Stofnar frið­ar­ráð Banda­ríkja­for­seti er stjórn­ar­for­maður Board of Peace, nýs frið­ar­ráðs sem hann stofn­aði í dag. Mynd: AFP

„Slæmir hlutir“ muni gerast

Banda­ríkin hafa safnað mesta lofther í Mið­aust­ur­löndum frá inn­rásinni í Írak. For­set­inn hótar stríði.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hvatti í dag Íran til að gera „mark­verðan“ samn­ing á sama tíma og gríð­ar­leg hern­að­ar­upp­bygg­ing Banda­ríkj­anna á sér stað í Mið­aust­ur­löndum sam­hliða hót­unum um aðgerðir.

„Það hefur sannað sig í gegnum árin að það er ekki auð­velt að gera mark­verðan samn­ing við Íran. Við verðum að gera mark­verðan samn­ing, ann­ars ger­ast slæmir hlutir,“ sagði Trump á stofn­fundi „Frið­ar­ráðs­ins“, fram­taks hans til að tryggja stöð­ug­leika á Gaza.

Hann var­aði við því að stjórn hans „gæti þurft að ganga skrefi lengra“ án sam­komu­lags og bætti við: „Þið munuð kom­ast að því á næstu lík­lega 10 dögum.“

Ummæli Trumps komu skömmu eftir að Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, sendi Íran sína eigin við­vörun og sagði: „Ef aja­toll­arnir gera mis­tök og ráð­ast á okkur, munu þeir fá svar sem þeir geta ekki einu sinni ímyndað sér.“

Viðræður í bið

Við­var­an­irnar voru gefnar út nokkrum dögum eftir að Banda­ríkin og Íran héldu aðra umferð við­ræðna með milli­göngu Óman, að þessu sinni í Genf, þar sem Banda­ríkin reyna að koma í veg fyrir að Íran komi sér upp kjarn­orku­sprengju, sem Íran seg­ist ekki sækj­ast eftir, og Íran leitar eftir aflétt­ingu banda­rískra refsi­að­gerða.

Karoline Leavitt, fjöl­miðla­full­trúi Hvíta húss­ins, var­aði við því í gær að það væru „margar ástæður og rök sem hægt væri að færa fyrir árás á Íran“.

„Það væri mjög skyn­sam­legt af Íran að gera samn­ing við Trump for­seta.“

Trump hefur ítrekað hótað hern­að­ar­að­gerðum gegn Íran, fyrst vegna fjöldamorðs á mót­mæl­endum í síð­asta mán­uði og síðar vegna kjarn­orku­á­ætl­unar lands­ins.

Yfir­maður kjarn­orku­mála í Íran sagði í dag að „ekk­ert land geti svipt Íran rétt­inum“ til kjarn­orku­auðg­unar.

Fyrri til­raun til samn­inga­við­ræðna fór út um þúfur þegar Ísrael gerði óvæntar árásir á Íran í júní síð­ast­liðnum, sem hóf 12 daga stríð þar sem Banda­ríkin tóku stutt­lega þátt til að sprengja starfs­stöðvar írönsku kjarn­orku­á­ætl­un­ar­innar.

Herinn tilbúinn um helgina

Við­bún­aður banda­ríska flug­hers­ins í Mið­aust­ur­löndum er sá mesti frá árinu 2003, þegar Banda­ríkin réð­ust inn í Írak, sam­kvæmt sam­an­tekt Wall Street Journal. Þar segir að Trump hafi enn ekki tekið ákvörðun.

Írönsk stjórn­völd segja að flug­móð­ur­skip Banda­ríkj­anna sé vissu­lega öfl­ugt, en enn öfl­ugri séu vopnin sem sendi það á hafs­botn.

CNN og CBS greindu frá því í gær að banda­ríski her­inn yrði til­bú­inn til að hefja árásir á Íran strax um helg­ina, þótt Trump hafi að sögn ekki tekið end­an­lega ákvörðun enn.

The Wall Street Journal greindi á sama tíma frá því að Trump hefði verið kynntir hern­að­ar­legir val­kostir hans þar sem „allir voru hann­aðir til að valda hámarks­skaða“, þar á meðal her­ferð til að „drepa fjölda íranskra stjórn­mála- og her­for­ingja, með það að mark­miði að steypa stjórn­inni af stóli“, sögðu ónefndir banda­rískir emb­ætt­is­menn við blaðið.

Abbas Araghchi, utan­rík­is­ráð­herra Írans, sagði eftir nýj­ustu við­ræð­urnar að Teheran hefði sam­þykkt „leið­bein­andi meg­in­reglur“ með stjórn­inni í Washington, en JD Vance, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, sagði að Íran hefði ekki enn sam­þykkt ófrá­víkj­an­legar kröfur Trump­stjórn­ar­innar.

„Við viljum ekki stríð,“ stað­hæfði Masoud Pezeshkian, for­seti Írans, í gær, en gaf í skyn að Íranar gæti ekki látið undan kröfum Banda­ríkj­anna.

Í ljósi vax­andi við­var­ana skip­aði Pólland í dag öllum rík­is­borg­urum sínum í Íran að „fara þegar í stað“.

Þýska­land flutti á meðan her­menn frá norð­ur­hluta Íraks og minnk­aði við­veru sína í það lág­mark sem nauð­syn­legt er til að halda her­stöð sinni þar starf­hæfri, og vís­aði til spennu á svæð­inu.

Rússland kall­aði eftir still­ingu og tals­maður Kremlar sagði: „Við erum nú vitni að for­dæma­lausri stig­mögnun spennu á svæð­inu, en við vonum samt að stjórn­mála­legar og diplómat­ískar leiðir og samn­inga­við­ræður muni áfram ráða för í leit­inni að lausn.“

Heræfingar og sýning valds

Íran hefur kraf­ist þess að við­ræður við Banda­ríkin tak­mark­ist við kjarn­orku­málið, þótt Trump­stjórnin hafi áður þrýst á um að eld­flauga­á­ætlun Teheran og stuðn­ingur við vopn­aða hópa á svæð­inu yrðu á borð­inu.

Banda­ríkin hafa á meðan verið að byggja upp her­afla sinn nálægt Íran, þar á meðal her­skip, orr­ustu­þotur og elds­neyt­is­á­fyll­ing­ar­flug­vélar, og lagt grunn­inn að mögu­legri langvar­andi her­ferð gegn Íran – ef Trump gefur skip­un­ina.

Stríðs­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna hefur sent annað flug­móð­ur­skip á svæðið, en það fyrra, USS Abraham Lincoln og nærri 80 flug­vélar þess, var stað­sett um 700 kíló­metra frá írönsku strönd­inni á sunnu­dag, sam­kvæmt gervi­hnatta­myndum.

Íran hefur reynt að sýna eigið her­vald, en íslamska bylt­ing­ar­varð­liðið hélt her­æf­ingar fyrr í vik­unni í Hor­mússundi.

Íranskir stjórn­mála­menn hafa ítrekað hótað að loka sund­inu, sem er mik­il­væg alþjóð­leg flutn­ings­leið fyrir olíu og gas.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Enginn ætti að fara í stríð. Fara ætti í þjóðaratkvæðagreiðslu ef einhverju stórmenninu dytti það í hug. Þó gæti sálfræðiþjónusta verið betri.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið undanfarið ár