Vöktun hefur verið aukin í nágrenni Grindavíkur og eru líkurnar á eldgosi óbreyttar. 700 skjálftar hafa mælst við kvikuganginn, sá stærsti var um 3 að stærð og varð við Hagafell. Flestir skjálftanna hafa verið litlir og á þriggja til fimm kílómetra dýpi.
Þetta kemur fram í uppfærðum upplýsingum á vef Veðurstofu Íslands.
Gikkskjálftar mældust við Kleifarvatn í gærkvöldi, sá stærsti 3,8 að stærð.
„Aflögunarmælingar sýna áframhaldandi aflögun á svæðinu,“ segir á vef Veðurstofunnar. „Þær eru í samræmi við að kvika flæði enn inn í ganginn.“
Kvikuflæði frá 12. til 13. nóvember var metið 75 rúmmetrar á sekúndu en dýpið niður á kvikuganginn er í kringum 800 metra, miðað við tölur út frá líkanreikningum sem eru háðar óvissu.
„Megin áhersla á vöktun skjálftavirkni og aflögunar er á svæði gangsins og Grindavíkur. Nýjar GPS stöðvar hafa verið settar upp í Grindavík og nágrenni. Þær sýna að sigdalurinn sem myndast hefur er ennþá virkur,“ segir á vef Veðurstofunnar.
„Líkur á eldgosi eru því enn miklar. Komi til goss er líklegust staðsetning við kvikuganginn. Ekki er að sjá vísbendingar í gögnum um annað.“
Athugasemdir