Skýjuð sköp

Samband Elíasar við íslensk­una er ein­stakt, enda er eins og hann sé frjáls undan þeim ósögðu hefðum sem lymsku­lega þjaka flesta þá sem yrkja á eigin móð­ur­máli.

Skýjuð sköp
Bók

Áður en ég breyt­ist

Höfundur Elías Knörr
Forlagið
94 blaðsíður
Niðurstaða:

Áður en ég breytist er sýnidæmi fyrir einstakan stíl Elíasar Knarrar og hans afar frumlegu efnistök. Bókin virðist fjalla um togstreituna milli listarinnar og heimsins og er í sjálfu sér mögnuð afurð þeirrar togstreitu.

Gefðu umsögn

Það fyrsta sem grípur les­anda nýj­ustu ljóða­bókar Elíasar Knarrar er kápu­myndin: Píka úr skýjum. Myndin er lýsandi, en í bók­inni finn­ast einmitt ljóð sem virð­ast blanda saman hinu himneska og hinu hold­lega. Þótt les­and­inn þurfi að hafa fyrir því að við­halda sam­heng­inu, þá virð­ist bókin hafa ljóð­mæl­anda, Evgeníu að nafni, sam­kvæmt saur­blaði bók­ar­innar.

Evgenía virð­ist vera skálda­gyðja eða músa sem vaknar til himnesks lífs sköp­un­ar­krafts­ins: „Ljósblá og skýjuð sköp / sváfu á himn­inum“. Hún vaknar „í leit að dóms­deg­inum … þar sem upp­heimar myndu opn­ast / líkt og geispandi blómarós“. Sköpunin mun kalla fram „þyrni­blóm“ sem „rumska / í hjarta / kirkju­garðs­ins“.

Blómin eru ljóðin sem í bók­inni finn­ast (nema mér skját­list hrapal­lega) og spyr ljóð­mæl­and­inn: „Ætli blóm / tungu­máls­ins / dreymi? … ætli orð dreymi / um að vera það / sem þau voru / áður en þau / urðu til?“ Elías ætlar sér sem sagt stóra hluti í þess­ari bók, allt frá himneskri sköpun til ragn­araka með blóm list­ar­innar á milli. 

„Það er eins og ein­hver galdur felist í því að hafa örlitla fjar­lægð frá tungu­mál­inu sem ort er á og skilar það sér í hinum sér­staka og eft­ir­minni­lega stíl Elíasar.“

Íslenskt ljóða­á­huga­fólk ætti að þekkja Elías vel, en þetta galisísk/íslenska skáld vekur athygli á öllum upp­lestrum sem hann kemur fram á. Hann blandar saman hinsegin gjörn­inga­list og mið­alda­söng á fjölda tungu­mála og fer það alls ekki á milli mála hvers konar tungu­mála­séní Elías er. Samband Elíasar við íslensk­una er ein­stakt, enda er eins og hann sé frjáls undan þeim ósögðu hefðum sem lymsku­lega þjaka flesta þá sem yrkja á eigin móð­ur­máli. Elías skapar nýyrði og nýstár­legar sam­setn­ingar hægri vinstri, flest þeirra stór­kost­leg (nokkur dæmi úr bók­inni: ein­dæma, drullu­hærður, ham­skeri, lauf­leysi, morg­un­hæna, örlög­laus, glyrnu­legur, bens­ín­grár). Það er eins og ein­hver galdur felist í því að hafa örlitla fjar­lægð frá tungu­mál­inu sem ort er á og skilar það sér í hinum sér­staka og eft­ir­minni­lega stíl Elíasar. Það er ein­fald­lega þannig að fæstir aðrir íslenskir höf­undar myndu láta sér detta í hug að óska eftir „gam­al­dags síma / til að hengja mig“.

Í bók­inni virð­ast bít­ast á sköp­un­ar­kraft­ur­inn og heim­ur­inn í kring sem svo auð­veld­lega kæfir sköp­un­ina í fæð­ingu. Tíu­frétt­irnar bresta á og það er eins og and­inn sökkvi niður í kalda gröf; stundum ímyndar skáldið sér „krafsið í kist­unni“. „Höf­und­ur­inn hras­aði / ofan í bræðslu­ofn­inn / meðan tungu­málið brann / til svartra kola“, segir í einu ljóði, en „glæð­urnar eru fast­heldnar / á gamlar venjur // aftur kviknar í draumnum / og í brjóst­inu er for­tíðin / log­andi / bóka­bál“. Eins og segir ann­ars staðar þurfa mennta­gyðjur að vera styttur „úr bronsi // við­kvæmt dýrð­ar­eðli þeirra / þarf á sterkum stoð­grindum að halda // músur eru / mýksta / átt­fætlan“. Að við­halda tengsl­unum við mennta­gyðj­una skiptir ekki aðeins máli fyrir ljóð­mæl­and­ann per­sónu­lega heldur hefur víð­ari skírskotun. Baráttan milli list­ar­innar og heims­ins er póli­tískt- og til­vist­ar­spurs­mál. Eins og segir á bak­hlið bók­ar­innar, þá er líf mús­unnar sam­tvinnað lífi jað­ar­hópa sem „er ekki leyft að lifa heldur aðeins að láta sig dreyma“. Þannig öðl­ast loka­línur bók­ar­innar sína miklu vigt: „Ætli íslenska / tungu dreymi / ein­hvern / sann­leika?“ Ef hún gerir það ein­hvers staðar, þá er það hjá Elíasi.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár