Myndin um Melaniu Trump fær harða útreið

For­seta­frúin fær millj­arða frá einum rík­asta manni heims fyrir mynd sem orðin er tákn um sam­spil tækni­auð­jöfra og stjórn­mála­valds.

Embættistakan
Emb­ætt­is­takan Klæða­burður Melaniu vakti athygli á emb­ætt­is­tök­unni, en kvik­mynd hennar fjallar að tölu­verði leiti um hann. Mynd: AFP

„Melania“, kvik­mynd fram­leidd af Amazon MGM sem fylgist með hinni yfir­leitt hlé­drægu for­seta­frú Banda­ríkj­anna á meðan hún und­ir­býr aðra emb­ætt­is­töku eig­in­manns síns, Donalds Trump, var frum­sýnd í kvik­mynda­húsum í gær.

Kalla mætti mynd­ina heim­ild­ar­mynd ef ekki væri fyrir þá stað­reynd að for­seta­frúin stýrði því sjálf hvað kæmi fyrir í henni og fær sjálf 3,4 millj­arða íslenskra króna frá Amazon, fyr­ir­tæki auð­jöf­urs­ins Jeffs Bezos, sem hefur sér­stakan hag af því að koma sér í mjúk­inn hjá Banda­ríkja­for­seta. Hér þykir mörgum gagn­rýnendum komið dæmi sem sýnir hvernig stjórn­mála­valdið og vald tækni­auð­jöfra reyna að hafa áhrif á menn­ing­una með því að rugla saman reytum. 

Myndin hefur af þessum sökum hlotið harða útreið gagn­rýnenda. Þannig segir gagn­rýn­andi breska blaðs­ins Guardian að hún sé „gull­húðuð end­ur­gerð af Zone of Interest úr rusli“. Þar vísar hann til kvik­myndar um hvers­dags­líf nas­ista­fjöl­skyldu við hlið Auschwitz-útrým­ing­ar­búð­irnar. Hann gefur mynd­inni eina stjörnu og segir hana „enda­laust hel­víti“.

…
Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár