Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn er ævagamalt réttlætis- og refsihugtak. Það kemur fyrir í öllum helztu trúarbrögðum heims. Margir halda, að hugtakið gangi út á hefnd, og kannske á sú hugsun rétt á sér, en megin merkingin er, að gjalda skuli fyrir skuld eða glæp í sama umfangi, í sama mæli, og glæpur var framinn í. Jafna sakir. Þetta er því sanngirnis- og réttlætishugtak.
Það, sem er að gerast fyrir botni Miðjarðarhafs þessa daga, samræmist engan veginn hinni ævafornu réttlætisreglu um auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Refsing Ísraelsríkis fyrir þann glæp, sem Hamas-liðar frömdu gegn þeim 7. október sl., samræmist miklu fremur augu fyrir auga og tennur fyrir tönn, og það í margföldum mæli.
Þarna er fyrir undirrituðum komin upp mikið og yfirkeyrt óréttlæti, valdníðsla, sem einkennist í mínum huga af grimmd og miskunnarleysi, gagnvart saklausu og varnarlausu fólki. Hrikaleg og margföld hefnd.
Þetta hef ég tjáð í greinum. Það er skoðun mín og afstaða, að Ísraelsher, með forsætisráðherra Ísraelsríkis, Benjamín Netanjahú, í broddi fylkingar, sé með gagnárás sinni á Palestínumenn á Gaza, þeirri hrikalegu dráps- og eyðileggingarherferð, sem hann stendur þar að, að fremja stríðsglæp og glæp gegn mannkyninu, eftir því, sem ég skil þau hugtök. Hvað gæti þetta verið annað?
Fyrir þessa skoðun, sem byggist á málefnalegu og rökstuddu mati, staðreyndum, verða sumir fljótir til að halda því fram, að ég sé haldinn Gyðinga-andúð eða Gyðinga-hatri.
Þetta er ekki andúð á Gyðingum, sem þjóð, heldur er þetta „andúð“ og „hatur“, ef menn vilja nota það orð – „reiði“ gæti líka átt við, jafnvel betur - á þeirri grimmd og því miskunarleysi, sem stjórn Benjamíns Netanjahú og Ísraelsher beitir saklausa og varnarlausa Palestínumenn.
Það vekur athygli, að ekki hefur tekizt að frelsa einn einasta þeirra um 240 gísla, sem eru í höndum Hamas, með öllu þessu gjöreyðingarstríði, né heldur hefur tekizt að fella marga hinna um 20.000 Hamas-liða, sem einir bera ábyrgð á hryllilegri aðför þeirra að Ísraelum 7. október.
Fyrir nokkru var í fréttum talað um, að felldir hefðu verið 130 Hamas-liðar. Skv. þeim alþjóðlega fréttaflutningi, sem í gangi hefur verið, og hefur Ísraelsher þar ekki dregið úr, nema síður væri, má ætla, að ekki hafi tekizt að fella meira en nokkur hundruð Hamas-liða. Auðvitað eru það mörg mannslíf, en ætlaði Netanjahú og Ísraelsher ekki að drepa alla Hamas-liðana, „eyða þeim af yfirborði jarðar“!?
Það er heldur ekki nema von, að erfiðlega gangi hjá Ísraelsher, því Hamas-liðar búa yfir um 400 km af neðanjarðargöngum og -birgjum, undir Gaza, sem Ísraelsher þekkir lítið og treystir sér lítið í.
Gjöreyðing yfirborðsins, Gaza-borgar, virðist því helzt vera útrás fyrir hefnd og hatur, víðsfjarri auga fyrir auga og tönn fyrir tönn réttlætisreglunni.
Í þessu sambandi er það sérstaklega lúalegt, hvernig Ísraelsher hefur reynt að ljúga því að fólki - og margir fréttamenn hafa því miður gengið í gildruna og spilað með -, að þeir hafi þurft að ráðast á aðal sjúkrahúsið í Gaza, Al-Shifa-Hospital, sem þá þegar voru orðið mikið rafmagnslaust, vatnslaust, lyfjalaust og matarlaus, til að komast þar í stjórnstöð Hamas, sem átti að vera undir sjúkrahúsinu, en var þar auðvitað ekki.
Hamas-liðar voru búnir að koma sér fyrir, með sínar stjórnstöðvar og gísla, á öruggum stöðum fyrir árásum Ísraelshers, í sínum neðanjarðarbirgjum, víðs fjarri.
Í kjallara undir Al-Shifa-Hospital fundust handvopn nokkurra, 5-10, Hamas-liða og svo 10 metrum í burtu, inngangur í neðanjarðargöng, sem Ísraelsher mældi svo 55 metra langan. Lengra komust þeir ekki inn í þessi göng.
Þetta tvennt átti að sanna, að þarna hefði verið stjórnstöð Hamas, þess vegna hefði þurft að ráðast á spítalann og setja hann í herkví. Þetta fannst ýmsum fréttamönnum, en þeir hafa flestir aðsetur í Ísrael, búa jafnvel þar, flott útskýring á ómannúðlegri og miskunnarlausri aðför að sjúkum og þjáðum, sumum þá þegar við dauðans dyr.
Staðreyndin er trúlega sú, að í kjallara var komið fyrir handvopnum særðra Hamas-liða, sem komið var með á spítalann til lækninga og meðferðar, og göngin 55 metra forgangur inn í 400 km neðanjarðargöng Hamas og stjórnstöðva þar, langt innar og í góðu skjóli.
Hér er ekki aðeins í gangi stríð, þar sem annar aðilinn er eitt öflugasta herveldi heims, með landher, stórskotalið, flugher og flota, en hinn aðilinn er rétt léttvopnaður hópur skæruliða, heldur er í gangi áróðursstríð, þar sem Netanjahú og Ísraelsher hafa öll undirtök; stjórna sannleikanum.
Athugasemdir (3)