Fjöldi fólk freistar þess nú að fá að fara inn á lokað svæði í Grindavík. Upp úr klukkan tíu í morgun var tilkynnt um að íbúar á skilgreindum svæðum fengi að fara inn til að sækja brýnustu verðmæti.
Íbúar og fyrirtæki austan megin við Víkurbraut og norðan við Austurveg eru í fyrsta hópi. Þegar ljósmyndara Heimildarinnar bar að garði biðu um 50 bílar eftir því að komast inn fyrir lokunarpóstinn. Þegar komið er inn fyrir fyrsta póst og að Ísólfsskálaafleggjaranum hreyfist ekki bílaröðin að bílastæðinu við Fagradalsfjall, þar sem söfnunarstaðurinn er.
Tveimur frá hverju heimili er leyft að fara inn á svæðið og almannavarnir ítreka að fólk eigi ekki að fara inn ef það er ekki nauðsynlegt. „Heimild til þess að fara inn í bæinn er ábyrgðarhluti og ekki léttvæg ákvörðun og þýðir alls ekki að svæðið sé að öðru leyti opið fyrir umferð.“ Það fylgi því áhætta að fara inn í bæinn.
Samkvæmt síðustu mælingum lá kvika um 800 metra undir yfirborðinu þar sem grynnst var. Í hópnum eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands var einnig greint frá því að mælingar jarðvísindamanna hefðu staðfest að sigdalur myndaðist þvert í gegnum bæinn, við gliðnun sem kvikuinnskot olli um helgina. Innan sigdalsins hefur land sigið um meter. Ný gögn munu liggja fyrir síðar í dag.
Ljóst er að íbúar vilja komast heim til sín, ýmist til að verða sér úti um nauðsynjar, bjarga gæludýrum eða verðmætum. Margir voru farnir áður en rýmingin átti sér stað og voru því allslausir. Aðrir yfirgáfu heimili sín í miklu flýti seint á föstudagskvöldi.
Meðfylgjandi eru leiðbeiningar frá Almannavörnum:
Til athugunar fyrir íbúana
- Ekki fara ef þú þarft ekki nauðsynlega að fara
- Aðeins verður leyfi fyrir einn aðila að fara inn á svæðið, fyrir hvert heimili
- Skráið niður lista yfir það sem þið hyggist sækja áður en lagt er af stað
- Munið eftir húslykli
- Búr fyrir gæludýr ef þörf er á
- Poka eða annað undir muni
- Íbúar hafa stuttan tíma inni á heimilinu.
- Þau sem fara mega ekki vera með bráðaofnæmi fyrir dýrum því það verða gæludýr með í för í bakaleiðinni.
- Þetta er eingöngu til þess sækja mjög mikilvæga hluti s.s. gæludýr, lífsnauðsynleg lyf, hugsanlega vegabréf eða aðra ómissandi hluti fyrir heimilisfólk
- Heimilt verður að keyra ökutæki sem skilin voru eftir við rýmingu, út af svæðinu frá Grindavík, en eingöngu í fylgd viðbragðsaðila
Athugasemdir