Eldey föst í veiðarfærum

Síðustu daga jan­úar mættu fyrstu súl­urnar í Eldey. Mildur vetur virð­ist hafa kallað þær óvenju­snemma heim. Sumum þeirra mun bregða í brún þegar þær koma að holu þar sem áður var hreið­ur­skál, enda hreiðrin nú í höndum vís­inda­manna í Sand­gerði. Þær verða þó varla í vand­ræðum með að byggja sér ný, nægur virð­ist efni­við­ur­inn í haf­inu – plastið.

Við Ísland verða staðir vart ein­angr­aðri en Eldey. Rúmlega 75 metra hár kletta­drangur rís úr hafi 15 kíló­metrum suð­vestan við Reykja­nestá þar sem veður, vindar og þung aldan brjóta stans­laust á þessum ill­kleifa og frið­aða útverði lands­ins. Flat­ar­málið á hatti eyj­ar­innar er lítið, um þrír hekt­arar, svipað pláss og tveir til þrír sum­ar­bú­staðir tækju til sín í þéttri sum­ar­húsa­byggð. Hér er þó engin slík byggð enda óvist­legri stað fyrir mann­fólk erfitt að finna. Hér er hins vegar para­dís súl­unnar, öruggt varp­svæði og frá­bær fiski­mið allt í kring. 

„Eldey er stærsta ein­staka súlu­byggðin á Íslandi, 40% af íslenska stofn­inum verpir hér. Eyjan er í raun full­setin, stærð varp­stofns­ins hefur lítið sem ekk­ert breyst í ára­tugi. Maður sér að það kom­ast ekki fleiri hreiður fyrir, hún er alveg þakin,“ segir Sindri Gíslason. Hann er doktor í sjáv­ar­líf­fræði og for­stöðu­maður Nátt­úru­stofu Suð­vest­ur­lands og er ásamt Sunnu Hrund Sverr­is­dóttur, sjáv­ar­líf­fræð­ingi og sam­starfs­konu sinni, …

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðmundur Þór Sigfússon skrifaði
    Spennandi verkefni Gangi ykkur vel og súlunum líka.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár