Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

Lögreglustjórinn sér „ekki alveg fyrir að við hleypum fólki þarna inn“

Þrátt fyr­ir að ró­legt hafi að mestu ver­ið yf­ir jarð­skjálfta­svæð­inu á Reykja­nesi frá því í gær er enn ekki víst að Grind­vík­ing­ar fái að fara ör­stutt heim til sín að sækja nauð­synj­ar og vitja um gælu­dýr sín.

Lögreglustjórinn sér „ekki alveg fyrir að við hleypum fólki þarna inn“
Skemmdir Mikið hefur gengið á í Grindavík eftir að bærinn var rýmdur. Miklar skemmdir hafa orðið á götum líkt og sérfræðingar Vegagerðarinnar komust að í leiðangri þar í gær. Mynd: Vegagerðin

Vonir standa til hægt verði að hleypa Grindvíkingum stutta stund heim til sín til að sækja nauðsynjar og huga að dýrum sínum, sagði Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn í morgun. Slíkt yrði gert samkvæmt nákvæmu skipulagi sem verður kynnt betur þegar nýtt hættumat á svæðinu liggur fyrir. Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, sagði hins vegar að ekkert hefði verið ákveðið í þessum efnum og að „það ágæta fólk sem býr í Grindavík“ þurfi að sýna þolinmæði. „Ef það er yfirvofandi hætta í Grindavík þá sé ég ekki alveg fyrir að við hleypum fólki þar inn,“ sagði hann við RÚV.

Rólegt hefur að mestu verið yfir skjálftasvæðinu síðustu klukkustundir, það er að segja, fáir skjálftar yfir 3 að stærð. Rétt eftir klukkan 8 í morgun varð þó 3,7 stiga skjálfti um sex kílómetrum suður af Reykjanestá. Sá er talinn hafa verið svokallaður gikkskjálfti.

Sigríður Kristjánsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að enn sé þó stöðug skjálftavirkni, langmest við kvikuganginn. „Við höfum séð það í fyrri gosum að skjálftavirknin hefur minnkað jafnvel talsvert áður en kvikan kemur upp á yfirborðið.“

StjörnukortGrænu stjörnurnar eru skjálftar sem eru 3 stig og yfir. Svona leit skjálftakort Veðurstofunnar út kl. 10.30 að morgni sunnudagsins 12. nóvember. Kortið sýnir skjálfta síðustu 2 sólarhringana.

Veðurstofan hefur varað við því að vegna mikillar spennulosunar á svæðinu sé ekki hægt að gera ráð fyrir að gosórói mælist áður en eldgos hefst. Líkön sýna 15 kílómetra kvikugang sem liggur rétt norðvestan Grindavíkur. Hann liggur allt frá Kálffellsheiði í norðri og út í sjó suður af Grindavík.

Stöðufundur sérfræðinga fór fram í morgun og í kjölfar hans stóð til að funda með með helstu viðbragðsaðilum. Í kjölfar hans munu mál vonandi skýrast, hvort og hvenær íbúum verður leyft að fara örstutt heim til sín.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbú­um leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­regl­an mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­in­um verð­ur íbú­um og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækj­um í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæ­inn og dvelja þar næt­ur­langt. Í ný­legri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesj­um er greint frá þessu. Íbú­ar eru þó var­að­ir við að inn­við­ir bæj­ar­ins séu í lamasessi og sprung­ur víða. Bær­inn sé því ekki ákjós­an­leg­ur stað­ur fyr­ir fjöl­skyld­ur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tíma­bært að verja Reykja­nes­braut

Þor­vald­ur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ing­ur seg­ir að það sé tíma­bært að huga að vörn­um fyr­ir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesj­um. At­burða­rás­in á fimmtu­dag, þeg­ar hraun rann yf­ir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi ver­ið sviðs­mynd sem bú­ið var að teikna upp. Hraun hafi runn­ið eft­ir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þeg­ar mað­ur vel­ur sér það sjálf­ur, hvað þá þeg­ar mað­ur neyð­ist til þess. Og hvernig vel­ur mað­ur hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þeg­ar mað­ur yf­ir­gef­ur stórt ein­býl­is­hús með tvö­föld­um bíl­skúr fyr­ir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyld­an á Blóm­st­ur­völl­um 10 í Grinda­vík stóð frammi fyr­ir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Mest lesið

Segja svör Íslands hvorki viðunandi né í samræmi við raunveruleikann
4
Fréttir

Segja svör Ís­lands hvorki við­un­andi né í sam­ræmi við raun­veru­leik­ann

Hvít­þvott­ur, inni­halds­leysi og óvið­un­andi svör sem eru ekki í tengsl­um við raun­veru­leik­ann eru með­al þeirra orða sem Geð­hjálp not­uðu til að lýsa svör­um Ís­lands um geð­heil­brigð­is­mál í sam­ráðs­gátt. Inn­an stjórn­kerf­is­ins er unn­ið að drög­um að mið­ann­ar­skýrslu Ís­lands vegna alls­herj­ar­út­tekt­ar Sam­ein­uðu þjóð­anna á stöðu mann­rétt­inda­mála.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Forsprakki útifundar játaði fjárdrátt á leikskólanum Klettaborg
1
Fréttir

Forsprakki úti­fund­ar ját­aði fjár­drátt á leik­skól­an­um Kletta­borg

Sig­fús Að­al­steins­son, stofn­andi hóps­ins Ís­land - þvert á flokka, sem stend­ur fyr­ir úti­fund­um um hæl­is­leit­end­ur, ját­aði á sig fjár­drátt frá leik­skól­an­um Kletta­borg þeg­ar hann var for­stöðu­mað­ur þar. Hann vill ekki dæma hvort brot af því tagi séu nógu al­var­leg til að inn­flytj­end­ur sem gerð­ust sek­ir um þau ætti að senda úr landi.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu