Stýrivextir áfram 9,25 prósent en verðbólguhorfur eru að versna og þeir gætu hækkað meira

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að halda stýri­vöxtum sínum áfram í 9,25 pró­sent. Þetta er annar vaxta­á­kvörð­un­ar­dag­ur­inn í röð sem það ger­ist en fyrir það höfðu vextir hækkað 14 sinnum í röð.

Stýrivextir áfram 9,25 prósent en verðbólguhorfur eru að versna og þeir gætu hækkað meira
Seðla­banka­stjóri Ásgeir Jónsson er for­maður pen­inga­stefnu­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Stýri­vextir verða áfram 9,25 pró­sent sam­kvæmt ákvörðun pen­inga­stefnu­nefndar sem opin­beruð var í morgun. Í yfir­lýs­ingu hennar segir að verð­bólga hafi minnkað lít­il­lega í októ­ber og mæld­ist 7,9 pró­sent. „ndir­liggj­andi verð­bólga hefur einnig hjaðnað. Áfram eru vís­bend­ingar um að tekið sé að hægja á einka­neyslu og fjár­fest­ingu.“

Þar segir enn fremur að sam­kvæmt nýrri spá Seðla­bank­ans hafi verð­bólgu­horfur þó versnað. „Spennan í þjóð­ar­bú­inu hefur reynst meiri en áður var talið og gengi krón­unnar hefur lækkað. Verð­bólgu­vænt­ingar hafa jafn­framt hald­ist háar og kostn­að­ar­hækk­anir virð­ast hafa meiri og lang­vinn­ari áhrif á verð­bólgu en áður.“

Þótt áhrif vaxta­hækk­ana und­an­farin miss­eri séu að koma skýrar fram benda verri verð­bólgu­horfur til þess að það gæti þurft að herða taum­hald pen­inga­stefn­unnar enn frekar. „Þrátt fyrir það hefur pen­inga­stefnu­nefnd ákveðið að halda vöxtum óbreyttum að sinni í ljósi þeirrar óvissu sem ríkir um efna­hags­leg áhrif jarð­hrær­inga á Reykja­nesi. Mótun pen­inga­stefn­unnar á næst­unni mun sem fyrr ráð­ast af þróun efna­hags­um­svifa, verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga.“

Met sett í verðtryggðum útlánum

Hækkandi stýri­vextir hafa haft mikil áhrif á greiðslu­byrði heim­ila og fyr­ir­tækja og hratt hefur dregið úr lán­tökum þeirra. Hærri greiðslu­byrði heim­ila, sem hefur í mörgum til­vikum allt að tvö­fald­ast hjá þeim sem eru með óverð­tryggð lán, hefur leitt til þess að sífellt fleiri færa sig úr því lána­formi og yfir í verð­tryggð íbúða­lán. Þau hafa þann kost að greiðslu­byrðin er lægri en þann van­kant að verð­bætur leggj­ast á höf­uð­stól lána í mik­illi verð­bólgu. 

Á því vaxta­hækk­un­ar­tíma­bili sem hófst 2021 og stóð óslitið fram að síð­asta vaxta­á­kvörð­un­ar­degi Seðla­bank­ans voru raun­vextir óverð­tryggðra lán­tak­enda lengi vel nei­kvæðir. Það þýðir að vext­irnir sem þeir borg­uðu voru lægri en verð­bólgan. Sömu sögu er að segja að inn­láns­vöxtum. Vext­irnir sem fólk fékk fyrir að geyma pen­ing­anna sína í banka voru almennt lægri en verð­bólgan og því rýrn­aði raun­virði sparn­að­ar­ins. 

Á síð­ustu mán­uðum hefur það snú­ist við og raun­vextir eru nú ekki lengur nei­kvæðir. 

Sú staða, ásamt því að mörg fast­vaxta­lán á óverð­tryggðum vöxtum hafa verið að losna, hefur stór­aukið flutn­ing heim­ila yfir í verð­tryggð lán. 

Í síð­asta mán­uði einum saman var umfang verð­tryggðrar lán­töku 25,6 millj­arðar króna sem er Íslands­met í töku verð­tryggðra íbúða­lána á einum mán­uði. Fyrra met var sett í ágúst þegar heim­ilin tóku slík lán upp á 17,7 millj­arða króna. Munurinn á milli ágúst og sept­em­ber var því um 45 pró­sent.  

Mun halda áfram

Búast má við að til­færslan yfir í verð­tryggð lán muni halda áfram næstu ár að óbreyttu. Allt í allt eru um 706 millj­arðar króna af óverð­tryggðum lánum á föstum vöxtum með end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði. Fram til loka árs 2025 munu 569 millj­arðar króna, 80 pró­sent allra þeirra lána, losna og lán­tak­arnir að óbreyttu færðir úr mjög lágum vöxtum yfir í mjög háa vexti. Vegnir með­al­vextir lána sem losna á næsta ári eru 4,5 pró­sent en lán sem koma til end­ur­skoð­unar árið 2025 bera 5,1 pró­sent vegna með­al­vexti. Í dag eru lægstu breyti­legu óverð­tryggu vextir hjá bönk­unum í kringum ell­efu pró­sent. 

Í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar segir að heim­ili með háa greiðslu­byrði séu þegar byrjuð, og eigi vænt­an­lega eftir í miklum mæli, að færa sig yfir í verð­tryggð lán þegar til fyrr­nefndrar end­ur­skoð­unar kemur. Vilji þeir ekki færa sig yfir í slík lán að öllu leyti eða hluta stendur einnig til boða að lengja í lánum, greiða sparnað inn á lán eða semja um að færa hluta af vöxtum á höf­uð­stól.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KH
    Kristinn Halldórsson skrifaði
    Eg var að hlusta á seðlabankastjóra í viðtali á Bylgjunni, ég er engu nær um það sem maðurinn var að segja. Það var sagt um Jón Gnarr þegar hann hafði bullað eitthvað, þá kom til "Jóhannes útskýrari" og túlkaði það sem hann sagði á mannamáli. Gæti seðlabankastjóri fengið sinn "Jóhannes útskýrara" til að túlka hvað hann er að fara með sínum málfluttning svo venjulegur almugi skilji manninn.
    1
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Þessi auðróna dindill ásgeir jónsson þjáist greinilega af þráhyggju heilkenni eins og stóri bróðir hanns.
    Væri ekki einhver geðlæknir til í að taka þetta illyrmi í meðferð endurgjaldslaust, hann er nefninlega á svoddan lúsar launum við að herja á 99.9% þjóðarinnar.
    Mín skoðun eins og ég sé hlutina.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár