Fáheyrð ákæra vegna hálfs gramms af kannabis

Maður á Akureyri sætir ákæru fyrir vörslu hálfs gramms af kanna­bis. Sak­sókn­ari segir und­an­tekn­ingu ef ákært er fyrir svo litla skammta til eigin nota. Í þessu til­felli mun mað­ur­inn hafa neitað að leysa málið með sekt­ar­greiðslu sem áætla má að nemi 54 þús­und krónum.

Fáheyrð ákæra vegna hálfs gramms af kannabis
Kannabis Maður á Akureyri sem var ákærður fyrir vörslu kanna­bis­efna mun hafa neitað að leysa málið með sekt­ar­greiðslu. Mynd: Shutterstock

Litlir neyslu­skammtar af fíkni­efnum og sektir þeirra vegna koma ekki fram á saka­vott­orðum fólks. Und­an­tekn­ing er að ákært sé í slíkum málum, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætti Rík­is­sak­sókn­ara og lög­reglu­stjór­ans á Norð­ur­landi eystra.

Mannlíf greindi frá því nýverið að karl­maður á fimm­tugs­aldri á Akureyri hefði verið ákærður fyrir fíkni­efna­laga­brot fyrir að hafa haft 0,56 grömm af tóbaks­blönd­uðu kanna­bis­efni í vörslum sínum þegar lög­regla hafði afskipti af honum þann 4. febr­úar 2025 á dval­ar­stað hans.

Halldór Tumi Ólason aðstoð­ar­sak­sókn­ari og lög­reglu­stjór­inn á Norð­ur­landi eystra eru ákærendur í mál­inu og þess var kraf­ist að ákærði yrði dæmdur til refs­ingar og til greiðslu alls sak­ar­kostn­aðar.

Miðað við fyr­ir­mæli Rík­is­sak­sókn­ara um lausn mála með sekt­ar­greiðslum má áætla að sekt fyrir vörslu 0,56 gramma af kanna­bis nemi almennt um 54 þús­und krónum.

„Ástæða þess að við­kom­andi aðili var ákærður var sú að hann hafði ekki geng­ist undir að ljúka mál­inu með …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár