Smartland sálarinnar

Einn helsti veik­leiki bók­ar­innar er að hún er hrein­lega of stutt, það eru ákveðnir þættir sem hefði gjarnan mátt kafa dýpra í, skrifar Ásgeir H. Ing­ólfs­son gagn­rýn­andi.

Smartland sálarinnar
Bók

Melankólía vaknar

Höfundur Sölvi Björn Sigurðsson
Sögur útgáfa
224 blaðsíður
Niðurstaða:

Melankólía vaknar er ort inn í form hælisbókmenntanna, samfélag og manneskja eru sálgreind samtímis í forvitnilegri samtímalýsingu sem hefði þó mátt vera örlítið lengri til að ná almennilega utan um helstu söguefnin.

Gefðu umsögn

Embla er tví­kyn­hneigður tví­buri sem sér stundum tví­höfða veru. Hún syrgir líka tvær stórar ástir í lífi sínu og það eru þónokkrir tví­farar á sveimi í þess­ari bók.

„„Ég held reyndar, Melankólía mín, að þú sért eitt­hvað að plata mig.“ Hann hafði kallað hana þessu nafni frá því þau voru börn. Þau höfðu rek­ist á orðið áður en þau skildu hvað það merkti og fund­ist það fal­legt. Síðar, þegar merk­ingin laukst upp fyrir þeim, fannst Bjarka engin ástæða til að hætta að nota það um systur sína. Hún var ekki bein­línis döpur en þó lá yfir henni alvara, eins og hluti af henni hefði ein­hvers staðar orðið eftir og henni hefði aldrei gef­ist færi á að end­ur­heimta hann.“

Þessi orða­skipti eiga sér stað í byrjun bókar og jú, hún er að plata Bjarka, tví­bura­bróður sinn. Hún þyk­ist ætla að taka að sér tíma­bundna vinnu í sól­inni í Lecce en er þvert á móti á leið­inni á dul­ar­fullt heilsu­hæli norður í landi. Sem er laustengt þessu sem var í frétt­unum fyrir nágranna­erjur fyrir nokkrum miss­erum, eitt af nokkrum dæmum þar sem veru­leiki frétt­anna villist inn á síður bók­ar­innar.

En þetta er kynd­ugt hæli. Embla bíður sífellt eftir að fá leið­sögn ein­hvers sál­fræð­ings eða jóga­kenn­ara eða ann­ara sér­fræð­inga, en þess í stað virð­ist Siggó sjá um allt, maður sem er óþol­andi hress en hræð­ist þó alltaf dýpið og er lýst á einum stað eins og „for­stjóri íþrótta­deildar í ein­hverjum af nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur“ og ann­ars staðar eins og banka­manni. Óhóflega hress skemmt­ana­stjóri kemur líka upp í hug­ann.

„Eins og oft í hæl­is­bók­menntum er frekar verið að sál­greina fjöld­ann en ein­stak­ling­inn, hælið er svip­mynd af sam­fé­lagi yfir­borðs­ins“

Lang­lengsti kafli bók­ar­innar fjallar svo um langan fund þar sem flestir gestir hæl­is­ins eru beðnir um að létta af sér hug­ar­víli sínu, en tekst það mis­vel, enda Siggó sífellt að grípa fram í. Sögurnar eru sjaldn­ast nógu krassandi eða frum­legar – en vand­inn er kannski frekar hans eigin athygl­is­brestur. Sögurnar reyn­ast vissu­lega margar keim­líkar, kannski af því ákveðnir hlutir eru í tísku, mögu­lega er þetta fugla­bjarg sam­fé­lags­miðla þar sem allir játa á sig þau áföll sem eru í umræð­unni, eða reyna alla­vega að finna slíkan vinkil. Þetta er líka ádeila á hina snubb­óttu frá­sögn, sög­urnar verða síbylja þegar þær end­ur­óma hver aðra í fátæk­legri fjöl­miðla­út­gáfu, en eru sér­tækar og áhuga­verðar þegar kafað er í djúpið, sem Siggó leyfir þeim sjaldn­ast.

Bókin kall­ast á við ýmsar bækur á hæli, og gengst fús­lega við því. „Hún hafði átt von á Töfra­fjall­inu, Kveðju­vals­inum, Gauks­hreiðr­inu, Norwegian Wood […] allt skáld­sögur sem gerð­ust á hælum; list­inn var enda­laus.“

Töfra­fjallið vofir sann­ar­lega yfir, þarna er ævafornt fjall yfir setr­inu, eins og klass­ísk skáld­saga sem gnæfir yfir þess­ari, og eins og oft í hæl­is­bók­menntum er frekar verið að sál­greina fjöld­ann en ein­stak­ling­inn, hælið er svip­mynd af sam­fé­lagi yfir­borðs­ins sem er ger­sam­lega ómögu­legt að gægj­ast undir, jafn­vel þótt slökkt sé á net­inu úti í sveit. Þannig þvæl­ast Smartland, Seðla­bank­inn og lofts­lags­ham­farir fyrir bata per­són­anna, og þær þurfa að takast á við það ómögu­lega verk­efni að lækna sjálfa sig og heim­inn líka. En innst inni vita þær þó að fyrst þurfa þær að finna hið ein­staka, að finna kjarn­ann – sem er ekki endi­lega auð­velt fyrir klof­inn tví­bura.

Á hæl­inu er þó ekki allt sem sýn­ist. Snemma í bók­inni er Embla sett í ein­hvers konar dáleiðslu­tæki og hin furðu hvers­dags­lega Vera með tvö höfuð dúkkar reglu­lega upp, það er eitt­hvað skakkt hérna, eitt­hvað örlítið á skjön við raun­veru­leik­ann, sem er ekki óal­gengt stef hjá Sölva Birni.

Það tog­ast svo í mér hvort endir­inn gangi nógu vel upp – en eig­in­lega er helsti veik­leiki bók­ar­innar að hún smit­ast aðeins af Siggó og er hrein­lega of stutt, það eru ákveðnir þættir sem hefði gjarnan mátt kafa dýpra í. Miðkafl­inn langi er í raun pass­lega langur, en það hefði vel mátt lengja og dýpka bæði það sem kemur á undan og eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár