„Ég er ein af þessum konum“

Í þrjú ár hafði Inga Dóra Guð­munds­dóttir reynt að eign­ast barn áður en það upp­götv­að­ist að hún var með lykkju. Lykkj­unni hafði verið komið fyrir án hennar vit­undar eða vilja. Upp­götv­unin var alvar­legt áfall en nú getur hún sótt rétt sinn til danska rík­is­ins. Hún segir margt enn óupp­gert, þótt þessar þjóðir þurfi nú að standa saman.

„Ég er ein af þessum konum“
Inga Dóra hefur komið víða við á sínum ferli. Hún var meðal ann­ars bæj­ar­full­trúi í Nuuk og jafn­framt for­maður Siumut-flokks­ins í Nuuk, einnig rit­stjóri elsta dag­blaðs Græn­lands og fram­kvæmda­stjóri Vest­nor­ræna ráðs­ins. Mynd: Golli

Inga Dóra Guð­munds­dóttir hefur alla tíð lifað á mörkum ólíkra heima, líkt og vernd­ar­táknin á höndum hennar gefa til kynna. Á annarri hend­inni er húð­flúr sem byggir á íslenskum tákn­myndum, en á hinni hefur hún leitað í ræt­urnar á Græn­landi. Húð­flúrin eru jafn­stór og sett upp með nákvæm­lega sama hætti, hún er með inúíta-tattú. Þau fékk hún sér við það að stíga inn í erf­iðan póli­tískan slag, vit­andi að hún þyrfti á öllum sínum styrk að halda. 

Inga Dóra hefur komið víða við á sínum ferli. Hún var bæj­ar­full­trúi í Nuuk og jafn­framt for­maður Siumut-flokks­ins í Nuuk, einnig rit­stjóri elsta dag­blaðs Græn­lands og fram­kvæmda­stjóri Vest­nor­ræna ráðs­ins. Hún hóf fer­il­inn við ferða­þjón­ustu og er í dag fram­kvæmda­stjóri sjálf­bærni og sam­skipta fyrir Air Greenland. Á bak við allt sem hún hefur tekið sér fyrir hendur hafa legið spurn­ingar um það að til­heyra, axla ábyrgð og reyna að skilja sam­fé­lag sem …

Kjósa
72
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Þetta er samið fyrir ykkur kæru Grænlendingar!
    https://music.youtube.com/watch?v=GQ1YmGSBYIg&si=pBByY7Bu3Ma3DAg8
    -1
  • Inga Björk Sveinsdóttir skrifaði
    Dásamleg lýsing og upplifun frjásrar manneskju í landi sem á rétt á að lifa í friði í sínu heimalandi án afskipta frékjudóna.
    4
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Auðvitað var lykkju málið ekkert annað en tilraun til þjóðarmorðs. Og kemur ekki á óvart að Íslensk stjórnvöld hafi ekki staðið með Grænlendingum, því hér eru gildin meira í hinum hefðbundna pýramída, silfrið er efst og allt annað er neðar. Mannréttindi og kvenréttindi eru fallegt helgidaga skraut en skora samt í raun ekki hátt í okkar gildismati. Svo er okkur alveg fyrirmunað að skilja að einhverjir geti hugsað, lifað og tjáð sig eftir öðrum gildum og mati en það sem við höfum.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

ViðtalLandið sem enginn á

Rödd fram­tíð­ar­innar – lifði af sjálfs­vígstil­raun

Aqqalukkuluk Fontain býr yfir rödd sem hann nýtir til þess að miðla upp­lýs­ingum, grein­ingum og hugs­unum til sam­landa sinna. Hann er hin nýja rödd Græn­lands, ungur hug­sjóna­maður sem nýtir sam­fé­lags­miðl­ana til að fá fólk til að hugsa og setja hlut­ina í rétt sam­hengi. Og eftir að hafa lifað af sjálfs­vígstil­raun hjálpar hann öðrum til að lifa af – og tala um til­finn­ingar.

19 mín. lestur

ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var ofbeld­is­fullur“

Þegar Embla Krist­jáns­dóttir hóf sam­búð með Niels Thom­as­sen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­inum sem hún elskaði, þar sem stjórn­semi, afbrýði­semi og reiði réðu ríkjum. Hann gekkst við ofbeld­inu, axl­aði ábyrgð og hefur unnið þrot­laust í sjálfum sér síð­asta ára­tug. Nú miðlar hann reynslu sinni og hvetur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ingar sínar og standa ber­skjald­aðir.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár