­lífs þeirra eða haldið afmæli fyrir þau.

Yfir­gnæf­andi meiri­hluti ein­stæðra mæðra á örorku­styrk á erfitt með að mæta óvæntum 80.000 króna útgjöldum án þess að stofna til skuldar, eða níu af hverjum tíu. Hefur fjórð­ungur þeirra þurft á mat­ar­að­stoð að halda á síð­ast­liðnu ári. 

Rúm 60% ein­stæðra for­eldra búa við þunga byrði af hús­næð­is­kostn­aði og átta af hverjum tíu við slæma and­lega heilsu. 

Slæm andleg líðan og einangrun

Ekki er geð­heilsa ann­arra svar­enda mikið betri ein­hleypra for­eldra. Sjö af hverjum tíu segj­ast búa við slæma and­lega líðan. Tæplega sex af hverjum tíu finna fyrir félags­legri ein­angrun. Koma þar karlar á end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri hvað verst út. 

Hátt hlut­fall fólks hefur nær dag­lega hugsað að það væri betra ef það væri dáið eða hugsað um að skaða sig. Er staðan hvað verst meðal karla á end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri, karla á aldr­inum 31-50 og meðal kvenna undir þrí­tugu.

Rúmlega 3.500 svör við könn­un­inni bár­ust, er það um 19% svar­hlut­fall. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Gylfason skrifaði
    afhverju líða einstæðum einstaklingum betur en einstætt foreldri, ? svo endar greinin á að tala um að hugsanir um sjálfskaða séu algengar meðal karla og kvenna, en ekkert minnst á hvort þeir einstaklingar séu einstæðir eða foreldri.
    0
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Hvernig samfélag kemur fram við sína veikustu einstaklinga segir allt um það hvernig samfélagið er.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár