Lífeyrissjóðir skoða að feta sömu leið og bankarnir

Hingað til hafa ein­göngu stóru við­skipta­bank­arnir látið vexti og verð­bætur Grind­vík­inga niður falla til þriggja mán­aða. Lfeyr­is­sjóð­irnir hafa nú til skoð­unar að gera slíkt hið sama.

Lífeyrissjóðir skoða að feta sömu leið og bankarnir
Hús illa farin. Margar eignir fóru illa í skjálft­anum í Grinda­vík.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir skoða mögu­leik­ann á að veita Grind­vík­ingum greiðslu­skjól vegna yfir­stand­andi nátt­úru­ham­fara og óvissu­á­stands í Grinda­vík til að létta á greiðslu­byrði þeirra. Bank­arnir felldu niður vexti og verð­bætur af lánum Grind­vík­inga í þrjá mán­uði fyrr í nóv­em­ber og skoða líf­eyr­is­sjóðir nú að gera hið sama, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Lands­sam­tökum líf­eyr­is­sjóða.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa nú þegar tryggt Grind­víkum tíma­bundið greiðslu­skjól vegna sjóð­fé­laga­lána og fresta greiðslu afborg­ana, vaxta og verð­bóta.

Kallað hefur verið eftir því að líf­eyr­is­sjóð­irnir gangi lengra og geri slíkt hið sama og bank­arnir, það er fella niður vexti og verð­bætur til þriggja mán­aða vegna hús­næð­is­lána Grind­vík­inga.

Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn gerðu sam­komu­lag, í sam­vinnu við Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja (SFF), um að fella niður vexti og verð­bætur af íbúða­lánum Grind­vík­inga í þrjá mán­uði. Sam­komu­lag þessa efnis var und­ir­ritað 22. nóv­em­ber. Þetta var gert vegna yfir­stand­andi nátt­úru­ham­fara og óvissu­á­stands í Grinda­vík.

Áður höfðu bank­arnir ætlað að mæta stöðu Grind­vík­inga, sem var gert að rýma bæinn um miðjan nóv­em­ber og eru nú í tíma­bundnu hús­næði oft með til­heyr­andi við­bót­ar­kostn­aði, með því að frysta afborg­anir af íbúða­lánum þeirra en leggja vexti og verð­bætur við höf­uð­stól lán­anna. Það hafði verið harð­lega gagn­rýnt, meðal ann­ars af ráð­herrum í rík­is­stjórn og öðrum stjórn­mála­mönnum.

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár