Íbúar í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík fengu heimild almannavarna til að fara inn á lokað svæði til að sækja gæludýr og ómissandi eigur. Hverfið sem um ræðir stendur austast í Grindavík, en þar eru innan við tuttugu heimili.
Samhliða því er sérstök aðgerð í gangi til að sækja alla hesta í hestahverfinu norðan við Austurver. Á vettvangi má sjá jeppa með hestakerrur aka inn í hverfið í fylgd björgunarsveita og lögreglu. Sérsveitin er einnig á vettvangi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar er í viðbragðsstöðu á Keflavíkurflugvelli.
Röð biðreiða bíður við lokunarpóstinn. Almannavarnir árétta mikilvægi þess að fólk fari ekki af stað í átt til Grindavíkur og safnist fyrir á lokunarpóstum. Íbúum annarra hverfa verður ekki hleypt inn að svo stöddu. „Ekki liggur fyrir hvort eða hvenær mögulegt verður að fara í samskonar leiðangra í önnur hverfi. Þórkötlusvæðið er innan lokunarsvæðis en utan rýmingarsvæðis,“ segir í tilkynningu frá Almannavörnum.
Fólki er ekki hleypt inn …
Athugasemdir