Hitafundur í Grafarvogi: Frambjóðandi púaður niður og óútskýrð fjölgun íbúða

Íbúar í Graf­ar­vogi brugð­ust illa við þegar nýr fram­bjóð­andi Sam­fylk­ing­ar­innar ætl­aði að kynna sig á hita­fundi í byrjun vik­unnar. Þá kann­að­ist borg­ar­stjóri ekki við tölur úr nýsam­þykktri hús­næð­is­stefnu.

Hitafundur í Grafarvogi: Frambjóðandi púaður niður og óútskýrð fjölgun íbúða
Borg­ar­stjóri Heiða Björg Hilm­is­dóttir, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, átti erf­iðan fund í Graf­ar­vog­inum í byrjun vik­unnar. Mynd: Víkingur

„Það var fullur salur af fólki, mikil sam­heldni á meðal íbúa, en sumir upp­lifðu þetta eins og ofbeldi, eins og að við gætum ekki treyst þessu fólki,“ segir Elísabet Gísla­dóttir, en borg­ar­stjóri Reykja­víkur, Heiða Björg Hilm­is­dóttir, fund­aði með reiðum íbúum Graf­ar­vogs á miklum hita­fundi í hverf­inu mánu­dag­inn 9. febr­úar síð­ast­lið­inn ásamt starfs­fólki borg­ar­innar. Samkvæmt lýs­ingum af fund­inum kann­að­ist borg­ar­stjór­inn ekki við áætl­anir í nýsam­þykktri hús­næð­is­stefnu borg­ar­innar og nýr fram­bjóð­andi Sam­fylk­ing­ar­innar, sem var með í för, var púaður niður þegar hann hugð­ist kynna sig fyrir íbúum á fundi sem var haldin á vegum borg­ar­innar.

„Þetta er víst rétt“

Mikil spenna er í Graf­ar­vog­inum þegar kemur að meiri­hluta borg­ar­stjórnar Reykja­víkur og hefur það verið þannig síð­ustu ár. Íbúar hafa gagn­rýnt meiri­hlut­ann harð­lega fyrir skort á almenn­ings­sam­göngum í tengslum við nýbygg­ingar á Gufu­nes­inu, auk þess sem íbúar eru pirraðir á nýjum beygju­ljósum hafa valdið töfum á Stranda­vegi. Þá hafa áætl­anir um þétt­ingar í …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár