Útsýni Vöru­húsið skyggir á Esjuna. Mynd: Golli

Vöruhús rís við Vesturlandsveg

17 þús­und fer­metra bygg­ing á vegum Jysk hefur risið undir Úlf­ars­felli við Vest­ur­lands­veg. Fram­kvæmd­irnar eru fyrsti lið­ur­inn í versl­un­ar­hverfi sem áformað er að verði á stærð við Skeifuna.

Vöru- og versl­un­ar­hús sem telur 17 þús­und fer­metra hefur nú risið undir Úlf­ars­felli við Vest­ur­lands­veg í Mos­fellsbæ. Bygg­ingin er hluti af nýrri upp­bygg­ingu versl­unar- og atvinnu­svæðis í Mos­fellsbæ sem fast­eigna­fé­lagið Reitir fer fyrir. Hverfið, sem heitir Korputún, á að verða á stærð við Skeifuna og verður stað­sett sunnan við Mos­fellsbæ. 

„Fyrir fyrirtæki sem þurfa mikinn sýnileika“

Bygg­ingin sem nú hefur risið mun hýsa þriggja hæða verslun, vöru­hús og höf­uð­stöðvar JYSK, og verður sú hæsta í hverf­inu. Lóðin telur um 20 pró­sent af svæð­inu en þar er áætlað að rísi sam­tals 90 þús­und fer­metrar af atvinnu­hús­næði í um 30 bygg­ingum. 

Bygging JYSK stendur næst Vest­ur­lands­vegi en þar er gert ráð fyrir stærri bygg­ingum „fyrir fyr­ir­tæki sem þurfa mik­inn sýni­leika og eru með bland­aða starf­semi,“ að því er segir á vef­síðu Korputúns.

Þá segir að Korputún verði „fyrsta atvinnu­hverfið á Íslandi til að hljóta BREEAM-vottun en hún tryggir …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er eins og framsóknarflokkurinn, grænt sést varla en það er þarna.
    0
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Smekkvísi skipulagsyfirvalda lætur ekki að sér hæða. Og greinilega búið að samræma fegurðarsmekkinn. Grænt gímald í öll sveitarfélög.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár