„Mér þótti vænt um að við hjónin gátum sótt samverustund með Grindvíkingum í Hallgrímskirkju í gær,“ segir forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson. Í færslu sem hann birti á Facebook rétt í þessu segir hann að Grindvíkingar láti engan bilbug á sér finna, með öflugt fólk í framvarðarsveit.
Guðni og Eliza Reid, eiginkona hann, litu einnig við í fjöldahjálparstöðinni í Kópavogi á laugardaginn, þar sem þau ræddu við fólk sem hefur þurft að yfirgefa heimili sín. „Mikið er á Grindvíkinga lagt en finna má styrk í samverunni og þeirri miklu samkennd sem íslenska þjóðin sýnir þegar á reynir. Við skulum áfram vona það besta en búa okkur undir allan þann miska sem hin römmu náttúruöfl geta gert okkur.“
Þá segist hann hafa þakkað þeim fjölmörgu sem hafa boðið húsaskjól eða aðra aðstoð, í ávarpi sínu í Hallgrímskirkju í gær. Um leið þakkaði hann öllum sem sinna hjálp í viðlögum, starfsliði almannavarna og á öðrum vettvangi þessara vályndu viðburða. „Ég er stoltur og þakklátur yfir því að búa í samfélagi sem bregst svo vel við óvæntri ógn.“
Úr ávarpi forseta Íslands
Í ávarpi Guðna í Hallgrímskirkju sagði meðal annars: „Mér þykir vænt um að eiga þessa stund með ykkur – þessa samverustund þegar við leitum styrks hvert hjá öðru, þegar við bíðum þess sem verða vill, vonum það besta en búum okkur undir allan þann miska sem hin römmu náttúruöfl geta gert okkur. Þetta segi ég fyrir mína hönd og konu minnar og ég veit að ég mæli fyrir munn allrar þjóðarinnar þegar ég segi að við hugsum hlýtt til allra þeirra sem þurftu að flýja heimili sín og vinnustaði í skyndi.“
„Í Grindavík verður áfram blómleg byggð“
Sagði hann margt hægt að gera, þrátt fyrir allt. „Við getum vonað og trúað og við getum gert það sem í okkar valdi stendur – við getum brugðist við, nýtt okkur þekkingu og reynslu, vitsmuni og útbúnað.“
Ekki væri enn vitað hvort gjósa muni í eða við Grindavík. „Ef það gerist þá tökumst við á við þann mikla vanda og lífið mun svo halda áfram. Í Grindavík munu börn ganga í leikskóla og skóla, við munum sinna þeim eldri og þeim sjúku. Heimafólk mun áfram skora og skora á vettvangi íþrótta. Við munum mæta á tónleika í Grindavík og aðrar skemmtanir, á sjómannadagsmessu og Sjóarann síkáta, þá góðu hátíð. Það verður áfram róið frá Grindavík. Íbúar þar munu áfram afla þjóðarbúinu drjúgra tekna. Já, Grindavík verður áfram sælureitur ykkar íbúanna og við hin munum áfram njóta gestrisni ykkar og góðvildar. Í Grindavík verður áfram blómleg byggð.“
Athugasemdir